Fréttablaðið - 17.12.2004, Qupperneq 82
SAW Er sallafín hryllingsmynd sem kemur
skemmtilega á óvart. Hún er vissulega og
sem betur fer óhugguleg og á köflum mið-
ur geðsleg en leikstjórinn missir þó aldrei
tökin á viðbjóðnum og subbuskapurinn
verður því aldrei yfirgengilegur.
Saw
„Endaprettur Saw er líklega óvæntasti endir sem
sést hefur í bíó frá því Morgan Freeman fann haus-
inn á Gwyneth Paltrow í pappakassa í Seven.“
ÞÞ
Open Water
„Myndin er alls ekki gallalaus en eftir stendur samt
frumleg saga sem á köflum er bæði hrikalega
spennandi og skelfilega átakanleg.“
EÁ
Íslenska sveitin
„Íslenska sveitin er á köflum mjög smart, skemmti-
lega tekin en er fyrst og fremst skemmtileg heim-
sókn til Íslendinga í byssuleik og þeir eru vitaskuld
mátulega sveitalubbalegir eins og við er að búast.“
ÞÞ
The Polar Express
„Sagan sem hér er sögð er einföld og sígild og
það má segja að hér sé boðið upp á tæknivætt til-
brigði við gamalt stef þar sem rauði þráður mynd-
arinnar er mikilvægi þess að finna hinn sanna
anda jólanna innra með sér og skynja friðinn og
gleðina sem fylgir hátíðinni.“
ÞÞ
Bad Santa
„Sérstaklega skemmtileg og hressandi svört
kómedía fyrir þá sem hafa vott af gálgahúmor.
Billy Bob Thornton fer á kostum sem drykkfelldur
jólasveinn, svarti dvergurinn Tony Cox sýnir stórleik
sem jólaálfur og Lauren Graham leikur vergjarna
gyðingastelpu með blæti fyrir jólasveinum. Hittir
beint í mark.“
EÁ
Bridget Jones: The Edge of
Reason
„Framhaldið er heldur þunnt enda reynt að byggja
á sama söguþræði og í síðustu mynd með smá
ferðalagi til annarra landa. Leikararnir standa þó
fyrir sínu og sumir brandarar virka ágætlega – þótt
margir þeirra hafi verið fyrirséðir hálfa myndina.“
KH
The Grudge
„Þessi hrollur sver sig í ætt við The Ring og nær
upp skemmtilega óhugnanlegri stemningu. Frá-
sögnn er hins vegar brotakennd þannig að
spennuföll verða jafn óðum og myndin nær aldrei
almennilegu flugi. Myndin er endurgerð japanskrar
frummyndar og austræna draugaraunsæið er svo-
lítið á skjön við það sem vestrænir bíógestir eiga
að venjast. Þá er Sarah Michelle Gellar afar slöpp í
aðalhlutverkinu.“
ÞÞ
Two Brothers
„Saga bræðranna tveggja er hjartnæm og hlý og
það er sennilega ekki hægt að lýsa henni betur en
með þeim orðum að hér sé á ferðinni alvöru fjöl-
skyldumynd af gamla skólanum.“
ÞÞ
Shall We Dance?
„Rómantíkin og ástarþráin svífur því yfir vötnum í
Shall We Dance? en dramað og tilfinningarnar rista
þó aldrei nógu djúpt til þess að myndin hreyfi al-
mennilega við áhorfandanum.“
ÞÞ
Shark Tale
„Mafíuhákarlarnir eru einu persónurnar sem eitt-
hvað er spunnið í og þar eru þeir áberandi bestir
Robert De Niro sem gerir góðlátlegt grín að sjálf-
um sér í hlutverki Don Linos og Michael Imperioli.
Þessir gaurar kunna mafíósataktana utanbókar og
blása smá lífi í staðna sögu.“
ÞÞ
Dodgeball
„Hefst þá hin skemmtilegasta atburðarás sem
heldur manni brosandi allan tímann, það vantar
ekki. Og spenntum. En maður liggur aldrei afvelta
af hlátri, eins og maður bjóst við að maður myndi
gera.“
GS
FÖSTUDAGUR 17. desember 2004
[ SMS ]
UM MYNDIRNAR Í BÍÓ
Stuðmenn voru með allt á hreinu
árið 1982 og slógu hressilega í
gegn með bíómyndinni Með allt á
hreinu sem Ágúst Guðmundsson
leikstýrði. Langþráð framhald
þessarar sígildu myndar verður
frumsýnt á öðrum degi jóla í
Smárabíói, Regnboganum, Laug-
arásbíói, Borgarbíói Akureyri og
Selfossbíói.
