Tíminn - 24.02.1974, Qupperneq 38
38
TÍMINN
Sunnudagur 24. febrúar 1974.
Kertalog frumsýnt
Miðvikudaginn 27. febrúar
verður leikritið „Kertalog” eftir
Jökul_ Jakobsson frúmsýnt hjá
LeikfélagiReykjavikur.
Kertalog er annað þeirra
tveggja leikrita, sem fengu
verðlaun i leikritasamkeppni
Leikfélags Reykjavikur i tilefni
75ára afmælis félagsins á s.l. ári.
Var verðlaununum skipt milli
höfundanna Jökuls Jakobssonar
og Birgis Sigurðssonar. Verð-
launaleikrit Birgis, „Pétur og
Rúna” var sýnt hjá Leikfélaginu i
fyrra. Astæðan fyrir, að Kertalog
var ekki sýnt fyrr, er að hæfa
þótti að skipta verðlauna-
leikritunum milli leikára.
Stefán Baldursson leikstýrir
Kertalogi, en Sigurður Rúnar
Jónsson gerði tónlist og Jón
borláksson leikmynd. Leikendur
i þessu leikriti eru fleiri en yfir-
leitt hafa verið í leikritum Jökuls
Jakobssonar. Eru þeir sextán
alls. Aðalhlutverkin eru tvö. Það
eru tveir táningar, leiknir af
önnu Kristinu Arngrimsdóttur cg
Arna Blandon, en hann hefur ekki
áður leikiö hjá Leikfélaginu.
Aðrir, sem fara með stór hlutverk
eru Guðrún Stephensen, Karl
Guðmundsson, Pétur Einarsson,
Steindór Hjörleifsson, Brynja
Benediktsdóttir, Guðrún As-
mundsdóttir og Þorsteinn
Gunnarsson.
Leikritið gerist aðallega á
sjúkrahúsi, og fjallar einkum um
samskipti fólksins innbyrðis á
hælinu og við ættingja þeirra. Að
sögn leikstjóra er þetta leikrit
mjög aðgengilegt og auðskilið og
hæfir stórum hópi áhorfenda.
Fyrst eftir að æfingar hófust, var
höfundurinn sjálfur til aðstoðar
leikstjóra.
Vigdis Finnbogadóttir leikhús-
stjóri sagði, að ætlunin væri að
sýna eingöngu verk eftir islenzka
höfunda hjá Leikfélaginu á Þjóð-
hátiðarárinu og færi vel á að
byrja á leikriti eftir Jökul, þvi
hann hefði alltaf verið metskáld
Leikfélagsins og aðsókn að
verkum hans verið með
eindæmum góð og engin ástæða
til að ætla að öðruvisi verði með
þetta leikrit.
Aður hafa verið sýnd hjá Leik-
félaginu eftirtalin leikrit eftir
Jökul: Pókók, Hart 1 bak (sem
var sýnt við metaðsókn) Sjóleiðin
til Bagdad, Sumarið ’37 og
Dóminó.
Hið nýja leikrit Kertalog er að
sögn Vigdisar og leikstjórans
Stefáns Baldursson frábrugðið
örðum leikritum Jökuls á margan
hátt. Stefán varðist allra frétta
um, hvort væri nektarsena i leik-
ritinu, sagðist ekki ætla að afla
leikritinu aðsóknar á þeim grund-
velli, en vitaskuld væri fólk i mis-
miklum fötum i leiknum, rétt eins
og gengur og gerist.
Næstu leikrit, sem sýnd verða
hjá Leikfélagi Reykjavikur eru
„Minkarnir eftir Erling Halldórs-
son og „Islendingaspjöll” eftir
Jónatan Rollingstón Geirfugl.
Framlag Leikfélagsins til Lista-
hátiðar I sumar verður leikrit
eftir Birgi Sigurðsson, „Selurinn
hefur mannsaugu”.
Þann 7. marz n.k. verður svo
Siðdegisstund I Iðnó. Verður hún
helguð þjóðsögum, lesnar verða
upp draugasögur og sungið.
Vigdis sagði að samkvæmt
skoöanakönnun, sem hún hefði
gert áður en Leikfélagið byrjaði
að hafa slikar siðdegisstundir,
hefði fólk viljað slika þættr , en
aðsókn hefði aftur á móti ekki
verið sem skyldi.
—gbk.
Tímarit
hlutverkum i þessari frásögn,
en einnig koma þar við sögu
Noregur, Sviþjóð og Sovétrikin.
