Fréttablaðið - 14.10.2004, Qupperneq 54
38 14. október 2004 FIMMTUDAGUR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
11 12 13 14 15 16 17
Fimmtudagur
OKTÓBER
■ TÓNLEIKAR
Ludwig van Beethoven ::: Píanókonsert nr. 5
í Es-dúr, op. 73, „Keisarakonsertinn“
Richard Strauss ::: Ein Heldenleben, op. 40
Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba
Einleikari ::: Freddy Kempf
Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
Einn frægasti
píanisti heims
Gestur Sinfóníuhljómsveitar Íslands í kvöld er Freddy Kempf.
Sigurganga hans hefur verið óslitin frá því að hann tók Tsjajkovskíj-
keppnina með trompi sumarið 1998 og var kallaður „hetja keppninnar“.
Nú er kappinn loks á leiðinni til Íslands.
HÁSKÓLABÍÓI Í KVÖLD, FIMMTUDAGSKVÖLD KL. 19.30Gul áskriftarröð #2
Tónlistarkynning: Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur kynnir efnis-
skrá kvöldsins í Sunnusal Hótel Sögu kl. 18:30. Samverustund Vinafélags
SÍ hefst kl. 18.00. Verð 1000 kr. Súpa og brauð innifalið. Allir velkomnir.
FIMMTUDAGUR 14/10
HÉRI HÉRASON
eftir Coline Serreau
kl 20:00 Rauð kort
GEITIN - eða HVER ER HVER ER SYLVÍA?
eftir Edward Albee
Kl 20:00
FÖSTUDAGUR 15/10
HÉRI HÉRASON
eftir Coline Serreau
kl 20:00 Græn kort
GEITIN - eða HVER ER HVER ER SYLVÍA?
eftir Edward Albee
Kl 20:00
LAUGARDAGUR 16/10
CHICAGO
eftir Kender, Ebb og Fosse
Kl 20:00 Örfáar sýningar eftir
SUNNUDAGUR 17/10
LÍNA LANGSOKKUR
eftir Astrid Lindgren
kl 14:00
BELGÍSKA KONGO
eftir Braga Ólafsson
kl 20:00 - UPPSELT
Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík
Miðasala á net inu:
www.borgar le ikhus. is
Miðasala, sími 568 8000
ALLIR Í LEIKHÚSIÐ - ENGINN HEIMA
HÉRI HÉRASON - BELGÍSKA KONGÓ - GEITIN börn 12 ára og yngri frá frítt í fylgd með fullorðnum
Miðasala í
síma 562 9700
www.idno.is
Fös. 22. okt. kl. 20:00 örfá sæti
Mið. 27. okt. kl. 20:00
AUKASÝNING örfá sæti
Lau. 30. okt.kl. 20:00 örfá sæti
Fös. 5. nóv. kl. 20:00 laus sæti
FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER KL. 20
AFMÆLISTÓNLEIKAR
Sr. Gunnar Björnsson heldur sellótónleika
ásamt Hauki Guðlaugssyni og
Jörg E. Sondermann.
Á efnisskrá eru m.a. verk eftir Handel,
Debussy, Saint-Saëns, Fauré og Brahms.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
Gjafir afþakkaðar en í
anddyri verður tekið við
frjálsum framlögum til
MND-félagsins.
Syngur í Flóanum
Ofbeldi í skjóli heimilisins er við-
fangsefni málþings sem Íslands-
deild Amnesty International,
Mannréttindaskrifstofa Íslands
og Kvennaathvarfið efna til í Nor-
ræna húsinu í dag.
Tilgangur málþingsins er að
kanna hvernig þessum málum er
háttað hér á landi og hvaða leiðir
eru færar til að koma í veg fyrir
refsileysi slíkra brota.
Þau Brynhildur Flóvenz lög-
fræðingur, Gunnleifur Kjartans-
son lögreglufulltrúi, Drífa Snædal
frá Kvennaathvarfinu og Jóhanna
K. Eyjólfsdóttir frá Amnesty
International ræða málin. ■
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Hljómsveitirnar Hljóðlæti, A
Living Lie, Of Stars We Are og
Big Kahuna koma fram á
fimmtudagsforleik í Hinu húsinu.
