Fréttablaðið - 17.12.2004, Page 85

Fréttablaðið - 17.12.2004, Page 85
52 17. desember 2004 FÖSTUDAGUR EKKI MISSA AF… Memento moris, leiksýningu Hugleiks og Leikfélags Kópavogs, klukkan 20.30... Jólasöngvum Kórs Langholts- kirkju og Gradualekórs Lang- holtskirkju klukkan 20.30. Ein- söngvarar Ólöf Kolbrún Harðar- dóttir og Ágúst Ólafsson, stjórn- andi Jón Stefánsson... Djassþættinum Fimm fjórðu í umsjón Lönu Kolbrúnar Eddu- dóttur, klukkan 16.13. Leikin lög af Twenty something með nýjasta ungstirni djassheimsins, Jamie Cullum. Tónlistarhópurinn ADAPTER flyt- ur tónlistargjörninginn 1 mínúta á sýningunni Ný íslensk myndlist í Listasafni Íslands sunnudaginn 19. desember kl. 14.00 - 16.00 og miðvikudaginn 22. desember kl. 14.00 -16.00. Tónlistarhópurinn Adapter flytur frumsamin tónverk tileinkuð listaverkum á sýningunni sem eru m.a. eftir Áka Ásgeirsson, Önnu S. Þorvaldsdóttur og Örlyg Benediktsson. Tónlistarhópinn skipa: Kristjana Helgadóttir, Gunnhildur Einars- dóttir og Matthias Engler. Adapter er hópur ungs tónlistar- fólks sem hefur að markmiði að flytja samtímatónlist. Adapter hefur ekki aðeins áhuga á því að flytja tónlist á hefðbundinn hátt, eins og til dæmis á tón- leikum, heldur er annað takmark hópsins að blanda saman listformum í samvinnu við myndlistarmenn, rithöfunda, dansara o.s.fv. Kl. 23.30 Miðnæturtónleikar í Víðistaðakirkju. Margrét Sigurðardóttir sópran og Gunnhildur Einarsdóttir flytja fallega aðventu- og jólatónlist frá ýmsum lönd- um, til dæmis eftir Poulenc, Britten og Sigvalda Kaldalóns. menning@frettabladid.is 1 mínúta í Listasafni Íslands Í þriðju bók Gísla Sigurðsson- ar í ritröðinni Seiður lands og sagna er ferðast um Suðvest- urland þar sem áherslan er menningarsöguleg. Brimsorfin strönd Reykjaness, brennisteinshverir og úfin hraun, annars vegar, og mjúkar línurnar í náttúru Borgarfjarðar, hins vegar, eru viðfangsefni Gísla Sigurðssonar í nýútkominni bók hans, Áfanga- staðir suðvestanlands – sem er þriðja bókin í ritröðinni Seiður lands og sagna. Ritröð Gísla hefur frá upphafi vakið mikla athygli fyrir þá sérstöðu að hann vefur saman ljósmyndum, sögulegum fróðleik og frásögnum af fólki sem á einhvern hátt hefur staðið upp úr samtíma sínum. „Markmið mitt með þessari bókaröð hefur frá upphafi verið að búa til bók sem hefur ekki verið búin til áður,“ segir Gísli. „Það er að segja, bók sem byggist jöfnum höndum á texta og myndum, þannig að ljósmyndirnar væru um náttúr- una og landið eins og það er núna – en textinn að mestu um merkilegt fólk sem hefur búið á þessum svæð- um frá landnámi til dagsins í dag. Við vitum að landið er fagurt og frítt og það er hægt að njóta þess eins og það er en það er hægt að njóta þess ennþá betur ef maður þekkir eitthvað til sögunnar, bæði atburða og einstaklinga. Þar að auki, þá einsetti ég mér núna að búa til fallegustu bók ársins – sem var dálítið háleitt markmið. Ég geri það með því að annast alla verkþættina sjálfur. Bókin er eitt allsherjar höfundarverk, því ég skrifa text- ann, tek myndirnar og hanna grip- inn. Ég veit ekki til þess að nokkur hafi gert það áður. Ég veit að menn hafa hannað myndabækur með myndum – en ekki texta. Það er kannski dálítið djarft að vera að þessu á áttræðisaldri. Samkvæmt því sem nú gildir í þessu þjóðfélagi eiga menn þá helst að reyna að vera ekki fyrir. Að minnsta kosti er ekki gert ráð fyrir því að neitt komi frá þeim sem gagn er í. Hitt er svo annað mál að þegar ég var fertugur og fimmtugur og jafnvel sextugur, hefði ég ekki get- að gert þessa bók jafn vel og ég geri hana núna. Ástæðan er bæði sú mikla viðbótarreynsla sem maður hefur fengið í blaðamennskunni og líka hitt að ég er með svo miklu betri myndavélarkost núna. Ég hef reynt að vera eins vel vopnaður þar og hægt er. Myndefnið er dálítið eins og veiðar. Maður fer aftur og aftur á öllum árstíðum í leit að sérstakri stemningu. Stundum hittir maður á óskastundir og stundum kemur maður með öngulinn í rassinum. En með því að tefla fram fegurð lands- ins á öllum árstímum verður myndefnið miklu magnaðra. Raun- ar finnst mér myndræn fegurð landsins oft vera mest á haustin, snemma vors og á veturna – en kannski minnst á sumrin.