Fréttablaðið - 17.12.2004, Page 15
FÖSTUDAGUR 17. desember 2004
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
Við hjálpum þér
að láta það gerast
800 7000 - siminn.is
fyrir fjölskylduna
Frábær gamanmynd
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
14
5
0
9
Jólaglaðningur Símans
Síminn býður þér á jólamyndina Surviving
Christmas, með Ben Affleck, á aðeins 550 kr.
fyrir fullorðna og 400 kr. fyrir börn, 5 ára og
yngri. Framvísa þarf afsláttarmiða sem hægt
er að nálgast á þjónustuvef Símans, siminn.is.
Komdu í bíó með Símanum!
Reykjavík, Keflavík og Akureyri
Jólamyndin 2004Sjúkrahús Akraness:
Setur stefnu í
lyfjamálum
HEILBRIGÐISMÁL Sjúkrahúsið á Akra-
nesi hefur sett sér stefnu í lyfja-
málum og hefur hún verið sam-
þykkt af framkvæmdastjórn
sjúkrahússins.
Þetta er gert í framhaldi af
starfi og niðurstöðum vinnuhóps
sem Jón Kristjánsson heilbrigðis-
ráðherra skipaði fyrir um tveimur
árum. Meginniðurstaða starfshóps-
ins er að nauðsynlegt sé að bæta og
styrkja stjórn lyfjamála og lyfja-
nefndarstarf á heilbrigðisstofnun-
um til að lyfjanotkun verði mark-
vissari en áður og að þannig megi
ná betri tökum á kostnaðarhækkun-
um, sem af nýjum lyfjum stafar. ■
BIÐU AF SÉR HVASSVIÐRI Tíu til
fimmtán bílar biðu í Borgarnesi
af sér hvassviðri sem var undir
Hafnarfjalli í fyrrakvöld og fram
á nótt. Vindurinn fór í um fjöru-
tíu metra á sekúndu í hviðum.
Ökumennirnir ákváðu sjálfir að
bíða af sér veðrið en þeir héldu
áfram ferð sinni upp úr klukkan
tvö um nóttina.
UMBOÐSMAÐUR
Tamningamenn styðja Jónas R. Jónsson.
Tamningamenn:
Stuðningur
við umboðs-
mann
FÉLAGSMÁL Félag tamningamanna
hefur samþykkt og sent frá sér
stuðningsyfirlýsingu við umboðs-
mann íslenska hestsins. Í sam-
þykkt aðalfundar félagsins er lagt
til að settur verði á fót þriggja
manna vinnuhópur til að vinna
með umboðsmanninum að mark-
aðssetningu íslenska hestsins og
íslenskrar reiðmennsku erlendis.
Hópurinn er undir forsjá Eyjólfs
Ísólfssonar.
Stuðningsyfirlýsingin var sam-
þykkt á nýafstöðnum aðalfundi
Félags tamningamanna. ■
14-15 16.12.2004 20:40 Page 3