Ókeypis inn.
20.30 Hlín Pétursdóttir sópran og
Hrefna Eggertsdóttir píanóleikari
flytja íslensk einsöngslög og er-
lendar aríur á Tónahátíðinni í
Þjórsárveri.
21.00 Hörður Torfason verður
með tónleika í Græna hattinum á
Akureyri.
22.00 Ísidór, Lada Sport og
Heróglymur á Grand Rokk.
■ ■ LISTOPNANIR
17.00 Olga Lúsía Pálsdóttir opnar
myndlistarsýningu á grafískum
verkum sínum í Café Cultura. Yfir-
skrift sýningarinnar er Gullið
haust.
■ ■ SKEMMTANIR
21.00 Búðabandið mun skemmta
gestum Glaumbars.
22.00 Þrír trúbadorar, Þórir, Steini
og Pepper spila á Hressó.
22.15 Hljómsveitin Nimbus með
tónleika á Kaffi List, Laugavegi.
22.30 Tónlistarhjónin Kristbjörg
Kari og Björn Árnason munu
skemmta á Traffic í Keflavík.
Dj Andrés á neðri hæðinni á Sólon,
Magni og Sævar með gítarinn á
efri hæðinni.
Hljómsveitin Rain spilar í Pakkhús-
inu á Selfossi.
Tónahátíðin er sannkölluð menn-
ingarhátíð, sem haldin er á hausti
hverju í félagsheimilinu Þjórsár-
veri austur í Villingaholtshreppi.
„Ég held að þetta sé fremsta
menningarhús hérna á Suður-
landi,“ segir Valdimar Össurar-
son, sem skipuleggur starfsemina
í Þjórsárveri, og hann segir Tóna-
hátíðina í ár vera glæsilegri en
nokkurn tímann.
Í ár verða þrennir tónleikar á
dagskrá hátíðarinnar. Þeir fyrstu
verða í kvöld, þegar Hlín Péturs-
dóttir sópransöngkona kemur
fram ásamt píanóleikaranum
Hrefnu Eggertsdóttur.
Annað kvöld mæta síðan þeir
K.K. og Magnús Eiríksson með
sína ljúfu tóna. Síðustu tónleikar
hátíðarinnar verða svo á laugar-
daginn þegar Álftagerðisbræður
mæta til leiks.
„Mér finnst mjög gaman að fá
að halda þessa tónleika í Flóanum,
því þetta eru mínir heimahagar,“
segir Hlín Pétursdóttir, sem er
nýflutt til landsins eftir að hafa
starfað við söng í óperuhúsum og
tónleikahöllum í Evrópu í meira
en áratug.
„Þetta eru fyrstu tónleikarnir
mínir eftir að ég flyt heim. Við
Hrefna ætlum að syngja mikið af
íslenskri tónlist eftir Pál Ísólfs-
son, Jón Ásgeirsson, Atla Heimi
Sveinsson og Hjálmar H. Ragn-
arsson og síðan tónlist úr óperum
og óperettum, svona rétt til að
sýna hvað ég hef verið að fást við
síðustu tíu árin erlendis. Ég verð
líka með tvö frönsk lög og eitt
sænskt.“
Hlín söng hlutverk Músettu í
La Bohéme í Íslensku óperunni
árið 2001. Hún hefur einnig reglu-
lega haldið tónleika hér á landi
síðustu árin.
Undanfarið hefur hún verið
fastráðin í Ríkisleikhúsinu í
München og sungið þar hlutverk á
borð við þjónustustúlkuna Blonde
í Brottnáminu úr kvennabúrinu
eftir Mozart, aðra vondu stjúp-
systurina í Öskubusku eftir Ross-
ini, og Ólympíu í Ævintýrum
Hoffmanns eftir Offenbach. ■
HLÍN PÉTURSDÓTTIR Fyrstu söngtónleikar hennar eftir að hún flutti heim verða á
Tónahátíðinni, árlegri menningarhátíð sem haldin er í félagsheimilinu Þjórsárveri.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Glæpur og refsileysi
■ MÁLÞING
DRÍFA SNÆDAL
54-55 (38-39) Slanga 13.10.2004 20:37 Page 2