Fréttablaðið - 17.12.2004, Page 18

Fréttablaðið - 17.12.2004, Page 18
18 17. desember 2004 FÖSTUDAGUR SJÁLFSTÆÐIS MINNST Íbúar Bangladess minntust þess í gær að 33 ár eru liðin síðan landið bar sigurorð af Pakistan í frelsistríðinu. Ungir drengir frá Bangladess tóku í gær þátt í þjóðhátíð- arhöldum á Þjóðarleikvanginum í borginni Dhaka. Heildarafli dregst saman um 15% milli ára: Aldrei meira veitt af sumargotsíld í nóvember SJÁVARÚTVEGUR Heildarfiskafli fyrstu ellefu mánuði ársins var fimmtán prósentum minni en á sama tíma í fyrra, 1.643 þúsund tonn á móti 1.890 þúsund tonnum. Í tilkynningu Fiskistofu kemur fram að minni afli uppsjávarteg- unda skýri aflasamdráttinn milli ára. „Afli í síld, loðnu og kolmunna var 255 þúsundum tonnum minni en á sama tíma í fyrra. Hinsvegar var tuttugu þúsunda tonna aukning í afla þorsks og sama gildir um ýsuafla,“ segir þar. Þá kemur fram að um þessar mundir liggi rækju- og hörpudisk- veiðar við Ísland nánast niðri. „Afli þessarra tegunda var aðeins 552 tonn en lengst af var nóvember einn af betri aflamánuðunum.“ Bent er á að í nóvember árið 1996 hafi veiðst 9.500 tonn af rækju og hörpudiski. Í tilkynningu Fiskistofu kemur jafnframt fram að afli íslensku sumargotssíldarinnar í nóvember hafi verið sá mesti frá upphafi, eða ein 54.996 tonn. „Næstmestur var síldaraflinn í nóvember í fyrra en þá var hann 49.164 tonn.“ - óká Lítil von um að finna barnsræningjann Ekki hefur tekist að hafa uppi á manni sem nam níu ára stúlku á brott í Kópavogi í nóvember. Yfirlögregluþjónn í Kópavogi segir lögregluna vera nánast stopp í rannsókn málsins eftir að hafa kannað allar ábendingar. LÖGREGLUMÁL Rannsókn á brott- námi níu ára stúlku í Kópavogi í nóvember hefur ekki borið árang- ur að sögn Frið- riks Smára Björg- vinssonar, yfir- lögregluþjóns í Kópavogi. Hann segir allar ábend- ingar sem lög- reglan fékk hafa verið kannaðar án þess að þær hafi leitt til handtöku. Friðrik segir mjög svekkjandi að ekki hafi tek- ist að upplýsa þetta alvarlega mál. Friðrik segir ábendingar hætt- ar að berast lögreglu og því lengri tími sem líður frá verknaðinum eru minni líkur á að það takist að upplýsa málið. Hann segir málið erfitt og það takist ekki alltaf að leysa mál þó að allt sé lagt í söl- urnar. „En það er ekki öll nótt úti enn, það er alltaf von,“ segir Frið- rik. Við hringtorgið á mótum Álf- hólsvegar og Bröttubrekku í Kópavogi stöðvaði maðurinn bíl sinn, fór út og kynnti sig sem lög- reglumann fyrir stúlkunni. Hann sagði stúlkunni að móðir hennar hefði lent í slysi og lægi þungt haldin á sjúkrahúsi og hann ætti að ná í hana. Maðurinn virðist hafa ekið með stúlkuna beint upp á Mosfellsheiði. Á veginum upp að Skálafelli hálffesti hann bílinn í snjókrapi. Eftir að hafa náð að losa bílinn skildi hann stúlkuna eftir í myrkrinu og kuldanum. Hún gekk niður á Þingvallaveg þar sem hún stöðvaði akandi mann sem kom henni í réttar hendur en þá voru um tveir tímar síðan henni var rænt. Fyrst var farið með stúlkuna til skoðunar á sjúkrahúsi og er ekki grunur um líkamlegt eða kynferðislegt of- beldi. Friðrik segir að rætt hafi verið við rúmlega þrjátíu menn sem falla undir lýsingu stúlkunn- ar á manninum. Hún sagði hann vera um tvítugt, sköllóttan, með gleraugu með svartri umgjörð og með skeggtopp undir neðri vör. Þá hefur verið rætt við manninn sem tók stúlkuna upp í og foreldra hennar. Ekki leikur grunur á að stúlkan hafi sagt ósatt til um það sem gerðist. hrs@frettabladid.is SUF mærir ráðherra: Mismunun afnumin STJÓRNMÁL Stjórn Sambands ungra f r a m s ó k n a r - manna (SUF) fagnar því að Jón Kristjáns- son heilbrigðis- ráðherra skuli beita sér fyrir endurskoðun reglna um end- urgreiðslu gler- augna og linsa fyrir börn. Í til- kynningu sam- bandsins kemur fram að unnið sé að því að gleraugu og linsur fyrir börn verði skilgreind sem hjálp- artæki og greiðsluþátttaka ríkis- ins vegna þeirra verði sú sama og gildir um önnur slík. „Stjórn SUF telur það réttlæt- ismál að börnum sé ekki mismun- að þannig að sum þeirra njóti stuðnings við kaup á hjálpartækj- um en önnur ekki,“ segir í tilkynn- ingunni. - óká FRIÐRIK SMÁRI BJÖRGVINSSON Í þessu máli eins og öðrum verða líkurnar minni á að upplýsa málið eftir því sem lengra líður frá verknaðinum. HEILBRIGÐISMÁL Jón Kristjánsson, heilbrigðis-og tryggingamálaráð- herra, tók s.l. miðvikudag form- lega í notkun nýtt og mjög öflugt segulómtæki á myndgreiningar- deild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri (FSA). Reiknað er með að 800 til 1000 sjúklingar af lands- byggðinni muni njóta góðs af tæk- inu árlega en sex til átta vikna bið hefur verið eftir að komast í sam- bærilegt tæki í Reykjavík. Fram kom í máli heilbrigðis- ráðherra við vígsluna að hann teldi að með tækinu væri stigið risaskref varðandi þjónustu FSA við sjúklinga á svæðinu. „Þetta tæki skapar nýja möguleika til rannsókna, eykur þjónustu við fólkið á svæðinu og styrkir stöðu spítalans sem hátæknispítala,“ sagði Jón. Tækið er keypt á fimm ára rekstrarleigusamningi, með möguleika á framlengingu til tveggja ára, og er árlegur kostn- aður við samninginn um 30 millj- ónir króna en verður lægri á framlengingartímanum, verði hann nýttur. kk@frettabladid.is TÆKIÐ TEKIÐ Í NOTKUN. Halldór Benediktsson, yfirlæknir mynd- greiningardeildar FSA, sýnir Jóni Kristjáns- syni heilbrigðisráðherra og fleirum hvernig tækinu er stjórnað. Heilbrigðisráðherra vígði nýtt segulómtæki: Eitt stærsta framfara- skref í þjónustu FSA FR ÉT TA B LA Ð IÐ /K K FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R ,,En það er ekki öll nótt úti enn, það er alltaf von. JÓN KRISTJÁNSSON SÍLDARLÖNDUN Metveiði var í sumar- gotsíld í nóvember, annað árið í röð, samkvæmt upplýsingum Fiskistofu. Veið- ar á rækju og hörpudiski hafa hins vegar hrunið niður í hálft tonn á ári úr tæpum tíu tonnum fyrir nokkrum árum. 18-19 16.12.2004 19:24 Page 2

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.