Tíminn - 24.02.1974, Page 7
Sunnudagur 24. febrúar 1974.
TÍMINN
7
Hún hefur
helgað sig
því að
líkna köttum
ÞAÐ eru' fleiri en Guörún A.
Simonar, sem láta sér annt um
ketti. Tii er fóik, sem beinlinis
hefur helgað lif sitt þvi að hlynna
að köttum, sem annars myndu
ienda á flækingi. Við ætlum að
segja hér ofurlitið frá danskri
konu, er orðin er alkunn i heima-
landi sinu af þessum sökum.
Það gerðist fyrir sjö árum, að
köttur, er datt niður úr eplatré,
vakti meðaumkun hennar. Siðan
hefur hún verið vakin og sofin að
hjúkra köttum, semvillzt hafa að
heiman eða kærulaust og
harðbrjósta fólk hefur beinlinis
fleygt frá sér. Og marga nótt
vaknar hún við, að bill nemur
staðar við húsdyr hennar, og
þegar hún fer á fætur og lítur út,
hefur þar verið skilinn eftir
kettlingur, eða jafnvel margir
kettlingar. Hún hefur tvo sima, og
þeir þagna varla frá morgni til
kvölds. Þeir, sem hringja, ætla
ýmist að biðja hana að taka að sér
ketti, sem þeir eru i vandræðum
með, eða leita hjá henni ráða um
meðferð á köttum. Árið 1973 veitti
hún viðtöku þúsund köttum.
Þessi kona heitir Inga Sören-
sen. Ketti þá, sem hún tekur að
sér, aflúsar hún fyrst af öllu og
lætur sfðan gera þá ófrjóa. Hún
elur þá eftir það i nokkurn tfma
og gælir við þá, og þegar þeir eru
orðnir gæfir og fallegir, kemur
hún þeim til fólks, sem vill hafa
kött til frambúðar á heimili sínu.
Allir, sem kött fá hjá henni, verða
að undirrita skjal, þar sem þeir
heita þvf að skila kettinum aftur
til Ingu, ef þeim kynni að snúast
hugur. En reynslan er sú, að til-
tölulega mjög fáir hafa skilað
henni köttum sinum.
Inga segir, að það sé hreint ekki
allra meðfæri að ala upp
kettlinga, þótt allir hafi mest
gaman af þeim f fyrstu. Á barna-
heimilum sé til dæmis miklu
heppilegra að hafa fullorðinn,
rólyndan kött. Roskið fólk hefur
lfka oft meiri ánægju af vöxnum
ketti, segir hún. Og það er miklu
skynsamlegra að fá kött, sem
búið er að gera ófrjóan, heldur en
taka við kettlingi frá einhverjum
kunningja af handahófi.
Inga Sörensen lætur þá, sem fá
henni kött, greiða sér sex hundruð
krónur, án tillits til kyns eða
aldurs, en það gjald nægir þó
engan veginn upp i þann kostnað,
sem hún hefur af köttunum. Sjálf
er hún ekkja, og þess vegna hafa
kattavinir tekið sig saman um að
greiða henni mánaðarlegt tillag,
svo að hún geti staðið straum af
liknarstarfi sinu i þágu kattanna.
flúrpípur
litur
so
Hlylegur litur
Mikið Uósmagn
Það hefir sýnt sig að litur 30 á flúrpíp-
um fró OSRAM hentar einkar vel við
íslenzkar aðstæður.
Mest Ijósmagn allra flúrpera fró OSRAM
80 Im/W miðað við 40 W Ijósrör.
(Ath. litur 20 gefur sama Ijósmagn en
liturinn er blórri og því ekki eins hlý-
legur).
Góð reynsla á skrifstofum, leikfimisöl-
um, fundarherbergjum, stigahúsum,
vinnustöðum, fyrir útilýsingu o.fl. o.fl.
Litarsamsetning: Mikið gult, sem gef-
ur mikið Ijósmagn. Rautt, sem veitir hlý-
legan blæ.
Góður litur gegn skammdegi og kulda.
OSRAM
HIRB-FOCO
Til sjós
og lands
Hiab-Foco kraninn hefur valdiö straumhvörfum í sjávarplássum nágranna-
þjöðanna. Einföld stjórnun, þægileg vinnuaðstaða, ótrúleg lyftigeta og
ótakmarkaðir möguleikar við staðsetningu, einfalda alla erfiðleika við út-
og uppskipun - hvort sem Hiab-Foco stendur á bryggju eða i báti.
Fullkomin varahluta og viðgerðaþjónusta.
VELTIR HF.
SUÐURLANDSBRAUT 16. SÍMI 35200