Tíminn - 24.02.1974, Qupperneq 37
Sunnudagur 24. febrúar 1974.
TÍMINN
37
Miklar framkvæmdir
fyrirhugaðar
á Eskifirði
Rætt við Jóhann Klausen, sveitarstjóra um Eskifjörð
Á dögunum átti blaðamaður
Timans leið um á Eskifirði, vegna
komu nýs togara til Kaupfélags
Héraðsbúa og Hraðfrystihúss
Eskifjarðar h.f. Var þá um leið
notað tækifærið til að hafa tal af
Jóhanni Klausen, sveitarstjóra á
Eskifirði, og inna fregna af opin-
berum framkvæmdum og öðru
hjá sveitarfélaginu. Fórust hon-
um orð á þessa leið.
Kaupstaöur
siðan 1786
— Sögu Eskifjarðar má rekja
tvö hundruð ár aftur i timann, en
bæjar- eða verzlunarréttindi fær
staðurinn árið 1786, á sama tima
og t.d. Reykjavik og nokkrir aðrir
staðir hér á landi. Siðan hefur
verið hér byggð, en þróunin var
frekar hæg þar til á striðsárunum
siðari, er fiskverð fór hækkandi
og almennur hagur landsmanna
batnaði.
Aðalatvinnan hefur hér verið
við fisk. Segja má, að sú útgerð,
sem hér er nú, eigi rætur að rekja
allt til ársins 1958, er við fengum
hingað fyrsta Hólmanesið, en
frystihúsið hafði fram til þess
tima búið við mjög óvissa hráefn-
isöflun. Þetta var stálskip, sem
smiðað var i Noregi. Eftir það fór
ástandið að lagast.
— Ekki þarf svo að rekja sild-
arárin, þau þekkja allir, en sildin
fyrir Austurlandi veitti óhemju
vinnu og verðmætum i þennan
landshluta.
— Þegar sildveiðunum lauk, þá
kom mikill afturkippur i atvinnu-
lifið á Austfjörðum, en þó má
segja.að það hafi gengið vel hjá
atvinnufyrirtækjunum að jafna
sig á breyttu ástandi.
— Með hverjum hætti tekur
sveitarfélagið þátt i atvinnu-
rekstri á Eskifirði.
Sveitarfélagið
styður atvinnulífið
— Það má segja það, að sveit-
arfélagið hafi átt forgöngu um að
hrinda af stað þvi fyrirtæki, er
heitir Hraðfrystihús Eskifjarðar
hf., þ.e.a.s. á sinum tima árið 1945,
og lagði hreppurinn þá fram
verulegt hlutafé. Ennfremur hef-
ur hreppsfélagið lagt sitt fram,
með þvi að ganga i ábyrgðir. Til
dæmis er það, að þegar skuttog-
arinn Hólmatindur var keyptur
hingað, þá tók hreppsfélagið á sig
verulega ábyrgð þess vegna.
Sama má segja um ýms önnur at-
vinnufyrirtæki og aðra báta, sem
keyptir hafa verið hingað.
Hreppsfélagið hefur gengið i bak-
ábyrgð.
Helztu atvinnufyrirtæki á Eski-
firði er nýtt hraðfrystihús, en það
var tekið i notkun eftir endurnýj-
un nú fyrir nokkru. Þetta er m jög
H—flK
•
.
“ w .vá BK IpM . j * i
;V ||
iiill r n
Nýtizku vélum hefur veriö komið fyrir I hraðfrystihúsinu, og sjást hér nokkrar þeirra á myndinni, sem
tekin er i flökunarsainum.
Hraöfrystihús Eskif jaröar eftir breytinguna. Húsiö hefur starfaö f um 30 ár.
Jóhann Klausen, sveitarstjóri á Eskifirði.
fullkomið hús og stenzt allar
hreinlætiskröfur, sem nú eru
gerðar til slikra húsa. Þá er hér
sildar- og fiskimjölsverksmiðja,
sem nú bræðir loðnu. Siðan koma
tvö járnsmiðaverkstæði, nokkur
trésmiðaverkstæði, netaverk-
stæði og iðnaðarstofur.
