Tíminn - 25.11.1973, Blaðsíða 3

Tíminn - 25.11.1973, Blaðsíða 3
Sunnudagur 25. nóvember 1!I75 TÍMINN -3 Hóprannsókn Hjartaverndar ó að Ijúka 1976 Rannsóknarstöö Hjarta v'erndar hóf starfsemi síöla árs 1967. Hefur þar veriö unnið bæði aö rannsókn- um á fólki i Reykjavik og utan af landsbyggðinni. Alls hafa verið geröar á Rann- sóknarstöö Hjartaverndar 30 þús. rannsóknir, en margir einstakl- ingar hafa vcrið rannsakaðir oft- ar en einu sinni. 1 Reykjavik hafa alls um 17 þús. manns verið rannsakaðir, og var það fólk fætt á árunum 1907-1935. Undanfarið ár hefur verið unnið að rannsókn á fólki úr Arnes- og Rangárvallasýslum og fólk þaðan verið boðað til stöðvarinnar i Reykjavik. Um 80% kvenna úr Arnessýslu mættu til skoðunar, en nokkru færri karlmenn, og telst þetta viðunandi mæting. Einnig hefur fólki á aldrinum 41-60 ára úr sýslum og kaupstöð- um vestan og norðanlands verið boðiö til rannsóknar undanfarin ár. H jarta verndunarsamtökin - áætla að ljúka rannsóknum allt land árið 1976. Til þess þarf aukið starfslið, og áætlað er að ráða tvo lækna til viðbótar til Rannsóknar- stöðvar Hjartaverndar. Sjúkraskrá með niðurstöðum rannsókna um hvern þátttakenda er send til heimilis- eða héraðs- læknis, enda er Rannsóknarstöð Hjartaverndar ekki hugsuð sem lækningastöð heldur leitarstöð. Eftir að fyrsta áfanga hóprann- sóknar Hjartaverndar lauk 1968. hefur stöðugt verið unnið að úr- vinnslu gagna. sem safnað hefur verið, en slik úrvinnsla er mjög tlmafrek. 1 undirbúningi er að Hjarta- vernd taki þátt i alþjóðlegu sam- starfi á vegum Alþjóðaheil- brigðismálastofnunarinnar (WHO) um rannsóknir á hækkuð- um blóðþrýstingi, en nú taka 14 þjóðir þátt i þessum rannsóknum. Þriðja alþjóðlega þingið um æðakölkun, sem haldiö var i Vest- ur-Berlin i október, sóttu þrir full- trúar frá Rannsóknarstöð Hjarta- verndar. Það voru þeir Nikulás Sigfússon yfirlæknir, Davið Daviösson prófessor og Þorsteinn Þorsteinn lifefnafræðingur, og kynntu þeir fyrstu niðurstöður mælinga á blóðfitu islenzkra karl- manna á aldrinum 34-60 ára. Þessi blóðfituefni eru talin meðal mikilvægustu áhættuþátta hjarta- og æðasjúkdóma. Þess má geta, að Rannsókna- stöð H jartaverndar er eini staðurinn hér á landi, þar sem menn eru rannsakaðir reglulega. Þeim sem taka þátt i kerfis- bundnum rannsóknum er rann- sóknin að kostnaðarlausu, en þeim er gefinn kostur á að greiða 300 kr. til styrktar stöðinni. . Gullbrmgu- og K.josarsysla 3. Mýra- og Borgarfjaróarsýsla 4. Eyjaíjarðarsýsla . Sigluíjöróur 6. árnessýsla 7. Pnngárvallnsýsia -vi « .v •• ’ - •• *•••',• •?••* A svæöunum innan feitu linanna hafa þegar fariö fram hóprannsóknir á fólki á vissu aldurskeiöi. Electrolux FLEI DEKR fást á öllum helztu hjólbarðasölum landsins Laugavegi 178 — Simi 86-700 EBRI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.