Fréttablaðið - 17.12.2004, Síða 14
17. desember 2004 FÖSTUDAGUR
Dæmdur í skilorðsbundið sex mánaða fangelsi:
Fékk skilorð fyrir
að skalla mann
DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur maður
var í Héraðsdómi Norðurlands
eystra dæmdur í sex mánaða skil-
orðsbundið fangelsi fyrir líkams-
árás. Honum var gert að greiða
þeim sem hann réðst á tæplega
300 þúsund krónur í skaðabætur.
Maðurinn skallaði annan mann
í andlitið þannig að hann féll í göt-
una í miðbæ Akureyrar í janúar
árið 2003. Við árásina nefbrotnaði
þolandinn auk þess sem hann
brotnaði á litla fingri hægri hand-
ar. Árásarmaðurinn játaði brot
sitt við þingfestingu málsins en
sagði það hafa verið sjálfsvörn.
Dómnum þótti hins vegar ekkert í
framburði vitna benda til þess að
þolandinn hefði ráðist á eða ógnað
árásarmanninum, sem var fund-
inn sekur um verknaðinn. Hann á
að baki nokkurn sakaferil og
hefur einu sinni áður verið fund-
inn sekur um alvarlega líkams-
árás sem varðar við 218. grein
almennra hegningarlaga.
Manninum var gert að greiða
allan sakarkostnað, þar á meðal
120 þúsund krónur í málsvarnar-
laun verjanda síns. - hrs
Jólasnjórinn kominn á Akureyri:
Vantar meiri snjó í Hlíðarfjall
SKÍÐASVÆÐIN Enn vantar töluverð-
an snjó í Hlíðarfjall við Akureyri
til að hægt sé að opna þar skíða-
svæðið. Í fyrra var opnað 13.
desember en að jafnaði er svæðið
opnað almenningi síðari hluta
janúarmánaðar. Starfsmenn
Skíðastaða í Hlíðarfjalli eru til-
búnir í slaginn um leið og snjóalög
leyfa og staðarhaldarinn í fjallinu
útilokar ekki að hægt verði að
opna fyrir jól en telur það þó
fremur hæpið.
Að sögn Guðmundar Karls
Jónssonar, forstöðumanns Skíða-
staða í Hlíðarfjalli, þarf ekki mjög
mikið af snjó í viðbót til að hægt
sé að opna svæðið. „Það er kom-
inn þokkalegur grunnur í brekk-
urnar og nú bíðum við bara eftir
nokkrum góðum snjókomudögum.
Veðurklúbburinn á Dalvík á ekki
von á mikilli snjókomu fyrr en í
janúar og samkvæmt spá Veður-
stofunnar, fyrir næstu daga, má
búast við éljagangi. Ég er því ekk-
ert allt of bjartsýnn á að hægt
verði að opna fyrir jól en við sjá-
um til,“ sagði Guðmundur.
- kk
Fjarlægðin ver
okkur fuglaflensu
Ólíklegt er talið að fuglaflensa geti borist hingað með farfuglum. Aðrir sjúk-
dómar sem berast með dýrum færast þó nær eftir því sem loftslag breytist og
nýjar tegundir stinga sér niður hér. Nefndir eru bæði sniglar og blóðmaurar.
HEILBRIGÐISMÁL Hverfandi hætta er
talin á því að farfuglar geti borið
hingað fuglaflensu, að mati Auðar
Lilju Arnþórsdóttur, sóttvarna-
dýralæknis hjá yfirdýralæknis-
embættinu. „Út af fyrir sig er hins
vegar áhugavert að skoða straum
farfugla frá þessum löndum þar
sem hættan er mest,“ segir Auður
Lilja og bætir við að vitað sé um
andfugla sem fari yfir Síberíu, nið-
ur Finnland og yfir Danmörku til
Þýskalands. Hún
segir mjög litlar
líkur á að smit
gæti borist hingað
vegna skörunar
við aðra farfugla.
