Tíminn - 25.11.1973, Side 26

Tíminn - 25.11.1973, Side 26
Jafn sjálfsagt, að fáni íslands blakti á Olympíuleikvanginum og hjá Sameinuðu þjóðunum FYRIR skemmstu var Gisli Halldórsson, for- seti ÍSÍ, kjörinn for- maður Ólympiunefndar íslands. Af þvi tilefni sneri iþróttasiðan sér til Gisla og iagði fyrir hann nokkrar spurningar um málefni Ólympiunefnd- arinnar og ÍSÍ. — Telur þú heppilegt, aft sami mafturinn sé formaðurö 1. og for- seti Í.Sit..? — Ég hef nú átt sæti i ólympiu- nefnd Islands i 20 ár og tel það ekki óeðlilegt, að forseti t.S.f. sé af og til formaður nefndarinnar. Enda hefur það átt sér stað áður, t.d. var fyrirrennari minn, Benedikt G. Waage, formaður nefndarinnar á árunum 1949-’53. Veena bess að samskipti t.S.I. og Ólympiunefndarinnar eru mjög náin, er þessi ráðstöfun að mörgu leyti heppileg. T.d. hefur það ávalit verið talið rétt, að fram- kvæmdastjóri t.S.t. væri einnig ráðinn framkvæmdastjóri Ó.t. og aðsetur hennar væri á skrifstofu sambandsins. Framkvæmda- stjórn tS.t. á að tilnefna 2-3 menn i nefndina, og forseti sambands- ins er sjálfkjörinn. Fer þvi ekki hjá þvi, að sljórn t.S.t. hlýtur að láta þessi mái mjög til sin taka. Þá fellur starf t.S.t. að mörgu leyti i sama farveg og starf ó.t. Helzta verkefni nefndarinnar er að sjá um, að sem flest sér- sambönd eigi þess kost að senda þátttakendur á Ólympiuleika, svo og aðrar iþróttagreinar, sem ekki hefur verið stofnað sérsamband um, en þá fer t.S.t. með umboð þeirra greina á erlendum vett- vangi. ólympiunefndin á að tryggja fjárhagslegan grundvöll ferðarinnar, og er það ávallt eitt aðalverkefnið að safna fjármun- um til þess að greiða þann kostnað. Þá hefur Ó.t. ávallt styrkt sérsamböndin nokkuð til þess að auka þjálfun landsliða okkar, sem tekið hafa þátt i leik- unum. Vegna þess sem nú er sagt, hefur ávallt verið talið rétt, að formenn sérsambanda væru ekki formenn Ó.t. Formaður nefndar- innar hefur þvi ávallt verið einn úr hópi þeirra, sem tilnefndir hafa verið i nefndina af t.S.t. eða fráfarandi Ólympiunefnd. Ef við litum á það, hvernig Norðurlöndin hafa skipað sinum málum i þessu efni, þá er það ákveðið i lögum sænska iþrótta- sambandsins, R.F., að forseti þess sé einnig formaður Ólympiu- nefndarinnar, og þannig er það lika i Finnlandi. t Danmörku hefur það lengst af verið sami maðurinn, þar til nú fyrir ári, að formaður danska iþróttasambandsins var kosinn varaformaður, en formaður Gisli Halldórsson, forseti tSt. Myndin er tekin á skrifstofu tSt I tþróttamiöstöðinni I Laugardal. (Tfma- mynd GE). danska iþróttasambandsins var kosinn varaformaður, en for- maður var kosinn fulltrúi Alþjóðaólympiunefndarinnar i Danmörku, hinn kunni iþrótta- maður Ivar Vind. t Noregi var það ákvæði i lögum, að sami maðurinn skyldi vera formaður á báðum stöðum, en nýlega var lög- unum breytt þannig, að þetta væri ekki skylda, en jafnframt var ákveðið, að á Ólympiuleikun- um væri forseti norska iþrótta sambandsins æðsti maður, og kæmi þar fram fyrir hönd Ólympiunefndarinnar. Af þessu má sjá, að allir frænd- ur okkar á Norðurlöndum telja heppilegt og nauðsynlegt, að þarna séu mjög náin tengsl á milli. — Ilyggst þú beita þér fyrir ein- hverjum nýmælum i starfi ó.t. með tilliti til þeirrar gagnrýni, sem komið liefur fram á störf nefndarinnar? — Varðandi þá gagnrýni, sem kom fram á sambandsráðsfundi tSt, tel ég ekki að hún hafi verið alvarlegs eðlis. Það helzta var, að einstaka fundarmaður taldi, að nefndin i heild hefði haldið of fáa