“ Þegar Gísli er spurður hvað hafi komið honum mest á óvart þegar hann fór að kafa ofan í efni bókar- innar, er hann skjótur til svars: „Það kom mér á óvart var hvað Reykja- nesskaginn er merkilegt efni, bæði myndrænt séð og efnislega. Það er til að mynda mjög fróðlegt fyrir nú- tíma Suðurnesjamenn að sjá mun- inn sem er á lífi fólksins þarna núna og eins og það var áður þegar flest- ir voru háðir því að sækja sjó á opn- um bátum og heimilisfeðurnir fóru út í mikinn lífsháska í næstum hvert einasta skipti. Það er ótrúlegt að sjá þær upplýsingar sem þarna var hægt að fá um allan þann mann- skaða sem orðið hefur í þessum sjó- plássum hér fyrr á öldum. Út af fá- tæktinni urðu bátarnir alltaf minni og minni. Það fækkaði teinæringum og áttæringum og síðast var svo komið að það var róið á meira ein þúsund smábátum á Faxaflóasvæð- inu. Háskinn varð alltaf meiri og meiri eftir því sem bátarnir urðu smærri.“ Í bókinni þræðir Gísli Reykja- nesskagann, Kjalarnes, Hvalfjörð og Borgarfjörð allt norður að Húsa- felli. Og víst er að næg eru við- fangsefnin hvað sögulegan fróðleik varðar og því forvitnilegt að vita hvað hann tekur fyrir í Hvalfirði. „Í Hvalfirði tek ég fyrir herminj- ar, bæði í Hvítanesi og á Miðsandi og rek þar ýmislegt, til dæmis viðureign hernámsliðsins við álaga- bletti sem þeir voru eindregið varaðir við. Þeir hlógu nú bara að Íslendingum og sögðu að þetta sýndi bara að við værum skyldir Írum að taka mark á þessu. En það gerði í tvígang slík ofsaveður eftir að hróflað var við álagablettum að braggarnir skrúfuðust upp í loftið. Menn komust að vísu lifandi frá þessum háska – en óskaplega hræddir og reyndu þetta ekki oftar.“ Gísli segir slóð þessarar þriðju bókar vera stórskáldaslóð. „Við erum á slóðum Einars Benedikts- sonar, fyrst á fæðingarstað hans á Elliðavatni og síðan í Herdísarvík þar sem hann eyddi síðustu ævi- árunum. Við erum á slóðum Hallgríms Péturssonar, bæði í Hvalsnesi og í Saurbæ, og síðast en ekki síst á slóð- um Snorra Sturlusonar í Reykholti. Við erum líka á merkilegum slóðum myndlistarmanna, kíkjum yfir öxl- ina á Sveini Björnssyni í Krísuvík, Gunnlaugi Scheving í Grindavík, Ásgrími Jónssyni og fleiri málurum á Húsafelli, auk þess sem komið er við hjá Páli fjöllistamanni Guð- mundssyni á Húsafelli. Það er óhætt að segja að það er menningar- söguleg áhersla í allri bókinni. ■ Einsetti mér að búa til fallega bók ! Síðasta sýningarhelgi Þann 19. desember lýk- ur sýningum Bjarkar Guðnadóttur, Elífðin er líklegast núna, og Ráð- hildar Ingadóttur, Inni í kuðungi, einn díll, í Nýlistasafninu. Sýn- ingarnar hafa hlotið góðar móttökur hjá bæði sýningar- gestum og gagnrýnendum. Sýning- um safnsins er nú lokið í ár og verð- ur safnið lokað til 8. janúar en þá munu átta listakonur frá Norður- löndunum opna sýningu sem heitir Carnal Knowledge. Hlynur Helga- son opnar sýningu sem ber heitið Niður Klapparstíginn. BÆKUR HLYNUR PÁLL PÁLSSON Átakadagar Elínar Höf. Elín Torfadóttir/Kolbrún Bergþórsdóttir Útg. Vaka/Helgafell Elín Torfadóttir er sannkölluð kjarna- kona. Hún var gift einum ástsælasta og ötulasta verkalýðsforingja Íslandssög- unnar, Guðmundi „jaka“ Guðmundssyni. Þau komu úr sitthvorri áttinni og fengu gjörólíkt uppeldi en engu að síður tókust ástir með þeim snemma á lífsleiðinni. Á meðan Gvendur barðist fyrir auknum réttindum verkalýðsins átti Elín ríkan þátt í að setja á fót Athöfn, stéttarfélag fóstra, en hún var ein af fyrstu lærðu fóstrum Ís- lands – var fremst í stafrófinu og útskrif- aðist því fyrst allra úr fyrsta árgangi Upp- eldisskóla barnavinafélagsins Sumargjaf- ar. Ævisaga