„Við erum í einna
minnstri hættu
hér á landi, nema
auðvitað að fram
komi stökkbreytt
afbrigði sem smit-
ast á milli manna.“
Í Asíu hefur fuglaflensa
greinst í villtum fuglum, síðast
fyrir hálfum mánuði í dauðum
gráhegra sem fannst í Hong Kong
nærri landamærunum við Kína.
Hegrinn var sýktur af H5N1
fuglaflensuvírusnum, en hann
hefur á árinu orðið yfir 30 manns
að bana í Víetnam og Taílandi.
Í síðasta mánuði fannst annar
dauður gráhegri með H5N1 vírus-
inn á sama svæði og í janúar
fannst dauður förufálki sem
einnig greindist með fuglaflensu.
Fólk getur smitast af
fuglaflensuvírusnum af sýktum
fuglum, en hann smitast ekki á
milli manna. Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunin hefur uppi viðbún-
að af ótta við að fram komi stökk-
breytt afbrigði vírussins sem
valdið gæti mannskæðum heims-
faraldri. Búist er við að allt að sjö
milljón manns gætu látist um
heim allan í slíkum faraldri. „Að-
alfarfuglarnir sem hætta er af er
fólkið, það er að segja ef stökk-
breyting verður í vírusnum,“
segir Auður Lilja.
Auður Lilja segir þó ekki hægt
að neita því að nokkur fjöldi sjúk-
dóma sem borist geti með dýrum
færist nær landinu. „Við erum
auðvitað mjög á verði gagnvart
slíkum sjúkdómum. Það eru ýms-
ir af þessum veirusjúkdómum og
líka fleira sem kemur til af breytt-
um aðstæðum, svo sem hlýnandi
veðurfari. Margir af þessum sjúk-
dómum þurfa millihýsla sem við
erum laus við hér,“ segir hún, en
bætir við að vitanlega þurfi að
vera á varðbergi gagnvart nýjum
tegundum sem hér geti stungið
sér niður. „Við vitum um þessa
snigla sem hér eru að koma,“
segir hún og bætir við að hér hafi
einnig fundist stöku blóðmaurar
sem algengir eru á Norðurlöndun-
um, en hafi hingað til ekki fundist
hér. „Þetta er nokkuð sem við
erum vakandi fyrir, en þeir geta
borið með sér veirur.“
olikr@frettabladid.is
,,Margir af
þessum
sjúkdómum
þurfa milli-
hýsla sem
við erum
laus við
hér.
– hefur þú séð DV í dag?
Loftur verður
í fangelsi
um jólin eftir
hnefahöggið
afdrifaríka
Nágrannahundur
huggaði kærustuna
eftir
árásina
Handverksmarkaður
Garðatorgi í Garðabæ
Alla laugardaga til jóla
Pakkatilbo›
Diskur, nemi og móttakari
24.900.-Tilbo›
Reikna›u dæmi› til enda og fá›u stafrænar opnar
sjónvarpsrásir um gervihnött.
B‡›ur ma. upp á BBC, Sky News, CNN o.fl.
Echostar DSB-780 FTA
Móttakari fyrir opnar rásir. Opi› laugardag f rá k l . 10 -16
Gæ›in hafa nafn
E I C O S k ú t u v o g i 6 S í m i 5 7 0 4 7 0 0 w w w . e i c o . i s
Í KJÚKLINGABÚI
Í Asíu hefur komið upp að fuglaflensa greinist í kjúklingabúum. Engin hætta er talin á að
fuglaflensusýking gæti borist í bú hér, enda sáralitlar líkur á að farfuglar komist í tæri við
sjúkdóminn og enn minni líkur á að þeir gætu borið hann heim. Þá eru viðhafðar miklar
sjúkdómavarnir í búum hér.
AKUREYRI
Maðurinn sagðist hafa skallað manninn í
andlitið í sjálfsvörn.
STAÐARHALDARINN Í HLÍÐARFJALLI
Guðmundur Karl Jónsson bíður eftir
nokkrum góðum snjókomudögum.FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/K
K
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
14-15 16.12.2004 20:40 Page 2