fundi. En samkvæmt starfsregl- um i framkvæmdanefnd, sem i eiga sæti 5menn á að halda fundi minnst mánaðarlega, en öll nefndin tvo fundi á ári. t nefnd- inni voru 15 menn, en 17 eiga sæti I núverandi nefnd. Þá var það og gagnrýnt, að ekki skyldi vera læknir með i ferðinni til Munchen. Fráfarandi nefnd var mikill vandi á höndum að afla fjár til þessarar farar, vegna þess að nú tók lang-fjölmennasti hóp- ur, sem nokkru sinni hefur farið á leikana þátt iþeim Eftir hinn frækilega sigur handknattleiks- manna i undanúrslitum ólympiu- leikanna á Spáni, þar sem, þeir unnu sér rétt til þátttöku, var sýnt, að miklu meira fjármagn þurfti til ferðarinnar en nokkru sinni fyrr. ólympiunefndin og fjáröflunarnefnd, er skipuð hafði verið áttu þvi mikið verk fyrir höndum. En fyrir ötult starf þess- ara aðila, og sérstaklega formanns Ó.t., safnaðist mikið fé i frjálsum framlögum, og sveitar- stjórnir og rikisvald létu aukið fé af hendi rakna. Ber vissulega að þakka það. En þrátt íyrir það, varð nefndin að halda sparlega á þeim fjármunum, sem hún hafði handa milli. Alls fóru 45 manns á leikana, þar af 21 i liði handknttleiks- manna. Vissulega verður að telj- ast eðlilegt.að læknir fari með svo stórum hópi iþróttamanna, sem keppa dag eftir dag i erfiðum leikum. Hér var aðeins um fjár- hagsatriði að ræða, þar sem nefndina vantaði á þessum tima nokkur hundruð þúsund krónur, svo endar næðu saman. Þá hafði einnig, eins og endranær, verið talað við Dani um að vera okkur innan handar með þessa þjón- ustu, en það hefur áður verið talið fullnægjandi. Vegna þess hve keppni nú var ströng hjá handknattleiksmönn- um, yar sú þjónusta i þessum efnum, sem fékkst á staðnum, ekki fullnægjandi, og mun nefnd- in að sjálfsögðu draga sinar ályktanir með tilliti til þess i næstu ferð. Það hefur þegar komið fram ósk nefndarmanna um að fjölga fundum, umfram sem reglugerð segir fyrir um, og verður það gert. Nú, þegar svo stutt er siðan ég tók við formennsku i nefndinni, er erfitt um vik að tala um nýmæli, sem ég muni beita mér fyrir. Nefndin hefur ákveðnar starfs- reglur að fara eftir, en þar er kveðið svo á i 2. gr.: „Starfssvið Ólympiunefndar ísl. er að útbreiða og vernda Ólympiuhreyfinguna, að undir- búa, ákveða og stjórna þátttöku tslendinga i Ólympiuleikum. Ólympiunefnd skal fylgja áhuga- mannareglum I.S.I., og hún skal hafa nána samvinnu við fram- kvæmdastjórn t.S.t. og sérsam- böndin.” Eins og sést á þessari grein, eru starfssviði okkar sett ákveðin takmörk. tþróttahreyfingin i heild er stöðugt að útbreiða ólympiuhugsjónina með sinu við- tæka starfi, bæði innanlands og á sviði alþjóðasamvinnu. Ólympiu- nefndin starfar i anda þessarar hugsjónar með þátttöku okkar i leikunum. Aðalstarf nefndarinn- ar er að afla þess fjár, sem þarf til þess að standa straum af þeim mikla kostnaði, sem er þvi sam- fara að taka myndarlega þátt i leikunum. Þar sem Ólympiuleikarnir verða næst i Austurriki og Kanada, tel ég að við eigum að standa að myndarlegri þátttöku i næstu leikum. Við erum að eign- ast magra ágæta skiðamenn, sem vonandi eiga eftir að ná enn betri árangri á næstunni, svo við getum sent myndarlegan hóp til þátttöku i vetrarleikunum Siðastvoru þeir báðir i Japan, en þangað þótti of dýrt að senda keppendur, miðað við getu okkar þá. Það ætti að vera sérstök ánægja að senda fjölmennan hóp til Kanada. En eftir leikana ættu islenzku kepp- endurnir að fá tækifæri til að taka I

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.