Fréttablaðið - 14.10.2004, Síða 46

Fréttablaðið - 14.10.2004, Síða 46
30 14. október 2004 FIMMTUDAGUR „Klukkan var hálftvö að staðartíma þegar það hætti skyndilega að rigna á Íslandi í gær. Ég sá sólina í fyrsta sinn að því að ég hélt. Það var hins vegar engin sól heldur demanturinn hans Eiðs Guðjohnsen.“ Mats Olsson, dálkahöfundur sænska dagsblaðsins Expressen, skrifaði skemmtilega grein í blað sitt um upplifun sína á Íslandisport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 11 12 13 14 15 16 17 Fimmtudagur OKTÓBER FÓTBOLTI „Ég einbeiti mér að mínu starfi með U21 árs liðinu og vona að draumurinn um að komast í A- landsliðið komi síðar,“ segir Hannes Þ. Sigurðsson, leikmaður með Víking í Noregi, en hann hef- ur staðið sig vonum framar með íslenska U21 árs landsliðinu og hefur skorað öll sex mörk liðsins í riðlakeppninni. Spurningar hafa vaknað upp hvort ekki sé þörf fyr- ir slíkan mann í aðalliði Ásgeirs og Loga en Hannes segir það ekk- ert sérstakt keppikefli eins og sakir standa. Hannes spilaði afbragðsvel ásamt liðinu öllu þegar góður 3-1 sigur vannst á U21 árs liði Svía í Grindavík á þriðjudaginn var. „Heppni er alltaf hluti af þessu en gegn Svíum var allt liðið að spila vel og þess vegna fékk ég góð tækifæri til að skora,“ segir Hannes, en liðið hefur nú unnið tvo leiki og tapað tveimur. „Þetta var bara okkar dagur. Við vorum allir frískir og náðum þeim leik sem við vildum. Létum þá lítið stjórna spilinu og niðurstaðan var okkur í hag. Við vissum alltaf að okkar lið var ekki verra en það sænska og þegar sjálfstraustið er í góðu lagi eins og þarna var er allt hægt.“ Hannes hefur leikið fyrir nors- ka liðið Víking frá Stafangri um tíma en samningur hans við liðið rennur út í desember. Hann vill ekki gefa upp hvað tekur við eftir það en hann hefur fengið færri tækifæri með Viking en hann von- aðist eftir. „Ég hef ekki fengið eins mörg tækifæri og ég vildi. Þeir vilja þó hafa mig áfram og hafa boðið mér áframhaldandi samning en ég ætla að taka mér góðan tíma til að taka ákvörðun.“ Hannes vill ekki gefa upp hvort önnur félög hafi sóst eftir hæfileikum hans en víst er að sex mörk í tveimur U21 árs lands- leikjum auka möguleika á að fleiri félög hugsi sér gott til glóðarinn- ar. „Ég er ekkert að flýta mér að taka ákvörðun. Það hafa orðið breytingar hjá Víking eftir að Roy Hodgson tók við þjálfun liðsins og verið getur að ég fái fleiri tæki- færi en verið hefur en slíkt mun að sjálfsögðu hafa áhrif á ákvörð- un mína þegar þar að kemur.“ Lið Víking er í botnbaráttunni í norsku deildinni en þarf að líkind- um aðeins einn sigur í þeim fjór- um leikjum sem eftir eru til að bjarga sér af hættusvæðinu. ■ FRÆKILEGUR SIGUR Landsliðsmenn Íslands fagna einu af þremur mörkum sem Hannes Sigurðsson skoraði gegn Svíum. Allt hægt þegar sjálfs- traustið er til staðar Hannes Þ. Sigurðsson er eini leikmaður U21-árs landsliðs Íslands sem skorað hefur fyrir liðið hingað til í undankeppni HM. Tvær þrennur í tveimur leikjum hjá leikmanni sem varla kemst í lið sitt í Noregi. ■ ■ LEIKIR  19.15 Grindavík og Breiðablik mætast í Grindavík í Hópbílabikar karla í körfubolta.  19.15 Haukar og Fjölnir mætast á Ásvöllum í Hópbílabikar karla í körfubolta.  