Fréttablaðið - 17.12.2004, Blaðsíða 66
33FÖSTUDAGUR 17. desember 2004
Theriak
á Jótlandi
Hugbúnaðarfyrirtækið Tölvu-
Myndir hefur gert samning við
Norður-Jótlandsamt í Danmörku
um uppsetningu Theriak lyfja-
gjafakerfi á öllum sjúkrastofnun-
um á svæðinu.
Í tilkynningu frá TölvuMynd-
um kemur fram að samningurinn
sé gerður í kjölfar tilraunaverk-
efnis sem staðið hefur yfir frá því
í fyrra en kerfið hefur verið í
notkun frá upphafi árs.
Haft er eftir Axel Ómarssyni,
framkvæmdastjóra heilbrigðis-
sviðs Tölvumynda, að samningur-
inn sé mikilvægur fyrir markaðs-
setningu lyfjagjafakerfisins
Theriak á Norðurlöndum. Mark-
aðssetning kerfisins hófst árið
2001. - þk
Verðmæti
afla eykst
Þótt heildarafli íslenskra skipa
hafi verið örlítið minni í nóvem-
ber en á sama
tíma í fyrra var
verðmæti hans
tæplega tólf
p r ó s e n t u m
meira en þá.
Í frétt grein-
ingardei ldar
Íslandsbanka
segir að ástæða
þessa sé breyt-
ing á samsetn-
ingu aflans.
Meira veiddist af botnfiski en
minna af uppsjávarfiski.
Það sem af er ári er aflinn 14,4
prósentum minni en á sama tíma í
fyrra. Að mati Íslandsbanka
stefnir því í töluvert lakara fisk-
veiðiár en í fyrra en þrátt fyrir
það er gert ráð fyrir að heildar-
verðmæti aflans verði áþekkt eða
ívið hærra en í fyrra. - þk
JÓLABJÓR Í KÍNA Gestir í verslunarmið-
stöð í Sjanghæ í Kína eru minntir á jóla-
bjórinn með þessu sex tonna bjórflösku-
jólatré. Tréð er gert úr Heineken bjórflösk-
um en í Kína halda margir hátíð um jólin
að vestrænum sið þótt kristin trú sé ekki
útbreidd.
Hluthafafundur samþykkti
samhljóða að heimila aukið
hlutafé til að fjármagna
kaup á Frétt og Íslenska út-
varpsfélaginu.
Hluthafafundur í Og Vodafone
samþykkti á miðvikudag tillögu
stjórnar félagsins um hlutafjár-
aukningu vegna kaupa á Frétt ehf.
og Íslenska útvarpsfélaginu ehf.
Frétt á Fréttablaðið og DV og Ís-
lenska útvarpsfélagið rekur meðal
annars sjónvarpsstöðvarnar Stöð 2
og Sýn auk fjölda útvarpsstöðva.
Heildarkostnaður við kaupin er 5,8
milljarðar.
Eiríkur S. Jóhannesson gerði
grein fyrir forsendum kaupanna. Í
máli hans kom fram að Og Voda-
fone teldi að töluvert hagræði geti
skapast af samrekstri stoðdeilda
Og Vodafone og fjölmiðlafyrir-
tækjanna. Þar var meðal annars
nefnt að fyrirtækin rækju öll
þjónustuver hvert í sínu lagi.
Á fundinum kom fram að velta
Fréttar ehf. hafi vaxið um 90 pró-
sent í ár og verði um 2,1 milljarðar.
Framlegð af rekstri fyrir fjár-
magnsliði var 2,8 prósent fyrstu
níu mánuði ársins. Þá kom fram að
mjög aukin framlegð sé í rekstri
Íslenska útvarpsfélagsins. Hún er
sögð hafa verið 13,2 prósent á
fyrstu níu mánuðum þessa árs
samanborið við 9,3 prósent í fyrra.
Í yfirliti yfir rekstur félaga í Og
Vodafone samsteypunni kom fram
að tæpur þriðjungur tekna er til
kominn vegna GSM þjónustu, ríf-
lega fjórðungur vegna rekstrar
ljósvakamiðla og um einn sjötti
vegna rekstrar prentmiðla.
Markaðshlutdeild Og Vodafone
á fjarskiptamarkaði er um 25 pró-
sent, á dagblaðamarkaði um 48
prósent og um 46 prósent í ljós-
vakarekstri. Tiltók Eiríkur að á
tveimur þessara sviða, fjarskipt-
um og ljósvakarekstri, væri ís-
lenska ríkið helsti samkeppnis-
aðili Og Vodafone. ■
Sameining í Og Vodafone samþykkt
STJÓRNARMENN Í OG VODAFONE
Vilhjálmur Þorsteinsson, Árni Hauksson,
Davíð Scheving Thorsteinsson, Skarphéð-
inn Berg Steinarsson og Eiríkur S. Jóhann-
esson forstjóri.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
M
YN
D
A
P
32-65 (32-33) Viðskipti 16.12.2004 14:45 Page 3