Titill nýju myndarinnar, Í takt
við tímann, segir vitaskuld allt
sem segja þarf um aðstandendur
hennar en Stuðmenn eru jafnan
með puttann á þjóðarpúlsinum og
það má því ætla að það verði engu
minna fjör í nýju myndinni þó all-
ar helstu persónur séu orðnar 22
árum eldri.
Það eru sem fyrr söngvararnir
Kristinn Styrkársson Proppé og
Harpa Sjöfn Hermundardóttir
sem eru í forgrunni en brösótt
ástarsamband þeirra fékk, eins og
alþjóð veit, sviplegan endi á þjóð-
hátíð í Herjólfsdal í lok Með allt á
hreinu.
Stuðmenn eru í upphafi Í takt
við tímann aðeins lítið tríó á hótel-
bar á Spáni, þó að hljómsveitar-
stjórinn Frímann eigi sér enn
drauma um litríkan frama á tón-
listarbrautinni. Stuðmenn vita
líka að Ísland er land tækifær-
anna, þar sem nýsköpunarverk-
efnin bjóðast hvert sem litið er.
Dúddi er löngu hættur að róta og
leggur nú stund á öllu andlegri
störf og virðist sá eini sem hefur
slegið almennilega í gegn. En þar
með er ekki öll sagan sögð. Langt
því frá. ■
Vegamyndin Sideways rakaði
saman sjö Golden Globe-verð-
launatilnefningum á dögunum og
er meðal annars tilnefnd sem
besta myndin í flokki söngleikja
eða gamanmynda. Myndin verður
frumsýnd í Smárabíói og Regn-
boganum þann 21. janúar þannig
að Íslendingar geta smakkað á
herlegheitunum fyrir Golden
Globe-verðlaunaafhendinguna
sem fer fram 16. janúar.
Sideways segir frá skakkaföll-
um félaganna Miles, sem hinn
kostulegi Paul Giamatti leikur, og
Jack (Thomas Haden Church).
Miles er alkóhólískur minnipoka-
maður og misheppnaður rithöf-
undur sem er að jafna sig eftir
skilnað og býður gömlum vini sín-
um í vínsmökkunarferð. Jack er
að fara að gifta sig viku síðar en
slær til aðallega til þess að njóta
frelsisins í síðasta sinn. Þessir
ferðafélagar eru eins ólíkir og
hugsast getur. Jack er kvennagull
en Miles áhyggjufullur lúser.
Jack er slétt sama um gæði víns
bara ef hann fær að drekka á
meðan Miles leitar að fullkomnun
í flösku.
Örlögin haga því samt þannig
að þegar þeir eru komnir á
áfangastað vaða þeir báðir í víni
og konum og lenda í ástarævin-
týrum sem verða til þess að Jack
íhugar að hætta við brúðkaupið.
Þeir þurfa svo að takast á við
sjálfa sig, ástina og gráa
fiðringinn.
Höfundar Sideways eru þeir
Alexander Payne og Jim Taylor,
sem eiga að baki myndir á borð
við About Schmidt og Election.
About Schmidt var áberandi í
Óskarsverðlaunakapphlaupinu í
fyrra og þar sem Golden Globe
þykir jafnan gefa vísbendingar
um velgengi í Óskarnum má
reikna með að Sideways komi
sterk inn á þeim vígstöðvum. ■
STINNI STUÐ OG HARPA SJÖFN Egill Ólafsson og Ragnhildur Gísladóttir endurtaka
rullur sínar úr Með allt á hreinu og það gustar greinilega enn af þeim.
MILES OG JACK Leita að svarinu
við lífsgátunni á botni vínglassins
í Sideways, sem hefur þegar land-
að sjö Golden Globe-tilnefningum
og þykir líkleg til að skjóta upp
kollinum í Óskarskapphlaupinu.
Vínsmakkarar í rugli
Með taktinn á hreinu
80-81 (48-49) Bíósíða 16.12.2004 19:17 Page 3