Fréttablaðið - 17.12.2004, Side 89

Fréttablaðið - 17.12.2004, Side 89
56 17. desember 2004 FÖSTUDAGUR ■ ■ LISTOPNANIR  14.00 Sigurbjörn Kristinsson myndlistamaður sýnir málverk og tússmyndir í Menningarsalnum á Hrafnistu í Hafnarfirði. ■ ■ TÓNLEIKAR  14.00 Jólatónleikar Tónlistarskóla F.Í.H. verða haldnir í sal skólans að Rauðagerði 27. Fram koma nemendur á öllum stigum.  17.00 Hljómsveitin Ampop spilar í Smekkleysu Plötubúð, Laugavegi 59.  17.00 Reggíhljómsveitin Hjálmar spilar í 12 tónum við Skólvörðu- stíg. Ljúfir tónar að loknu búðarrápi Allt frá árinu 1978 hefur Kór Langholtskirkju haldið þeim sið að bjóða upp á jólatónleika síðla kvölds skömmu fyrir jól, þar sem fólk getur komið og hlustað á falleg jólalög eftir búðarráp kvöldsins. „Við byrjuðum á þessu fyrir 26 árum og vorum tvö fyrstu árin í Landakotskirkju,“ segir Jón Stef- ánsson stjórnandi. „Síðan fluttum við okkur í Bústaðakirkju, en fór- um svo í Langholtskirkju sem þá var varla fokheld. Það var ekki einu sinni búið að setja plast í gluggana. Það var tíu stiga frost og við köllum þetta gjarnan vett- lingatónleikana, því allir voru í vettlingum og klappið þess vegna mjög dempað.“ Þá varð jafnframt til sú hefð að bjóða fólki upp á heitt súkkulaði og piparkökur, sem haldist hefur allar götur síðan. Lengi vel voru jólasöngvarnir aðeins einu sinni hvert ár, jafnan síðasta föstudagskvöldið fyrir jól. Aðsóknin jókst hins vegar ár frá ári, og þar kom að kórinn sá sér ekki fært annað en að fjölga tón- leikunum. „Við byrjuðum á að vera með tvenna tónleika, en síðan urðu þeir þrennir og tvisvar sinnum höfum við þurft að vera með ferna tónleika. Aðsóknin var orðin svo mikil að fólk var farið að standa á bak við kórinn og við þurftum að opna inn í safnaðar- heimili kirkjunnar.“ Einsöngvarar með kórnum í ár verða þau Ágúst Ólafsson og Ólöf Kolbrún Harðardóttir. Auk Kórs Langholtskirkju syngur Gradu- alekórinn nokkur lög. Hljóðfæraleikarar eru Hall- fríður Ólafsdóttir og Arna Kristín Einarsdóttir flauta, Monika Abendroth harpa, Jón Sigurðsson kontrabassi, Lára Bryndís Egg- ertsdóttir orgel, Kjartan Valde- marsson píanó og Pétur Grétars- son trommur. Fyrir tveimur árum voru jóla- söngvar Kórs Langholtskirkju teknir upp og var sú upptaka ný- verið gefin út á tvöföldum geisladiski sem heitir „Gaudete - Jólasöngvar Kórs Langholts- kirkju“. Diskurinn verður til sölu á tón- leikunum, sem verða þrennir í ár. Þeir fyrstu hefjast klukkan 23 í kvöld, síðan verða tónleikar klukkan 23 annað kvöld og loks verða síðustu tónleikarnir klukk- an 20 á sunnudagskvöldið. ■ HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 14 15 16 17 18 19 20 Föstudagur DESEMBER ■ TÓNLEIKAR LAUGARDAGUR 18/12 BÓKAKYNNING OG LEIKLESTUR Í samstarfi Borgarbókasafns og LHÍ Kristín Ómarsdóttir og Bragi Ólafsson lesa úr nýju bókunum. Flutt brot úr 3 leikritum þeirra. Forsala á SEGÐU MÉR ALLT, 2. - 5. sýningu - kl 14:00 - Aðgangur ókeypis - SUNNUDAGUR 19/12 SKÁKMÓT HELLISINS KL. 11:00 JÓLASÝNING LISTDANSSKÓLA ÍSLANDS KL. 16:00 Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík GJAFAKORT Í BORGARLEIKHÚSIÐ - GILDIR ENDALAUST - Gjafakort fyrir einn kr. 2.700 - gjafakort fyrir tvo kr. 5.400 Gjafakort á Línu Langsokk fyrir einn kr. 2.000, fyrir tvo kr. 4.000 VIÐ SENDUM GJAFAKORTIN HEIM ÞÉR AÐ KOSTNAÐARLAUSU - pantið í síma 568 8000 eða á midasala@borgarleikhus.is Miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is Miðasala, sími 568 8000 AUKASÝNING mið. 29.12 kl. 20 LOKASÝNING fim. 30.12 kl. 20 Uppselt ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR Miðasalan er opin frá 14-18, lokað á sunnudögum Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga. sun. 19. des. kl. 14- sun. 26. des kl. 14 SÍÐUSTU SÝNINGAR Gjafakort í Óperuna - upplögð gjöf fyrir músikalska vini, ættingja, starfsmenn og viðskiptavini 20% afsláttur af völdum útgáfum af óperunni Tosca í verslun Skífunnar á Laugavegi 26 gegn framvísun gjafkorts. Gjafakort seld í miðasölu. Tosca – Frumsýning 11. febrúar – Uppselt – 2.sýning 13. febrúar 3. sýning 18. febrúar – 4. sýning 20. febrúar Miðasala á netinu: www.opera.is Mán. 27. des. kl. 20 Fös. 17. des. kl. 12.00 Lau. 18. des kl. 14.00 Sun. 19. des. kl. 18.00 og 20.00 Mán. 20. des. kl. 16.00 Þri. 21. des. kl. 14.00 og 20.00 Mið. 22. des. kl. 16.00 Fim. 23. des. kl. 14.00 og 20.00 Jólin syngja Mið. 22. des. kl. 22 Tónleikar: Ragnheiður Gröndal með hljómsveit Mán. 20. des. kl. 20 Guðrún og Javier Mezzó og gítar ÁGÚST ÓLAFSSON Margir hrifust af söng Ágústs í hlutverki rakarans morðóða í Íslensku óperunni í haust. Nú um helgina syngur hann einsöng á jólatónleikum Kórs Langholts- kirkju ásamt Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL LI 88-89 (56-57) Slanga 16.12.2004 20:56 Page 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.