Tíminn - 25.11.1973, Qupperneq 18

Tíminn - 25.11.1973, Qupperneq 18
18 TÍMINN Sunnudagur 25. nóvember 1973 H lenn og mal ' c lefni Fundur Hedtofts og Emils Jónssonor — t morgunljómann er lagt af stað... Þeir komast nú að vfsu ekki langt á hlaupum sfnum þessir hestar, þar sem þeir eru geröir úr dauöu og kötdu efni. En þó er líf I þeim, og maður hlustar ósjálfrátt eftir hófadyn. (Timamynd Gunnar). Hver verður næstur? I endurminningabók Emils Jónssonar, fyrrv. utanrikisráð- herra, sem hann nefnir: Á milli Washington og Moskvu, rifjar hann m.a. upp sérstæðan fund þeirra Hedtofts, þáv. forsætis- ráðherra og leiðtoga danskra jafnaðarmanna, i Kaupmanna- höfn veturinn 1948. Frásögn Emils er á þessa leið: „Arið 1948 var ég staddur i Kaupmannahöfn, eina dagstund i febrúarmánuði... Til Kaup- mannahafnar hafði ég ekki komið 110 ár, en var þar áður vel kunnugur, frá minum námsárum. Þetta var sem sagt min fyrsta koma þangað eftir að heims- styrjöldinni lauk, þeirri siðari, og fýsti mig að sjá, hverjar breyt- ingarhefðu þar á orðið. Eg ákvað þvi að ganga um borgina og litast um. Það var laugar- dagur og kalsaveður og fátt fólk á ferð útivið. Ég heimsótti fyrst minn gamla skóla, verkfræðiháskólann við Silfurtorg og gekk sfðan út að „Vötnunum”, sem svo eru kölluð. Þar var reyndar heldur engan mann að sjá, sennilega veðursins vegna, en ég rölti þarna góða stund. Sá ég þá allt i einu mann koma á móti mér. Sá gekk álútur og þungbúinn, og leit hvorki til hægri né vinstri. Þegar maðurinn kom nær, þóttist ég bera kennsl á hann, og þótti mér hann þó ólikur sjálfum sér, eða þvi sem hann var, þegar ég sá hann siðast, fyrir mörgum árum. Þetta reyndist rétt tilgetið hjá mér. Maðurinn var Hans Hedtoft forsætisráð- herra. Varð þarna fagnaðar- fundur. Ég hafði þekkt Hans Hedtoft frá þvi fyrir 1930, er hann var framámaður i unghreyfingu danska Sosialdemokrataflokksins og hafði okkur jafnan verið vel til vina. Eftir að við höfðum heilsazt og skipzt á almennum kveöju- oröum spurði ég hann beint, hvað væri að, hvað væri um að vera, hvernig stæði á þvi að hann, sjálfur forsætisráðherrann, væri hér einn úti að labba, i þessu lika veðri, og hvers vegna hann væri svo óvenjulega þungbúinn á svipinn, eins og allar syndir veraldarinnar hvildu á herðum hans, hann sem væri venjulega svo léttur og kátur. „Það skal ég segja þér”, sagði hann „ég hélzt bókstaflega ekki við inni, ég varð að fara út og kæla mig, og ég er _ feginn að veðrið er eins kaldranalegt og það er. Ég er að koma frá Amaliuborg, frá Friðriki kóngi. Það er embættisskylda min að tilkynna honum þegar einhver stórtiðindi eru að gerast, og nú eru vissulega stórtiðindi að gerast. Rikisstjórnin fékk i morgun simskeyti frá trúnaðar- mönnum sínum i Tékkóslóvakiu um að innan fárra daga myndu kommúnistar i Tékkóslóvakiu taka öll völd i landinu i sinar heldur, og landið þá hverfa austur fyrir járntjaldið”, og siðan bætti hann við og lagði þunga áherzlu á orðin: „og hver verður næstur?” Ótti Hedtofts Emil Jónsson heldur áfram frá- sögn sinni: „Eftir að við höfðum talað þarna saman i nokkrar minútur stakk Hedtoft upp á þvi að við löbbuðum út á skrifstofu flokks- ins.sem er þarna ekki langt frá, við Rosenörnsallé — Þar sem nú væri laugardagseftirmiðdagur myndi allt starfsfólkið farið, hann hefði sinn lykil að skrif- stofunni, og við gætum setið þar i ró og ræði og rabbað saman. Ég hafði ekkert sérstakt við að vera, og vildi gjarnan ræða ofur- litið frekar um viðburðina, sem i vændum væru i Tékkóslóvakiu og varnarmál V-Evrópu yfir- leitt, svo að við fórum saman