Tíminn - 24.02.1974, Blaðsíða 30
Þvl miður cr endanlega búið að koma i veg fyrir að sjónvarpsmyndin
„Magical Mystery Tour” komi á skjáinn hér heima..
Úr pop
pressunni
28. marz n.k. verður sýnd i brezka
sjónvárpinu heimildarkvikmynd
um hljómsveitina Sweet og nefn-
ist hún „All that Glitters”. t
þessum sama mánuði mun koma
á markaðinn með Sweet ný LP-
plata, sem ber titilinn „We’re
Revolting” eða Sweet F.A.” t
marzbyrjun mun hljómsveitin
halda hljómieika i Glasgow,
Manchester, Bristol og London.
t undirbúningi er ný hljómplata
með Paul Simon. Hér er um að
ræða samansaí'n af lögum, sem
voru hljóðrituð á hljómleikum i
Bandarikjunum 1973.
Paul MacCartney hefur verið i
Manchester nú að undanförnu,
þar sem hann hefur stjórnað upp-
töku á nýrri plötu með bróður sin-
um, Mike McGear. Mike mun
syngja lög eftir bróður sinn og
sjálfan sig. Úr þvi að við erum
farin að tala um MacCartney, sak-
ar ekki að geta þess, að hann hef-
ur látið hafa það eftir sér, að það
sé ekki útilokaö að Bitlarnir komi
saman að nýju.
Elton John hefur i huga að fara
I hljómleikaferð um Bretland i
vor. Bill Haley og hljómsveitin
hans, sem nefnir sig Comets,
munu einnig fara i hljómleika-
ferðalag um Bretland, en það
verður i lok þessa mánaðar.
Þessi góði og gamli rokkari
verður sennilega ekki i neinum
vandræðum með að flytja gömlu
slagarana sina, þótt hann sé orð-
inn 49 ára.
Bretar spyrja þessa dagana:
Kemur Presley til Bretlands,áður
en hann verður fimmtugur? Hann
er fæddur 1936. Og fyrst við erum
að tala um gamla rokkara, þá er
ekki úr vegi að skjóta þvi hér inn
i, að ný tveggja laga plata er
komin á markaðinn með Neil
Sedaka og titillagið nefnist „A
Little Loving”..
Skýrt var frá þvi i siðasta þætti
af.Með á nótunumt að i þessum
þætti yrði viðtal við Hljóma, en
þvi miður birtist það ekki fyrr en i
næsta þætti.
— B.V.
Bill Haley er svo sannarlega ckki dauöur úr öllum æöum ennþá, en
Bretar spyrja. „Hvenær fáum viö Presley”
AFMÆLIS-POP FESTIVAL í TÓNABÆ
— Þóttur Jónasar R. verður helgaður óratugnum 1960—'70
Nk. laugardag heldur Jónas R.
Jónsson áfram við að rekja feril
dægurtónlistarinnar i sjónvarps-
þætti sinum „Ugla sat á kvisti”.
Viðfangsefnið i þessum þætti er
áratugurinn 1960—’70, og dregnar
verða fram i dagsljósið filmur
með þeim hljómsveitum, islenzk-
um og erlendum, sem áttu hvað
mestum vinsældum að fagna á
áðurnefndu timabili, en mest
mun verða byggt upp á isl. hljóm-
sveitum.
„Mér fannst réttara að sýna
þessar hljómsveitir, eins og þær
litu út á þessu timabili, úr þvi að
efni var fyrir hendi,” sagði Jónas,
„heldur en að fá strákana til að
koma saman að nýju i sjónvarps-
upptöku, auk þess sem við fáum
betri viðmiðum, hvernig islenzka
popið var á þessum árum með
þvi að fara þannig að málunum.”
Jónas kvaðst ekki hafa verið i
neinum vandræðum með að fá
nægilegt efni, eins og sjá má á
þvi, að þegar var búið að gróf-
vinna þáttinn, reyndist hann
spanna yfir helmingi lengri tima
•heldur en honum er ætlaður i
dagskránni, en þátturinn mun
verða I eina klukkustund.
Að sjálfsögðu munu hinir einu
og sönnu Bitlar koma þarna fram
og flytja nokkur lög, en þau eru
úr kvikmyndunum „A Hard Days
Night” og „Help”. „Áætlað var
að sýna nokkur atriði úr
sjón varpsmyndinni þeirra
„Magical Mystery Tour”, sagði
Jónas, „ég hringdi þeirra erinda
til Lundúna og talaði við fram-
kvæmdastjóra Apple, en hann
sagði, að þessi umrædda mynd
yrði ekki sýnd framar, og væri
það samkvæmt ósk Bitlanna
sjálfra”.
Ævintýrivar meöal þeirra hljómsveita, sem „gengu aftur” I Tónabæ sl. sunnudag. Tfmamynd: Róbert
Um þessar mundir á Tónabær fimm ára afmæli. í tilefni af því var sett á svið afmælis festival, þar sem
fjórar hljómsveitir komu fram, en þar af voru tvær, sem ekki eru lengur viö lýði, og er þar átt viöNátt-
uru og Ævintýri. Auk þeirra létu Hljómar og Pelican til sin heyra.
Hljómsveitirnar fengu ágætis móttökur, en á milli atriða voru kynntlög i diskótekinu frá þessu fimm
ára tlmabili, sem Tónabær hefur starfaö.
Einhvers staðar las ég það, að Shady Owens myndi syngja með Hljómum. Þvi miður varð ekkert af
þvi, en Erlingur Björnsson lét sig ekki vanta.
Einhver halli mun vera á rekstri Tónabæjar, en það er vonandi, að það aftri þvi ekki,aö þessu sam-
komustaður æskufólksins verði rekinn áfram.
Þessi sjónvarpsmynd var mjög
umdeild, er hún var sýnd á sinum
tima, en sá,er þetta skrifar, man
eftir þvi, að Paul MacCartney
sagði i útvarpsviðtali, að þessi
ofangreinda sjónvarpsmynd
myndi þykja kærkominn gestur
á sjónvarpsskermi eftir svona 10
ár.
Þótt „Magical Mystery Tour”
hafi fengið misjafna dóma, þá eru
flestir sammála um, að lögin i
myndinni séu með þvi bezta, sem
Bitlarnir hafa látið frá sér fara,
og nægir þar að nefna lög eins og:
„The fool on the hill” og „I am the
Valrus” að ógleymdu titillaginu.
Vikjum þá aftur að sjónvarps-
þætti Jónasar, en auk Bitlanna
verð sýndar kvikmyndir með
Rolling Stones og Beach Boys.
Stones-myndin er tekin, er þeir
voru að byrja sinn ferii. Aðalefni
þáttarins verður þó myndir með
islenzkum hljómsveitum, og þar
koma fram: Hljómar, Flowers,
Ævintýri, Náttúra, Óðmenn,
Dumbó og Logar.
Flowers eru meðal þeirra hljómsveita, sem við fáum að sjá f næsta
þætti Jónasar R. Jónssonar.
AAagical Mystery Tour:
EKKI LEYFT AÐ SÝNA ÚR
SJÓNVARPSMYND BÍTLANA
í ÍSL. SJÓNVARPINU......