19.15 Hamar/Selfoss og ÍR mætast í Hveragerði í Hópbílabikar karla í körfubolta.  19.15 Keflavík og Ármann/Þróttur mætast í Keflavík í Hópbílabikar karla í körfubolta.  19.15 KR og KFÍ mætast í DHL- höllinni í Hópbílabikar karla í kör- fubolta.  19.15 Njarðvík og Þór Þorlákshöfn mætast í Njarðvík í Hópbílabikar karla í körfubolta.  19.15 Tindastóll og Skallagrímur mætast á Sauðárkróki í Hópbílabikar karla í körfubolta.  19.15 Snæfell og Valur mætast í Stykkishólmi í Hópbílabikar karla í körfubolta.  19.15 ÍBV og FH mætast í Vestmannaeyjum í 1. deild kven- na í handbolta. ■ ■ SJÓNVARP  16.45 Handboltakvöld á RÚV.  17.30 Þrumuskot - ensku mörkin á Skjá einum.  17.55 Olíssport á Sýn.  19.10 Inside the US PGA Tour 2004 á Sýn.  19.40 Einvígi á Spáni á Sýn. Sýnt frá einvígi Gregs Normans og Sergio Garcia í golfi sem fram fór á Spáni.  22.00 Olíssport á Sýn.  23.15 Boltinn með Guðna Bergs á Sýn. Það hefur lengi verið grunnt á þvígóða milli spænsku stórliðanna Real Madrid og Barcelona. Sá fjand- skapur kom þó ekki í veg fyrir að fé- lögin vinni saman þegar það hentaði báðum aðilum. Þau tóku höndum saman og leigðu flugvél til að fly- tja brasilísku landsliðs- mennina sem eru í þeirra liðum, Ronald- inho hjá Barcelona og Roberto Carlos og Ron- aldo hjá Real Madrid, heim strax eftir landsleik Brasilíu og Kólumbíu sem fram fór í nótt. Það kostaði félögin rúmar 11 milljónir íslenskar að leigja flug- vélina undir stjörnur sínar. Íslandsmeistarar FH ætlagreinilega ekkert að gefa eftir á næsta tímabili í Landsbanka- deildinni í knattspyrnu. Þeir hafa samið við sóknar- manninn Atla Viðar Björnsson og mark- vörðinn Valþór Hall- dórsson til næstu tveggja ára en áður höfðu Bald- ur Bett, Tommy Nielsen og Jón Þor- grímur Stefánsson framlengt samn- inga sína við félagið. Færeyingarnir Fróði Benjaminsenog Hans Fróði Hansen, sem léku með Fram í Landsbankadeildinni í sumar, munu ekki spila með liðinu á komandi tímabili. Fróði, sem lék 16 leiki á miðjunni hjá Fram og skoraði þrjú mörk, og Hans Fróði, sem lék í vörninni, þóttu ekki standa undir vænt- ingum og því ákváðu forráða- menn Fram að semja ekki við þá á nýjan leik. Ekki er þó útilokað að þeir spili með öðrum liðum hér á landi næsta sumar en samkvæmt heimild- um Fréttablaðsins eru nokkur félög sem hafa áhuga á því að semja við þá. David Beckham hefur beðist af-sökunar á því að hafa reynt að fá gula spjaldið viljandi í leiknum gegn Wales. Beckham viðurkenndi eftir leikinn að hann hefði vísvitandi reynt að fá spjald til að taka út bann í leiknum gegn Aserbaídsjan sem fram fór í dag. Beckham meiddist í leiknum gegn Wales og fannst því tilvalið að slá tvær flugur í einu höggi þar sem hann myndi hvort sem er missa af leiknum. „Þetta var rangt af mér og ég bið alla sem hlut eiga að máli afsök- unar,“ sagði Beckham í gær. Körfuknattleikskappinn DennisRodman, sem er orðinn 43 ára gamall, hefur mikinn áhuga á því að spila á nýjan leik í NBA-deildinni í körfubolta. Rodman hefur þó áhyggjur af því að orðstír hans eyði- leggi fyrir honum því hann hefur löngum haft orð á sér fyrir að vera vandræða- barn innan vallar sem utan. „Allir halda að það sé ekki hægt að þjálfa mig og ég skil ekki hvers vegna. Ég er bara frjálslegur í fasi og hegðun,“ sagði Rodman sem spilaði síðast með