Tíminn - 25.11.1973, Side 30
30
TÍMINN
Sunnudagur 25. nóvember 1973
Sýning á björgunartækjum.
| Tíminn er j
• peningar f
f AuglýsidT |
| íTÍmanum f
MMMMWMtMtMMMMt—♦•••
Ráðstefna R.K.I.
um sjúkraflutning
UM SÍÐUSTU helgi efndi Rauði
kross íslands til ráðstefnu um
sjúkraflutning, undirbúningur
ráðstefnunnar var i samráði við
heilbrigðismálaráðuneytið. Ráð-
stefnuna sóttu 131 manns úr öllum
landshlutum, fulltrúar þeirra aö-
ila, sem yfir sjúkraflutningatækj-
um ráða, fulltrúar samtaka,
stofnana og fyrirtækja, læknar,
hjúkrunarkonur og leikmenn.
Ráðstefnan hófst meö þvi, að
varaformaður R.K.l. Kjartan L.
Jóhannsson héraðslæknir, setti
ráðstefnuna. Síðan flutti
heilbrigðismálaráðherra,
Magnús Kjartansson, ávarp, þar
sem hann lagði áherzlu á þann
mikilvæga hlekk i heilbrigðis-
málum þjóðarinnar, sem sjúkra-
flutningar væru, ræddi um sam-
starf heilbrigðisyfirvalda og al-
mennings, þátt almennra sam-
taka og þakkaði R.K.Í. fyrir
frumkvæðið i málinu.
A ráðstefnunni voru flutt ýmis
erindi. Age Rörmark frá Dan-
mörku, varaforseti alþjóðasam-
takanna Interrescue, hélt erindi
um leið sjúklingsins frá slysstað
til sjúkrahúss og mikilvægi þess
að allir hlekkir þeirrar keðju
væru jafnsterkir. Benti hann á
ýmsa þætti sem mikilvægt væri
að gera umbætur á.
Tore Larsen frá Scanrescue i
Noregi flutti erindi um skipulag
sjúkraflutninga og reglur um þá i
Noregi, sérstaklega um þær kröf-
ur, sem gerðar væru til bifreiða
til að tryggja öryggi sjúklinga.
Tom Hansen frá Rauðakrossin-
um i Horten i Noregi, flutti erindi
um þær kröfur, sem gera þyrfti til
sjúkraflutningamanna, til að þeir
væru hæfir til að gegna sinu hlut-
verki, en það mál hefur mjög ver-
ið á dagskrá i Noregi.
Þá flutti Tryggvi Helgason er-
indi um sjúkraflug. Lagði hann
mikla áherzlu á bætta flugvelli,
að mögulegt gæti verið að hafa
lækni með i sjúkraflug og að veitt
verði aðstoð til kaupa á sjúkra-
flugvélum með jafnþrýstibúnaði,
sem væri höfuðnauðsyn, ef fyllsta
öryggis sé gætt.
Sigurjón Jóhannesson, skóla-
stjóri á Húsavfk, skýrði frá skipu-
lagi Rauðakross deildar Húsavik-
ur á sjúkraflutningi i Þingeyjar-
sýslum, og sérstaklega þátt sjálf-
boðins liðs i sambandi við flutn-
ingana. Lagði hann áherzlu á, að
sjálfboðin lið úti um landið verði
aðstoðuð i starfi, m.a. með styrk
til sjúkrabilakaupa.
Páll Sigurðsson ráðuneytis-
stjóri sagði i erindi sinu að þróun
sjúkraflugninga hefði verið
tilviljanakennd, og gera þyrfti
umbætur vegna þeirra, sem
þjónustunnar ættu að njóta. Hann
lagði mjög áherzlu á mikilvægan
þátt sveitarfélaga i þessu sam-
bandi, nema hvað snerti sjúkra-
flug, þar sem skipuleggja þyrfti
máliðumland allt. Einnig þyrfti,
að bæta samband þeirra, sem
sjúkraflutninga önnuðust, og
sjúkrastofnana, i þvi skyni að
gera þá siðarnefndu virkari.
Valdimar Hansen læknir skýrði
frá reynslunni við námskeið fyrir
sjúkraflutningamenn i Reykja-
vik, en allviðtæk námskeið fóru
þar fram fyrr á þessu ári.
1 sambandi við ráðstefnuna var
sýning á sjúkrabilum, björgunar-
og sjúkratækjum.
Þátttakendur skiptust i um-
ræðuhópa, þar sem tekin voru
fyrir til umræðu hin ýmsu vanda-
mál, i sambandi við sjúkraflutn-
ing i dreifbýli og þéttbýli, i lofti, á
láöi og legi. Rætt var um, hvaða
leiðir mætti fara til sameiginlegr-
ar úrlausnar mála, t.d. i sam-
bandi við innkaup, stöðlun, lækk-
un tolla á tækjum, neyðarnúmer i
slmakerfi landsins o.fl.
Þá var rætt um möguleika á
sjúkraflutninganefnd fyrir allt
landið og hugsanlega ráðningu
manns, sém unnið gæti ráðu-
Sambyggði
kæli- og
frysti-
skápurinn
TR 70/55
hentar i
öll eld-
hús þar
sem gólf-
rými er
takmarkað.
Gólfrýmið,
sem hann
þarf,
aðeins
60x60 cm,
er ekki
meira en
venjulegur
kæliskápur.
Engu að
siður
rúmar
hann 380
lítra.
Skipting
i 210 lítra
kælirúm
og 170 litra
frystirúm
er þraut-
hugsuð
með þarfir
fjölskyld-
unnar i
huga.
SA
STÆRSTI
Electrolux
Kælirinn
er fyrir
daglega
þörf
fjölskyld-
unnar
sjálfvirk-
afþýðing,
þrjár
færanlegar
hillur.
Grænmetis-
skúffa.
Osta- og
smjörhólf.
Tvær
hillur i'
hurö,
önnur með
flösku-
haldara.
Frystir-
inn
geymir
grænmeti
og kjöt
til lengri
tíma.
Þrjár
körfur,
sem draga
má út.
Hraðfrysti-
hólf.
Hillur
úr sléttu
áli. Tvær
hillur
i hurð.
AUGLV5INGADEILD TIMANS
LITIR: Hvítf, Ijósgrænt og koparbrúnt (lakkbrennt)
ATHUGIÐ:
Tvö óháð frystikerfi
Vörumarkaðurinnhf.
| ArmOLA 1A - RKVKJAVlK • SlMI U112
Sjómanna-
bókinlSGB
bóra Blú
Bára blá er að lang mestu leyti skrifuð af
sjómönnum og er hún úrval af greinum og
sögum úr Sjómannablaðinu Vikingi á ár-
unum 1939—1944.
Fæst hjá bóksölum um allt land og hjá for-
laginu. Sendum gegn póstkröfu.
Sjómannablaðið Víkingur
Bárugötu 11 — Simi 1-56-53 — Reykjavík