Þá eru hér rakin afskipti
danskra sendimanna af sam-
bandsmálinu”.
Þetta er allt rétt. Greinin er
byggð á frumheimildum, sem
eru óvéfengjanlegar. Og hún
ætti að geta glöggvað skilning
einhvers á þvi, hvað lagt er til
grundvallar i millirikjamálum.
Ég held, að þetta sé i fyrsta
sinn, sem við fáum skjallegar
sannanir frá fyrstu hendi á
borð við þessi orð Cummings
deildarstjóra, þar sem hann
var að færa rök að þvi, að
Bandarikin ættu að hafa sér-
stakan erindreka forseta sins
við lýðveldisstofnunina:
„Ég er þeirrar skoðunar, að
núverandi samskipti okkar við
island, sem byggist á dvöl hers
okkar i landinu o.s.frv. auk
hagsmuna okkar eftir striö, svo
sem beiðni um flota- og flug-
bækistöðvar i samræmi við
áætlanir, sem hlotið hafa sam-
þykki yfirherráðsins og forset-
ans. krefjist þess, að við látum
sérstaklega til okkar taka i til-
efni þessa sögulega atburðar i
islenzku þjóðlifi.”
Það lá mikið við og að visu
dugði ekki hinn sérlegi sendi-
maður forsetans til að
Banndarikin fengju 99 ára
samning um Keflavikurflugvöll,
flotastöð i Hvalfirði og sjóflug-
vélar á Skerjafirði, svo sem
þeir fóru fram á og ýmsir góðir
menn vildu orðalaust fallast á.
En þægilegheitin höfðu sin áhrif
samt.
Bretan þorðu i hvoruga
löppina að stiga við lýðveldis
stofnunina eða aðdraganda
hennari þar sem þeir vildu
hvorki stggja fslendinga né
Kristján konung. Rússar voru
með hundshaus og þóttust sjá.að
hér væri verið að stofna ame-
rikst leppriki, og þvi bönnuðu
þeir fulltrúa sinum að bera
fram kveðjur eða óskir frá
stjórn rikisins en leyfðu honum
þó að óska okkur góðs frá eigin
brjósti.
Þeir, sem halda að ástir takist
milli þjóða, svo að viðskipti
þeirra ráðist og mótist af slikum
kærleika, hefðu gott af að lesa
þessa ritgerð. Bandarikin höfðu
ráð á að brosa og vera elskuleg,
þvi að þau treystu aðstöðu sinni
til að hafa gott af okkur. Rússar
fóru i fýlu, þvi að þeir sáu enga
leið til að geta notað okkur.
Bretar tvistigu, þar sem þeir
vissu að:
Svo stopult er margt i
venslum og vild,
— vinnirðu einn, þá týnirðu
hinum.
Og þeir vildu auðvitað engu
tapa. í viðskiptum þjóða gildir
það eitt, i hverju hagsmunirnir
sjást, og það á jafnt við um
verslunarviðskipti sem önnur
skipti. Hins vegar eiga eðlileg
samskipti og viðskipti að geta
verið báðum góð og leitt til vin-
áttu, svo sem kynning sæmi-
legra manna gerir yfirleitt.
Ýtarleg heimildaskrá fylgir
þessari ritgerð bórs.
Enn er i Skirni skemmtileg
ritgerð eftir Peter Hallberg um
sildarsögu Halldórs Laxness,
Guðsgjafaþulu. Ég er vist i hópi
þeirra, sem þykir sumt, sem
skrifað er um bókina skemmti-
legra en þulan sjálf. En grein
sina endar Hallberg með tilvitn-
un og segir siðan:
„Þannig enda Guðsgjafaþula.
Sögufólk Halldörs Laxness hef-
ur áur leitað að slikum tón. Það
er sá tónn sem á að gefa okkur
lausn á leyndardóm lifsins,
veita okkur innsýn i „Hið eina”
bak við hina marglitu „ásýnd
hlutanna,” bakvið alla atburðii
allar vaxmyndir. Það er sá
tónn, sem aldrei verður fund-
inn”.
Það er erfitt að vera skamm-
sýnn og breyskur maður og þvi
er von að menn þrái algilt
lausnarorð. Menn hafa leitað
þess i trúarbrögðum — bæði
kirkjulegum og pólitiskum.
