Fréttablaðið - 17.12.2004, Qupperneq 2
2 17. desember 2004 FÖSTUDAGUR
Portúgalskir verkamenn við Kárahnjúka:
Hundrað snúa ekki
aftur úr jólafríi
KÁRAHNJÚKAR Um það bil hundrað
portúgalskir verkamenn frá Kára-
hnjúkum, úr 250 manna hópi
Impregilo sem sendur var heim í
jólafrí í fyrradag, snúa ekki aftur til
starfa við virkjanasvæðið.
Oddur Friðriksson, aðaltrúnað-
armaður starfsmanna, segir málum
þannig háttað að samningar þeirra
sem ekki eiga afturkvæmt við
starfsleigufyrirtæki séu útrunnir
og því ekki hægt að halda uppi nein-
um kröfum um að þeir fái vinnu
sína aftur. „Annað sem hangir á
spýtunni er fyrirætlun Impregilo
um að bæta við fleiri kínverskum
verkamönnum, en það er alfarið háð
stjórnvaldsákvörðun Vinnumála-
stofnunar hvort það verður heimil-
að,“ sagði hann.
Þrálátur orðrómur er í gangi á
Kárahnjúkum um að kínversku
verkamennirnir séu á umtalsvert
lægri launum en aðrir, en svo mun
ekki vera. „Ég hef heyrt þessar sög-
ur, en gögnin sem ég hef undir
höndum og fæ að sjá sýna ekki ann-
að en að verið sé að uppfylla virkj-
anasamninginn,“ sagði Oddur og
bætti við að Kínverjarnir staðfesti
það líka sjálfir hvaða kjör þeir búi
við. - óká
Málaferlin geta tafið
Íslandsför Fischers
Bobby Fischer fær formlegt boð um landvistarleyfi í dag. Unnusta hans
hefur boðað blaðamannafund um málið. Landvistarleyfi hans verður
tímabundið og felur ekki í sér atvinnuleyfi.
UTANRÍKISMÁL Þórður Ægir Óskars-
son, sendiherra í Japan, gerði í
gær bæði japönskum stjórnvöld-
um og Bobby Fischer sjálfum
grein fyrir ákvörðun stjórnvalda
um að bjóða Fischer dvalarleyfi.
Þórður ræddi við Fischer í síma í
gær, en afhendir honum formlegt
erindi með boðinu í dag. Þá hefur
unnusta Fischers boðað að í dag
verði haldinn blaðamannafundur
um málið.
Þórður Ægir segir erfitt að
segja til um hversu langur tími
kunni að líða þar til Fischer gæti
komið til Íslands, en sendiráðinu
hefur verið falið að vera honum
innan handar með þau mál. „Það
er háð þessari málsókn sem hann
rekur fyrir dómstólum hér,“ sagði
hann og taldi ólíklegt að japönsk
stjórnvöld myndu framselja
Fischer sendiráðinu. „Núna snýst
þetta um hvað hann ákveður sjálf-
ur, hvort hann hættir við mála-
ferlin, því til að fá afstöðu jap-
anskra stjórnvalda þarf hann að
gera það. Þau geta ekki gripið inn
í málaferlin.“ Fari svo að Fischer
haldi sig við málshöfðun sína á
hendur Japönum getur það tafið
mál nokkuð. „Niðurstöðu í þeim er
alla vega ekki að vænta fyrir ára-
mót,“ sagði Þórður.
Georg Lárusson, forstjóri Út-
lendingastofnunar, telur líklegast
að annað hvort fái Fischer al-
mennt landvistarleyfi, eða þá
leyfi af mannúðarástæðum. Yfir-
völd hér hafa áréttað að Fischer
standi ekki til boða pólitískt hæli,
líkt og hann hefur farið fram á, en
slíku hæli fylgja meiri réttindi
hvað varðar atvinnu.