út á flokksskrifstof una. Það kom fljótt i ljós, að áhyggjusvipurinn á Hedtoft var ekki að ástæðulausu. Hann var skelfdur. Hann rifjaði upp fyrir sér — og mér — þróun mála frá siðasta hluta styrjaldarinnar og árunum eftir striðið, hvernig hvert landið eftir annað hefði komizt undir kommúnistiska stjórn, þrátt fyrir aö enginn meirihluti væri þar fyrir þessu stjórnarfari. Frá hausti 1944 til vors 1948, Ungverjaland Pólland, Rúmenía, Búlgaria og nú siðast hefðu þetta orðið örlög Tékkó- slóvakiu. Varnir Vestur-Evrópurikjanna margra væru I molum, svo að maður tali nú ekki um skandi- navisku löndin. Menn heföu verið bjartsýnir eftir sigurinn og margir hefðu takmarkað vopna- búnað sinn, og væru þvi alls óvið- búnir að mæta nýtti hættu. Tilraunin til myndunar varnar- bandalags Norðurlanda virtist i algerri óvissu og hvað væri þá næst eða eins og hann hafði áður sagt, hver yrði næstur, og loks, er unnt að koma i veg fyrir, að nokkur verði næstur. Hann lauk þessu tali sinu meö þvi, að hann sæi aðeins eina leið, einn mögu- leika og hann væri sá, að Vestur-- Evrópuþjóðirnar mynduðu varnarbandalag ef Norðurlöndui- um tækist ekki að ná samkomu- lagi. Sameinaðar væru þær sterkar, en sundraðar, ein og ein, mundu þær ekkert viðnám geta veitt”. Ógleymanlegur dagur Emil Jónsson segir ennfremur: „Mér var ekki kunnugt, um, hvort nokkur viðtöl hefðu átt sér stað, á þessu stigi, um möguleika á nokkru bandalagi i þessa átt , og eg efast um, að Hedtoft hafi haft hugmynd um það heldur. Hitt tel ég miklu liklegra að þetta hafi aðeins verið hans hugsun þá. Hannhafði séö þennan möguleika af sinu hyggjuviti, sem þó var orðinn að veruleika einu ári seinna.Þaðmá telja mjög liklegt, að atburðir i Tékkóslóvakiu um þetta leyti hafi orðið til þess að vekja fleiri til umhugsunar, og að þeir hafi beiniinis orðið til að ýta undir stofnun Atlantzhafsbanda- lagsins. Að minnsta kosti get ég ■sagt það fyrir mitt leyti, að mér var ekki kunnugt um að neitt heföi verið rætt um þetta við isl. rikisstjórnina, enda hafa sjálfsagt fáir vitað hvað i vændum var I Tékkóslóvakiu þegar þetta viðtal okkar Hetofts átti sér staö 21. febrúar 1948. Nú, atburðarásin i Tékkó- slóvakiu varð svo eins og Hedtoft hafði verið gerð grein fyrir, og nokkru siðar fór svo að berast orðrómur um það til tslands að ýms riki i Vestur-Evrópu hefðu áhyggur þungar af ástandinu, og þaö með, að viðræður hefðu átt sér stað milli þessara rikja um, hvernig við skyldi bregðast.Ekki munu þessar viðræður þó hafa byrjað að taka á sig fast form fyrr en seinni hluta ársins og um ára- mótin, nema hvað Brusselsamn- ingurinn milli Englands, Frakk- lands, og Beneluxlandanna var gerður vorið 1948, og varnar- bandalag Norðurlanda var ekki til fulls úr sögunni fyrr en i janúar 1949. Við Hedtoft sátum þarna og röbbuðum saman i 2-3 klst. og bar raunar ýmislegt fleira á góma. En þó að annað væri drepiðá, kom þetta ævinlega upp aftur og aftur: hvað er hægt að gera til að forðást þessa stórkost legu hættu, sem virðist alveg yfir- vofandi. Það var einkennileg tilviljun að ég skyldi hitta Hedtoft þarna á götu, og enn einkennilegri til- viljun, að það skyldi verða á þess- um örlagarika degi, þegar hinu kommúnistiska samfélagi var að bætast nýtt EvrópurikiT hópinn. Þessum degi hefi ég aldrei gleymt”. Breytt ástand í Evrópu Þessi sögulega endurminning Emils Jónssonar er ekki sizt at- hyglisverð sökum þess, að hún dregur upp glögga mynd af þvi ástandi, sem rikti i Evrópu á árunum 1947-49. Hún skýrir betur en langt mál þær ástæður, sem leiddu til stofnunar Atlantshafs- bandalagsins. En