Elínar ber titilinn Átakadagar. Sagan er óneitanlega áhrifarík en auð- mjúk og heimilisleg upprifjunin dregur svolítið úr krafti frásagnarinnar. Þótt það hafi verið gaman að lesa um börnin sem voru í hennar umsjá á leikskólunum og ýmisleg uppátæki þeirra, þá var hrikalegt skilningsleysi almennings til leikskól- anna og fóstrustéttarinnar fyrstu árin langtum meira áhugavekjandi. Til að mynda hefði hugsanlega mátt eyða meira púðri í ótrúleg samskipti hennar við Hannibal Valdimarsson og aðra ráða- menn, sem lítinn áhuga höfðu á starfi fóstra eða réttindabaráttu þeirra, og þá minna í sögur af þjóðþekktum einstakl- ingum á unga aldri. Kolbrún Bergþórsdóttir skrásetur bók- ina af mikilli prýði. Uppbyggingin er að mestu í réttri tímaröð, hefst á æskuárun- um og endar með átakanlegri frásögn Elínar af andláti eiginmanns hennar, en flakkar lítillega í tíma til að tengja söguna enn betur saman. Stíllinn er vandlega út- færður og einkennist af málfari Elínar, enda frásögnin í fyrstu persónu. Sem betur fer fellur frásögnin alls ekki í þá gryfju að verða þurr staðreyndarfrásögn (líkt og svo oft vill gerast með íslenskar ævisögur) og beinir sjónum lesandans mun fremur að daglegu lífi þeirra hjóna, þó einkum starfs- og námsferli Elínar. Minningar um hversdagslega hluti úr æsku, eins og tiltekin áferð pappírs, gera söguna enn mannlegri og hlýlegri. En vitaskuld fléttast átakadagar inn í sög- una. Öll börnin þeirra fæddust á átaka- dögum og ólust upp við erfiðar aðstæð- ur og tíðar fjarvistir Guðmundar, sem reyndist þeim samt vel sem faðir. Þá er grátlegt að lesa um aðfarir ýmissa þjóð- félagsafla gegn Guðmundi í Hafskips- málinu eftir allt það sem þau hjónin höfðu lagt á sig í þágu almennings. Átakadagar er virkilega vönduð bók. Frágangur er til sóma, ekki innsláttarvillu að finna sem virðist því miður vera und- antekning frekar en regla í bókaútgáfu þessi jól. Samspil Kolbrúnar og Elínar virkar afar vel sem birtist einna helst í sérlega góðu flæði í textanum. Afrakstur- inn er heillandi ævisaga með mikilvæg- um skilaboðum til yngri kynslóða: Þeim almennu réttindum sem þykja sjálfsagð- ur hlutur á vinnnumarkaði í dag þurfti að berjast fyrir á sínum tíma með kjafti og klóm. Þau komu ekki af sjálfu sér heldur fyrir tilstilli baráttufólks eins og hjónanna Elínar og Guðmundar heitins. ■ Heillandi ævisaga kjarnakonu Þakkir Ísak Máni og fjölskylda senda öllum sem hafa styrkt þau í veikindum Ísaks Mána þakkarkveðjur og óska gleðilegra jóla og friðsemdar á nýju ári. Ormstunga hefursent frá sér Land- fræðissögu Íslands II – Hugmyndir manna um Ísland, náttúru- skoðun og rannsóknir fyrr og síðar eftir Þorvald Thoroddsen. Landfræðissaga Íslands er undirstöðurit um könnun landsins og fjallar jafnframt um ýmsa aðra þætti íslenskrar menningar- sögu. Þetta stórvirki Þorvalds Thoroddsen kemur nú út í nýrri og myndskreyttri út- gáfu en upphaflega kom verkið út hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi á árun- um 1892-1904. Fyrsta bindi af fjórum kom út á síðasta ári. Í ritinu sem nú kemur út fjallar Þorvaldur einkum um hugmyndir manna á 17. öld og fyrri hluta 18. aldar og lýsir því hvernig galdrafár, hjátrú og hindur- vitni hrærast saman við vaxandi vitneskju í náttúrufræðum. Segir meðal annars frá séra Jóni Magnússyni og píslarsögu hans, Jóni lærða Guðmundssyni, Jóni Ólafssyni frá Grunnavík og séra Jóni Daðasyni í Arnarbæ og Gísla Magnús- syni á Hlíðarenda. Í þessu merka menningarsögulega riti dró Þorvaldur Thoroddsen í fyrsta sinn fram í dagsljósið heimildir sem voru áður lítt eða ókunnar og skapaði með því grundvallarrit sem hiklaust má kalla sígilt stórvirki. ■ NÝJAR BÆKUR GÍSLI SIGURÐSSON Með því að tefla fram fegurð landsins á öllum árstímum verður myndefnið miklu magnaðra. » BETRI SJÓNVARPSDAGSKRÁ 84-85 (52-53) Menning 16.12.2004 19:30 Page 2

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.