Tíminn - 25.11.1973, Page 3
Sunnudagur 25. nóvember 1!I75
TÍMINN
-3
Hóprannsókn
Hjartaverndar
ó að Ijúka 1976
Rannsóknarstöö Hjarta v'erndar
hóf starfsemi síöla árs 1967. Hefur
þar veriö unnið bæði aö rannsókn-
um á fólki i Reykjavik og utan af
landsbyggðinni.
Alls hafa verið geröar á Rann-
sóknarstöö Hjartaverndar 30 þús.
rannsóknir, en margir einstakl-
ingar hafa vcrið rannsakaðir oft-
ar en einu sinni.
1 Reykjavik hafa alls um 17 þús.
manns verið rannsakaðir, og var
það fólk fætt á árunum 1907-1935.
Undanfarið ár hefur verið unnið
að rannsókn á fólki úr Arnes- og
Rangárvallasýslum og fólk þaðan
verið boðað til stöðvarinnar i
Reykjavik. Um 80% kvenna úr
Arnessýslu mættu til skoðunar,
en nokkru færri karlmenn, og
telst þetta viðunandi mæting.
Einnig hefur fólki á aldrinum
41-60 ára úr sýslum og kaupstöð-
um vestan og norðanlands verið
boðiö til rannsóknar undanfarin
ár.
H jarta verndunarsamtökin -
áætla að ljúka rannsóknum allt
land árið 1976. Til þess þarf aukið
starfslið, og áætlað er að ráða tvo
lækna til viðbótar til Rannsóknar-
stöðvar Hjartaverndar.
Sjúkraskrá með niðurstöðum
rannsókna um hvern þátttakenda
er send til heimilis- eða héraðs-
læknis, enda er Rannsóknarstöð
Hjartaverndar ekki hugsuð sem
lækningastöð heldur leitarstöð.
Eftir að fyrsta áfanga hóprann-
sóknar Hjartaverndar lauk 1968.
hefur stöðugt verið unnið að úr-
vinnslu gagna. sem safnað hefur
verið, en slik úrvinnsla er mjög
tlmafrek.
1 undirbúningi er að Hjarta-
vernd taki þátt i alþjóðlegu sam-
starfi á vegum Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar
(WHO) um rannsóknir á hækkuð-
um blóðþrýstingi, en nú taka 14
þjóðir þátt i þessum rannsóknum.
Þriðja alþjóðlega þingið um
æðakölkun, sem haldiö var i Vest-
ur-Berlin i október, sóttu þrir full-
trúar frá Rannsóknarstöð Hjarta-
verndar. Það voru þeir Nikulás
Sigfússon yfirlæknir, Davið
Daviösson prófessor og Þorsteinn
Þorsteinn lifefnafræðingur, og
kynntu þeir fyrstu niðurstöður
mælinga á blóðfitu islenzkra karl-
manna á aldrinum 34-60 ára.
Þessi blóðfituefni eru talin meðal
mikilvægustu áhættuþátta hjarta-
og æðasjúkdóma.
Þess má geta, að Rannsókna-
stöð H jartaverndar er eini
staðurinn hér á landi, þar sem
menn eru rannsakaðir reglulega.
Þeim sem taka þátt i kerfis-
bundnum rannsóknum er rann-
sóknin að kostnaðarlausu, en
þeim er gefinn kostur á að greiða
300 kr. til styrktar stöðinni.
. Gullbrmgu- og K.josarsysla
3. Mýra- og Borgarfjaróarsýsla
4. Eyjaíjarðarsýsla
. Sigluíjöróur
6. árnessýsla
7. Pnngárvallnsýsia
-vi « .v •• ’ - •• *•••',• •?••*
A svæöunum innan feitu linanna hafa þegar fariö fram hóprannsóknir á fólki á vissu aldurskeiöi.
Electrolux
FLEI
DEKR
fást á öllum helztu
hjólbarðasölum landsins
Laugavegi 178 — Simi 86-700
EBRI