jafnframt sýnir hún þá stórfelldu breytingu, er hefur orðið siðan. Striðsóttinn, sem grúfði yfir Evrópu veturinn 1948, er horfinn. Sambúð þjóða þar er orðin allt önnur en hún var á þessum tima. Sambúð risa- veldanna tveggja, Bandarikjanna og Sovétrikjanna, hefur breytzt enn meira. Þó standa vonir til, að batinn eigi eftir að verða enn meiri, þvi að menn vænta góðs árangurs af öryggismálaráð- stefnu Evrópu og af afvopnunar- viðræðunum i Vinarborg. Um það má deila endalaust hver sé orsök hins breytta ástands i Evrópu.Areiðanlega er þáttur Atlantshafsbandalagsins stór i þeim efnum. Um það verður að visu aldrei ótvirætt fullyrt.hvortRússarhefðu haldið vestur yfir „Járntjaldið”, ef ekki hafði verið þar sameiginlegum vörnum að mæta. En hvað, sem þvi liður, telja margir hlut Atlantshafsbandalagsins svo stóran I hinu nýja friðsamlega ástandi og andrúmslofti i Evrópu, að þeir telja nauðsynlegt að halda þvi áfram, unz annað full- komnara öryggiskerfi er fyrir hendi. Að þvi er stefnt með öryggismálaráðstefnunni og við- ræðunum i Vin. Hedtoft og erlend herseta Það kemur glöggt fram i frá- sögn Emils Jónssonar, að Hans Hedtoft, var mikill hvatamaður að stofnun varnarsamtaka vest- rænna þjóða.Fyrst beitti hann sér fyrir varnarbandalagi Norður- landa, eftir að það mistókst var hann eindreginn stuðningsmaður Atlantshafsbandalagins. En hann átti jafnframt þátt i þvi að móta sérstakt viðhorf smáþjóðanna til bandalagsins. Eftir stofnun Atlantshafsbandalagsins, bentu margir ráðamenn þess á, að .danski herinn væri svo ófull- Vominn að'Danmörk væri sama og ovarin, ef ekki kæmi erlendur her til viðbótar. Það myndi einnig styrkja hinar sameiginlegu varnir, ef erlendur her væri stað- settur i Danmörku. Hedtoft hafn- ai hins vegar þessum kröfum. Hann markaði i staðinn þá stefnu, að ekki skyldi staðsettur er- lendur her i Danmörku á friðar- rimum. Danir myndu þvi aðeins kveðja til erlendan her, að ráðizt hefði verið á landið eða árás á það talin yfirvofandi aö mati Dana sjálfra. Undir öðrum kringumstæðum kæmi er- lend herseta i Danmörku ekki til greina. Hedtoft taldi svo mikilvæga þá yfirlýsingu Atlantshafsbanda- lagsins, að árás á eitt aðildar- rikið væri árás á þau öll, að hún myndi nægja til að bægja hugsan- legum árásaraðila frá Dan- mörku. Reynslan hefur staðfest það mat hans. Óneitanlega hefur þessi afstaða Hedtofts reynzt Dönum hagstæð. Danir hafa alveg losnað við þær deilur, sem jafnan hafa fylgt er- lendum herstöðvum. Þótt nú riki glundroði I dönskum stjórn- málum, er hann þó vafalaust litill I samanburði við það, sem hefði orðið, ef einnig hefði verið deilt um erlendar herstöðvar, sem hefðu verið staðsettar i Dan- mörku. Aðvörun Norður-Noregs A þeim tima, sem Noregur gekk I Atlantshafsbandalagið fór Verkamannaflokkurinn þar með völd. Forystumenn hans mörkuðu sömu afstöðu til erlendrar her- setu og Hedtoft hafði gert i Dan- mörku. Þeir hafa fylgt henni jafnan siðan. Þó hefur það stöðugt kveðið við af hálfu sér- fræðinga Atlantshafsbandalags- ins.og fleiri, að varnir Norður- Noregs séu hinar veikustu. 