Georg segir að almennu dval-
arleyfi fylgi öll réttindi sem aðrir
útlendingar hafa. „Ef hann dvelst
hér í sex mánuði felst í því að-
gangur að sjúkrakerfi okkar og
félagsþjónustu,“ segir hann og
bætir við að líklegast yrði dvalar-
leyfi Fischers tímabundið, að
minnsta kosti fyrst í stað. Þá seg-
ir Georg að í ákvörðun þeirri sem
tekin hafi verið um að veita
Fischer dvalarleyfi felist ekki
réttur til atvinnuleyfis. Georg
sagði að ef Bandaríkjamenn færu
fram á framsal Fischers væri það
mál sem dómsmálaráðuneytið
þyrfti að leysa úr.
olikr@frettabladid.is
Páfagarður:
Páfi rekur
tvo presta
LONDON, AFP Tveir írskir prestar
sem dæmdir hafa verið fyrir kyn-
ferðisofbeldi á börnum hafa verið
sviptir hempu sinni, samkvæmt
skipun frá Jóhannesi Páli II, páfa
kaþólsku kirkjunnar.
Þeir eru fyrstu írsku prestarn-
ir sem eru reknir af páfa síðan
hneykslismál vegna kynferðis-
ofbeldis gegn börnum riðu yfir
írsku kirkjuna. Prestarnir geta
ekki áfrýjað ákvörðuninni. ■
SLUPPU ÓTRÚLEGA VEL
Allir þrír ökumenn bílanna sem lentu í
árekstri á Reykjanesbraut um sjöleytið í
gærkvöld voru sendir á slysadeild. Enginn
þeirra reyndist alvarlega slasaður.
Reykjanesbraut:
Þriggja bíla
árekstur
LÖGREGLUMÁL Ökumenn þriggja bíla
voru fluttir á slysadeild eftir
árekstur á Reykjanesbraut við
Hnoðraholt í Garðabæ í gærkvöld.
Brautin var lokuð í tæpar tvær
klukkustundir vegna slyssins.
Óvíst var um ástand eins mann-
anna en vakthafandi læknir á Land-
spítala - háskólasjúkrahúsi sagði að
eftir rannsóknir virtist sem hann
væri ekki alvarlega slasaður.
Ökumenn voru einir í bílunum;
jeppa og tveimur fólksbílum. Hinir
ökumennirnir tveir reyndust lítið
slasaðir eftir skoðun. Báðir fólks-
bílarnir eru ónýtir og voru fluttir
með kranabíl af slysstað. - gag
Andlát gamals manns:
Beðið um lög-
reglurannsókn
LÖGREGLUMÁL Aðstandendur gam-
als manns sem lést eftir að hafa
dottið á Hrafnistu í Reykjavík
hafa lagt inn beiðni um rannsókn
á málinu til embættis lögreglu-
stjórans í Reykjavík.
Beiðnin barst í fyrradag, að
sögn Egils Stephensen saksókn-
ara hjá embættinu.
Aðstandendurnir telja sig ekki
hafa fengið nægar skýringar á því
sem gerðist áður en gamli maður-
inn lést. Hann var á níræðisaldri
og var vistmaður á Hrafnistu.
Hann hafði dottið þar 7. nóvember
og verið færður upp á herbergi
sitt, en hrakaði og var síðan flutt-
ur á sjúkrahús. Þar kom í ljós að
blætt hafði inn á heila og maður-
inn var lamaður öðru megin.
Hann lést svo 13. nóvember á
sjúkrahúsinu. - jss
„Nei, ég á nú ekki von á því. Hins
vegar mættu þeir alveg veita hon-
um pólitískt hæli. Hann er kolólög-
legur í landinu eins og er.“
Ríkið keypti teikningar Sigmunds Jóhannssonar,
sem birst hafa í Morgunblaðinu síðustu fjörutíu ár,
á 18 milljónir króna. Vakna spurningar um frekari
kaup á teikningum listamanna. Rithöfundurinn
Hallgrímur Helgason gæðir Grim lífi í Fréttablaðinu.
SPURNING DAGSINS
Hallgrímur, áttu von á að ríkisstjórnin
kaupi Grim?