Dallas Mavericks árið 2000 en dvöl hans hjá félaginu stóð yfir í heila 29 daga. Alex Ferguson, knattspyrnustjóriManchester United, segist ætla að gera hinn nítján ára gamla Wayne Rooney að besta knattspyrnumanni heims og telur að það gerist á næstu fimm árum. „Hann á enn margt eftir ólært en við meg- um ekki gleyma því að hann er enn mjög ungur. Markmiðið er að gera hann að besta fótbolta- manni í heimi á næstu fimm árum en hann mun ekki fá neina sérmeðhöndl- un. Hann verður gagnrýndur fyrir mistök og hrósað ef hann gerir góða hluti,“ sagði Ferguson. ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM GÆÐAVARA Á BETRA VERÐI! FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK • FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK • FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK LEIÐANDI Í LÆGRA DEKKJAVERÐI Dekkjalagerinn er nú á 11 stöðum um land allt! Sólbakka 8 310 Borgarnesi Miðási 23 700 Egilsstöðum Víkurbraut 4 780 Höfn Gagnheiði 13 800 Selfossi Hlíðarvegi 2-4 860 Hvolsvelli Njarðarnesi 1 603 Akureyri Skeifunni 3c 108 Reykjavík Viðarhöfða 6 110 Reykjavík Melabraut 24 220 Hafnarfirði Iðavöllum 8 230 Keflavík Flugumýri 16 270 Mosfellsbæ ...einfaldlega betri! KÖRFUBOLTI Seattle eignaðist sína fyrstu meistara í atvinnumanna- sporti í 25 ár þegar kvennakörfu- boltalið borgarinnar vann WNBA- deildina í fyrrinótt. Seattle Storm liðið vann oddaleikinn gegn Conn- ecticut Sun, 74-60, en hvorugt liðið hafði orðið meistari áður. Karla- körfuboltalið borgarinnar vann NBA-deildina 1979 en síðan var lið- inn langur tími fyrir íbúa borgar- innar sem fögnuðu vel og lengi þegar titilinn var í höfn. Í liði Storm leika tveir af bestu leik- mönnum deildarinnar leikstjórn- andinn Sue Bird, sem lék nefbrotin alla úrslitakeppnina, og ástralski miðherjinn Laureen Jackson sem er af mörgum talin besta körfu- boltakona heims. Mikilvægasti leikmaður liðsins í úrslitaleikjun- um gegn Sun var þá Betty Lennox sem skoraði 23 stig í lokaleiknum og alls 22,3 stig að meðaltali í leikj- unum þremur. Lennox kom til liðs- ins fyrir tímabilið þegar fyrrum lið hennar var lagt niður en hún hafði flakkað milli liða síðustu ár þar til hún fann sinn samastað í Seattle- borg. Jackson og Bird, sem eru að- eins 23 og 24 ára áttu frábæra leiki á leiðinni í úrslitaeinvígið en það var innlegg hinnar 28 ára gömlu Lennox sem réði öllu í úrslitaleikj- unum. Storm lenti 0-1 undir í ein- víginu en vann báða heimaleiki sína og tryggði sér þar með titilinn. Þjálfari Storm, Anne Donovan, varð þannig fyrsta konan til þess að stjórna liði til sigurs í WNBA- deildinni en önnur af aðstoðarþjálf- urum hennar er einmitt Jennifer Boucek sem lék með Keflavík tímabilið 1997-98 og leiddi liðið þá til sigurs á bæði Íslandsmóti og í bikar. ■ STÓRA STUNDIN Leikmenn Seattle bíða eftir að lokaflautið gjalli og titillinn sé í höfn. Góðkunningi Íslendinga hjá Seattle Storm-meistaraliðinu: Seattle-borg eignaðist langþráð meistaralið FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L Við vissum alltaf að okkar lið var ekki verra en það sænska og þegar sjálfstraustið er í góðu lagi eins og þarna var er allt hægt. ,, 46-47 (30-31) Sport 13.10.2004 21:05 Page 2

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.