Fréttablaðið - 14.10.2004, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 14.10.2004, Blaðsíða 30
Hver segir að maður þurfi að vera ungur háskólastúdent til að fara í Interrail til Evrópu? Það segir það svo sem enginn en algengast er að fólk leggi upp í þannig ferðir meðan það er enn ungt og ævin- týragjarnt. Anna Sigurðardóttir sálfræð- ingur hefði vel getað hugsað sér að fara í Interrail á sínum tíma, en bæði var hún rög við að ferðast ein og svo var hún ung farin að eignast börn og þar með var draumnum skotið á frest. Í maí 2003 lét Anna hins vegar draum- inn rætast, fór ein í Interrail til Austur-Evrópu og hélt upp á 51 árs afmælið sitt í ferðinni. Aðdragandinn að ferðalaginu var ráðstefna sem Anna sótti í Bled í Slóveníu og áhugi á evr- ópskri sögu. „Ég var orðin rúm- lega þrítug þegar ég fór í fram- haldsnám til Þýskalands og var þar árin 1983-1990. Þegar múrinn féll árið 1989 hafði ég farið marg- ar ferðir yfir til Austur-Berlínar, sem mér fannst alltaf jafn áhrifa- ríkt. Nú þegar Austur-Evrópu- löndin hafa meira og minna sótt um inngöngu í Evrópusambandið liggur það í hlutarins eðli að þau verða von bráðar vestrænni þannig að mig langaði að skoða gamla austrið áður en það yrði of seint. Þegar félag meðferðar- fræðinga ákvað svo að halda ráð- stefnu í Bled í Slóveníu fannst mér tilvalið að nota tækifærið og gera meira úr ferðinni.“ Anna fann út að það borgaði sig fyrir hana að kaupa sér Interrail- miða sem gilti fyrir alla Evrópu og ákvað að skipuleggja sem minnst. „Það eina sem ég gerði fyrir fram var að panta hótelher- bergi fyrstu nóttina í Prag og það var það eina sem klikkaði í allri ferðinni,“ segir Anna og hlær. Stórkostleg Austur-Evrópa Anna heimsótti átta lönd og á engin orð til að lýsa ferðinni, sem hún segir hafa verið stórkostlega upplifun. Hún fór meðal annars til Bratislava, Ljúbljana, Búdapest, Zagreb og Krakár að ógleymdri Prag. „Það væri efni í heila bók að segja frá öllu því stórkostlega sem ég upplifði,“ segir Anna og blaðamaður situr bergnumin og hlýðir á frásagnir úr ferðinni. „En til að virkilega njóta svona ferðar þarf að hafa ýmislegt í huga,“ segir Anna. „Ég setti mér til dæmis það markmið að ofgera mér ekki og taka bara einn dag í einu. Ég ákvað líka að eyða ekki miklu í gistingu og valdi því þægileg gisti- heimili. Hilton er eins alls staðar í heiminum og ekkert spennandi við það. Mér fannst ég samt vera orðin of gömul og löt til að vera á far- fuglaheimilum með mörgum í her- bergi,“ segir hún og hlær. Anna byrjaði hvern dag á að kaupa brauð og álegg og setjast svo niður í rólegheitum og skoða það sem hún vildi gera þann dag- inn. „Ég notaði alltaf almennings- samgöngur, keypti mér miða sem giltu í öll samgöngutæki og voru jafnframt aðgöngumiðar að söfnum. Þá fór ég í mikið af skipu- lögðum ferðum, sem er mikill tímasparnaður og um að gera að nýta sér það vegna þess hvað það er skemmtilegt og á sanngjörnu verði. Það er líka heilmikil áreynsla að búa í bakpoka og um að gera að nýta sér það sem er þægilegt. Ég fór alltaf út að borða á kvöldin og valdi þá þjóðlega staði og fór einstaka sinnum á tón- leika, en það er mikilvægt að vera komin snemma í háttinn og snemma upp á morgnana. „ Anna segist ekkert hafa fundið fyrir því að hún var ein á ferð og var aldrei hrædd