1 þvi sambandi er oft bent á, að hefðu Rússar áhuga á nokkru landi af hernaðarlegum ástæðum, væri það Norður-Noregur. Raunar þarf ekki annað en að lita á landa kortið til að sannfærast um það. Areiðanlega myndi það styrkja mjög varnir N-Noregs, ef þar væri staðsettur verulegur er- lendur herafli til viðbótar hinum veikbyggða norska her,er þar er nú. Sá herafli Norðmanna er svo vanmegna, að Rússar gætu leikið sér að þvi að hertaka Norður- Noreg á fáum klukkustundum, ef þeirkærðusig um það. Norðmenn hafa þó jafnan neitað þvi að leyfa erlenda hersetu i Norður-Noregi. Þeir hafa treyst á, að það myndi nægja til að halda hugsanlegum árásaraðilum frá Norður-Noregi, að slik árás yrði talin árás á öll riki Atlantshafsbandalagsins og yrði henni mætt samkvæmt þvi. Það er þessi yfirlýsing Atlants- hafsbandalagsins, sem hefur ver- ið aðalvörn Norður-Noregs siðustu 20 árin. Hún hefur reynzt fullnægjandi. Söguleg för til Washington Það voru fleiri stjórnmála- menn en danskir og norskir, sem fylgdu þeirri stefnu á áður- nefndum árum, að ekki ætti að leyfa erlenda hersetu, þrátt fyrir hið uggvænlega útlit I alþjóða- málum, sem þá var rikjandi og glögglega er lýst i áðurgreindri frásögn Emils Jónssonar. Það er einmitt rakið i umræddri bók Emils Jónssonar, að islenzkir stjórnmálamenn voru þá sama sinnis. Emil Jónsson segir i bók sinni frá för hans, Eysteins Jóns- sonar og Bjarna Benediktssonar til Washington til þess að fá það staðfest, að aðild að Atlantshafs- bandalaginu fylgdi ekki herseta á friðartimum. Þeirfengu þar skýr svör frá Dean Acheson, þáv. utanrikisráðherra Bandarikj- anna. Svörin voru þau, að ekki kæmi til mála að þátttöku i At- lantshafsbandalaginu fylgdi það skilyrði, að erlendur her eða her- stöðvar yrðu á Islandi á friðar- timum.. Það var fyrst eftir að þetta hafði verið staðfest i Washington, að islenzkir stjórn- málamenn ákváðu að beita sér fyriraðild Islands að Atlantshafs- bandalaginu. Það gerðist svo tveimur árum siðar, að islenzkir stjórnmála- menn mátu striðshættuna meiri sökum Kóreustyrjaldarinnar en starfsbræður þeirra i Noregi og Danmörku. Þess vegna var kvaddur hingað erlendur her. En þannig var frá þvi gengið, að hægt væri að láta hann fara með 1 1/2 árs fyrirvara. Astæðan var sú, að honum var ekki ætluð lengri dvöl en meðan striðshættan var mest. Sú stefna átti þá enn sterk itök í öllum flokkum, að hér ætti ekki að vera her á friðartimum. Stefnan frá 1949 Viðræður þeirra Emils Jóns- sonar og Hedtofts, sem hinn fyrr- nefndi segir frá i bók sinni, varpa næsta skýru ljósi á það, hve miklu friðvænlegra ástandið er i heiminum nú en það var á árun um I kringum 1950. Sem betur fer, er þar um tvennt ósambæri- legt að ræða. Samt voru Islend- ingar ákveðnir i þvi á árunum 1948-49 að hafna erlendri hersetu og Danir og Norðmenn hafa aldrei vikið frá þeirri stefnu. Stefnubreytingin er þvi ekki meira en litil hjá þeim, sem voru andvígir hersetu 1948-49, en vilja hafa hana nú, þegar friðarhorfur eru allt aðrar og miklu betri. Meiri stefnubreytingu er næsta erfitt að hugsa sér. Sannleikurinn er lika sá, að Island er ekki varnarlaust þótt herinn fari meðan það er aðiii að Atlantshafsbandalaginu. Landið nýtur þá enn þeirrar verndar, sem Danir og Norðmenn telja sér mikilvægasta, þ.e. þeirrar yfir- lýsingar Atlantshafsbandalags- ins, að árás á eitt aðildarrikið sé árás á þau öll. Sú yfirlýsing héfur nægt til að tryggja þátttöku- rikjum þess frið og öryggi á þriðja áratug. Það er þvi kominn timi til, að farið sé að fylgja stefnunni, sem var svo réttilega mörkuð við inngönguna i Atlantshafsbanda- lagið, að hér se' ekki her á friðar- timum. En að sjálfsögðu ber að gera það á þann hátt, að við rækjum áfram þær skyldur, sem þátttakan I Atlantshafsbanda- laginu leggur okkur á herðar. Það voru sönn orð, sem Emil Jónsson sagi á Alþingi 1970: „Þótt við höfum góða reynslu af samskiptum við varnarliðið og þau hafi farið batnandi, þá er okkur hollast að hafa ekki erlent herlið hér á landi til langdvalar”. Þ.Þ.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.