Árásin í Mosfellsbæ:
Gæsluvarðhald framlengt í sex vikur
LÖGREGLAN Bráðabirgðaniðurstöð-
ur vegna árásarinnar á Ragnar
Björnsson í Mosfellsbæ um síð-
ustu helgi hafa leitt í ljós að
Ragnar lést af völdum höggs á
kjálka og gagnauga. Hálfþrítug-
ur Mosfellingur, Loftur Jens
Magnússon, hefur játað að hafa
gefið Ragnari högg á sveita-
kránni Ásláki aðfaranótt sunnu-
dags.
Rannsókn lögreglunnar á and-
láti Ragnars er langt komin.
Loftur Jens hefur verið í gæslu-
varðhaldi á Litla-Hrauni síðustu
daga og hefur gæsluvarðhaldið
verið framlengt í sex vikur í ljósi
alvarleika málsins. Loftur Jens
verður því í haldi til 27. janúar
nema Hæstiréttur breyti úr-
skurðinum. Björn Ólafur Hall-
grímsso hrl. er lögmaður Lofts
Jens og hefur hann kært úr-
skurðinn.
Hugsanlegt er að Lofti Jens
verði haldið inni þar til dómur
hefur fallið þó að rannsókn sé
lokið.
Útför Ragnars Björnssonar
var gerð frá Dómkirkjunni í
Reykjavík í gær. - ghs
Erlend umfjöllun:
Þrátefli hjá
Fischer
UTANRÍKISMÁL Dvalarleyfi Bobby
Fischer hér á landi hefur vakið
heimsathygli og greint hefur ver-
ið frá þróun mála í helstu fjölmiðl-
um. BBC rifjaði upp að árið 1972
hafi Fischer og Rússinn Boris
Spassky teflt hér. Þá hafa rúss-
neskir fjölmiðlar fagnað ákvörð-
un Íslendinga, enda mikil virðing
borin fyrir Fischer í Rússlandi
fyrir að vera einhver mesti skák-
snillingur sem uppi hefur verið.
Ástralskir miðlar hafa nokkuð
gert úr því að um þrátefli sé að
ræða hjá Fischer, enda gæti farið
svo að Japanir sendi hann til
Bandaríkjanna, falli hann frá lög-
sókn á hendur þeim, og ekki sé
hann öruggur í Íslandsvistinni,
því hann hafi ekki fengið pólitískt
hæli eins og hann fór fram á.
- óká
FRÁ ATHAFNASVÆÐI IMPREGILO
VIÐ KÁRAHNJÚKA
Aðaltrúnaðarmaður starfsmanna við Kára-
hnjúkavirkjun telur ekki að undra þó svo
að brottfall verði í starfsliði í fríum vegna
erfiðra aðstæðna á virkjanasvæðinu. Síð-
asta mánuðinn hafi veður verið slæmt og
hann hafi síðast í gær heyrt í portúgölsk-
um verkamanni sem vildi komast heim.
ÚTFÖRIN GERÐ FRÁ DÓMKIRKJUNNI
Útför Ragnars Björnssonar var gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
BOBBY FISCHER
Fischer var myndaður 10. ágúst síðastliðinn þegar hann var fluttur frá skrifstofu innflytj-
endaeftirlitsins japanska í Narita, nærri Tókýó. Ekki er enn ljóst hvenær von gæti orðið á
Fischer hingað til lands, en falli hann ekki frá málaferlum í Japan er búist við að þau geti
dregist fram yfir áramót.
AP
M
YN
D
Réttarhöld í Írak:
Saddam
síðastur
GENF, AFP Dómsmálaráðherra
Íraks hefur sagt að síðast verði
réttað yfir Saddam Hussein af
tólf leiðtogum gömlu stjórnar
landsins. Einnig kom fram að
þetta yrði ekki fyrr en „löngu
eftir“ kosningarnar í janúar.
Einnig kom fram að réttað
yrði yfir Barzan Ibrahim Hass-
an al-Tikriti, aðstoðarmanni
Saddams og hálfbróður, á eftir
Ali Hassan al-Majid. Réttarhöld-
in yfir al-Majid eru fyrst á dag-
skrá. Um þessar mundir er eitt
ár liðið frá því Hussein var
handtekinn í Írak. ■
02-03 16.12.2004 21:18 Page 2