eða óörugg. „Ef fólk er að leita sér að ferðafélög- um finnur það þá gjarnan á far- fuglaheimilum eða jafnvel í lest- inni. Það hentaði mér hins vegar að vera ein í þessari ferð og hafa mína eigin hentisemi,“ segir hún og ráðleggur fólki sem enn geymir gamlan draum um Interrail-ævintýrið í hjartanu að láta hann rætast. edda@frettabladid.is ævintýraheimur Verð 262.000 kr. á mann í tvíbýli...allt innifalið! Nánari upplýsingar í síma 570 2790 eða á www.baendaferdir.is K Y N N T U Þ É R S É R F E R Ð I R F E R Ð A Þ J Ó N U S T U B Æ N D A 24. mars - 7. apríl ‘05 5. - 19. maí ‘05 9. - 23. september ‘05 K Ö -H Ö N N U N /P M C s: 570 2790www.baendaferdir.is Bankastræti 10 + Sími 562 23 62 + info@exit.is + www.exit.is Au pair býr hjá gistifjölskyldu, aðstoðar við barnagæslu og heimilisstörf og tekur þátt í daglegu lífi gistifjölskyldunnar. Að launum fær au pair vasapening, frítt fæði og húsnæði. Færð þú MasterCard Ferðaávísun? Á bakpokaferðalagi Interrail-miðinn: Anna keypti hann hjá Ferðaskrifstofu stúdenta og hann kostaði 55 þúsund krónur og gilti um alla Evrópu. Allir geta keypt Interrail-miða, hann er bara ódýrari fyrir stúdentana. Farangur: Eins lítið og kemst í einn bakpoka. Anna tók með sér eina Eco- bandaskó sem hún gekk í allan tímann. Hún tók þrenn pör af sokkum og nær- fötum, einar stuttbuxur, einar kvart- buxur og einar síðar, einn stuttermabol, eina stutterma blússu og eina síðerma. Hún valdi föt sem þoldu svolítið hnjask en var þó alltaf snyrtileg til fara. Þvottaefni og þvíumlíkt: Það tók Anna með sér í litlum filmuhylkjum. Snúra: Eitthvert band sem hægt er að strengja upp í herbergjunum og þurrka af sér fötin. Mikilvægt: Að kaupa ekkert. Anna stóðst ekki mátið að kaupa sér harðangurs- og knipplingadúka en hún sendi þá á undan sér heim. Anna hefur það fyrir reglu að kaupa alltaf einn minjagrip frá hverjum stað handa barnabörnunum sínum. Í þessari ferð valdi hún lyklakippur sem lítið fór fyrir. Lítill bakpoki: Nauðsynlegur til að nota í dagsferðum. Hann þarf að komast oní stóra bakpokann á lestarferðunum. Í lestinni: Anna hafði ofan af fyrir sér á löngum lestarferðum með því að sauma merki borga og bæja í litla bakpokann. Það vakti oft áhuga samferðamanna og varð kveikjan að skemmtilegum samræðum. Minningar: Dóttir Önnu gaf henni ferðadagbók sem hún hafði útbúið sérstaklega fyrir þessa ferð. Á kvöldin skrifaði Anna upplifanir sínar í bókina og límdi inn miða, kort og myndir frá viðkomandi stöðum. Þetta gerði hún gjarnan á veitinga- stöðum á kvöldin og vakti það athygli þjónanna, sem sýndu þessu áhuga og fannst bara skemmtilegt að hafa viðskiptavin sem dundaði sér með limstifti og skæri við borðið sitt. Anna átti dásamlegan mánuð í Austur-Evrópu og mun búa að minningunum alla tíð. Draumurinn rætist: Fimmtug og aldrei hressari í Interrail Ferðaskrifstofan Terra Nova býður upp á jólaferðir til Kýpur. Fyrsta ferð er farin 17. desember og er hún sautján dagar. Seinni ferðin er farin 22. desember og er hún tólf dagar. Nánari upplýsingar veitir ferðaskrifstofan. Á FÖSTUDÖGUM Uppskrift að góðri matarhelgi Auglýsingasíminn er 550 5000 auglysingar@frettabladid.is - mest lesna blað landsins [ RÁÐLEGGINGAR ÖNNU ] 30/35 (06-07) Allt ferðir 13.10.2004 15:46 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.