Sumum fullnægir það — stund-
um takmarkaðan tima —
stundum til lokadægurs. Það
þarf manndóm til að vita um
smæð sina og takmörk en halda
þó áttum, þola óvissuna og efa
semdirnar. Trúr sinni lifsstefnu
og lifsköllun. Sem betur fer
hefur þó margur skyn til að
greina mun á réttu og röngu án
þess að halda sig alvitran eða
heimta lausn á öllum gátum i
einu. Hvað væri þá eftir?
Þá er enn i Skirni andmæla-
ræða Bjarna Guðnasonar við
doktorsvörn Jónasar Kristjáns-
son og nokkrir ritdómar. And-
mælaræðan er eins konar rit-
dómur lika, þó að hún sé samin
og flutt.áður en doktorsitgerðin
nær til almennings.
Ég álit, að efni þessa siðasta
Skirnis sé mikill umræðugrund
völlur fyrir áhugamenn um is-
lenska menningu, og þá einkum
islenskar bókmenntir, sem jafn-
an eru veigamikill þáttur þjóð-
menningar og spegla aðra þætti
hennar. Það fer auðvitað sitt á
hvað,að hve miklu leyti menn
eru sammála þvi.sem þar stend
ur, en lestur þessarar bókar
leiðir okkur til skilnings á þvi,
sem er að gerast. Þvi verð-
skuldar Skirnir að vera almennt
lesinn.
F’yrir mitt leyti get ég sagt um
hverja sem er af greinum þessa
árgangs, að betur þykir mér
lesið en ólesið. Vonandi heldur
Skirnir áfram sem stefnir. Þá
verður hann bæði skemmtilegur
og menntandi.svo sem vera ber.
li.Kr.
Æþjóðleikhúsið
KÖTTUR ÚTI i MVRI
i dag kl. 15.
DANSLEIKUR
5. sýning i kvöld kl. 20.
Rauð aðgangskort gilda.
Ath. aðeins 3 sýningar eftir
vegna brottfarar Róberts
Arnfinnssonar.
KLUKKUSTRENGIR
þriðjudag kl. 20. Næst
siðasta sinn.
DANSLEIKUR
6. sýning miðvikudag kl. 20.
Næst siðasta sinn.
LEÐURBLAKAN
fimmtudag kl. 20.
LIÐIN TÍÐ
fimmtudag kl. 20.30.
Miðasala 13.15-20.
Simi 1—1200.
FLÓ A SKINNI
i kvöld. — Uppselt. Næst
fimmtudag.
KERTALOG
eftir Jökul Jakobsson.
Tónlist: Sigurður Rúnar
Jónsson. Leikmynd: Jón
Þórisson. Leikstjóri:
Stefán Baldursson.
Frumsýning miðvikudag
kl. 20,30.
SVÖRT KÓMEDÍA
föstudag kl. 20.30.
VOLPONE
laugardag kl. 20,30.
Aðgöngumiðasalan i Iðnó
er opin frá kl. 14.
Simi 1-66-20.
ISLENZKUR
TEXTI
Aðalhlutverk: Malcoim
McDowell.
Heimsfræg kvikrnynd, sem
vakið hefur mikla athygli
og umtal. Hefur alls staðar
verið sýnd við algjöra met-
aðsókn, t.d. hefur hún ver-
ið sýnd viðstöðulaust i eitt
ár i London og er sýnd þar
ennþá.
Stranglega bönnuð innan 16
ára.
Sýnd kl. 5 og 9 Hækkað verð.
Barnasýning kl. 3.
Teiknimyndasafn.
Engin sýning
vegna verkfalls V.R.
Engin sýning
vegna verkfalls V.R.
TIMINN
ER
TROMP
r
MICHAEL CURT
CRAWF0RD • JURGENS
GENEVIEVE GILLES
“Hetto-
Goodbye”
Bráðskemmtileg amerisk
gamanmynd.
Leikstjóri: Jean Negulesco
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Víkingarnir
og dansmærin.
Hörkuspennandi sjóræn-
ingjamynd.
hafnarbíó
sfmi IB444
Ekki núna elskan
Not now darling
Sprenghlægileg og fjörug,
ný, ensk gamanmynd i lit-
um, byggð á frægum skop-
leik eftir Ray Cooney.
Aðalhlutverk: Leslie
Philips, Ray Cooney, Moria
Lister.
ISLENZKUR TEXTI.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.15.
Barnasýning kl. 3:
Fjársjóður
múmíunnar
Tónabíó
Simi 31182
Engin sýning
vegna verkfalls V.R.
sími 3-20-75
Engin sýning
vegna verkfalls V.R.