Þá eru hér ýmsar útgerðar- og
fiskverkunarstöðvar, en landbún-
aður er svo til enginn. Það er að-
eins einn sveitabær i hreppnum,
sem búið er á.
Mjólk og aðrar landbúnaðaraf-
urðir fáum við frá Fljótdalshér-
aði.
Milljónatugir
til gatnagerðar
— Helztu fyrirhugaðar fram-
kvæmdir hjá hreppsfélaginu er
framhald á varanlegri gatnagerð.
Til gatnagerðar var varið 15
milljónum króna siðastliðið ár.
Þá var lagt varanlegt slitlag á
götur, samtals 2,5 km, og má
segja, að sú framkvæmd hafi
gjörbreytt útlit bæjarins til hins
betra. Gerum við ráð fyrir að
vinna i sumar fyrir um 22 milljón
ir, ef nægjanlegt lánsfé fæst til
framkvæmdanna.
Þá er i undirbúningi bygging á
nýju barnaskólahúsi. Barnaskól-
inn okkar er mjög gamalt hús,
yfir sextiu ára gamalt og endur-
nýjun er þvi brýn. Reiknum við
með þvi að geta byggt nýtt skóla-
hús á þessu ári.
1 undirbúningi er einnig býgg-
ing verkamannabústaða á Eski-
firði. Bygging leiguhúsnæðis, sem
við munum taka þátt i.
Heilbrigðismál
i góðu horfi
— Um heiibrigðismál er það að
segja, að við höfum hér læknisbú-
stað og þokkalega aðstöðu fyrir
lækni okkar.
Það hefur gengið á ýmsu með
að fá lækna hingað, en tæplega er
hægt að segja,að við höfum orðið
læknislausir með öllu. Nú höfum
við fengið ágætan lækni i héraðs-
læknisembættið, sem við reiknum
með að halda, Eggert Brekkan.
Þó teljum við, að þetta læknishér-
að sé of stórt fyrir einn lækni, en
læknishéraðið spannar yfir Eski-
fjarðarhrepp, Helgustaðahrepp
og Reyðarfjarðarhrepp. A þessu
svæði eru um 1700 ibúar.
Allir læknar, sem gegnt hafa
embættinu, kvarta undan álagi,
þrátt fyrir að við séum með hér-
aðshjúkrunarkonu i fullu starfi og
tvær aðrar til aðstoðar, ef með
þarf, aðra á Eskifirði og hina á
Reyðarfirði.
— Þá erum við svo heppnir að
hafa tannlækni starfandi hér, svo
það má segja,að þokkalega sé séð
fyrir heilsugæzlu.
Utgerö og
hafnargerð
— Hvað með vertiðina?
— Það munu verða gerðir út
héðan 3 stórir bátar, og auk þess
tveir togarar. Við tókum fyrir
nokkrum árum allmikið fyrir i
hafnarframkvæmdum, en þeim
var nú aldrei að fullu lokið. Ger-
um við ráð fyrir að geta lokið
þeim á þessu ári. Eftir er að
koma vatni á hafnarmannvirkin,
svo eitthvað sé nefnt, leggja raf-
magn og siðan að steypa þekju á
svæðið. Hinu er svo ekki að levna,
að við erum illa settir með fiski-
bátabryggju, þar sem frystihúsið
er, þvi bryggjan þar er alveg að
verða ónýt. Höfum þvi miður ekki
fengið fármagn til endurnýjunar
á henni á þessu ári.
Teljum við það mjög brýnt, aö
ekki dragist öllu lengur að endur-
nýja þessar bryggjur, sagði
Jóhann Klausen, sveitarstjóri á
Eskifirði, að iokum.
JG
Alla
fyigfc
Tímanu'
onur
t m