Fréttablaðið - 17.12.2004, Side 97
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Hagsýn utan-
ríkisþjónusta
Sem fyrrverandi sendisveinn hlýtég að fagna því hversu mörgum
Íslendingum hefur tekist að komast
á toppinn í þessari atvinnugrein og
ná sendiherratign. Ég hafði ekki
þær sálargáfur sem koma að gagni
við að hjóla framabrautina á enda
og yfirgaf fagið þegar ég var fjórt-
án ára og sneri mér að öðrum störf-
um. Ef til vill voru það launin, 1.500
krónur á mánuði, sem ekki höfðu
nóg aðdráttarafl til þess að ég gerð-
ist sendisveinn upp á lífstíð, enda
óraði mig ekki fyrir því að duglegir
menn – og jafnvel konur – gætu
með tímanum unnið sig upp í sendi-
herrastöður í stórum hópum og hal-
að inn milljónkall á mánuði.
HÉR Á ÁRUM ÁÐUR voru
einkum börn notuð til sendiferða og
fullorðnir sendisveinar nutu álíka
mikillar virðingar og jólasveinar
gera nú, sem bendir til þess að ekki
sé útilokað að mikill frami bíði jóla-
sveina, og innan tíðar verði þeim
fjölgað úr 13 í 35 og starfsheitinu
breytt í jólaherrar. Þá koma vitan-
lega til sögunnar ný jólasveinanöfn
sem skírskota til þess þjóðfélags
sem getur þá af sér: Kokteilgámur,
Framakrækir, Rassasleikir, Bit-
lingasníkir, Partígaur og svo fram-
vegis.
AUÐVITAÐ er það forgangsmál
að verja sem flestum milljörðum til
þess að fjölga í sendiherrastéttinni,
áður en allir fjármunir ríkisins
hverfa í heilbrigðishítina, því að
auðvitað kostar það endalausa pen-
inga ef læknar halda áfram að
moka rándýrum geðlyfjum í helm-
ing þjóðarinnar og skrifa upp á ör-
orkuvottorð fyrir hinn helminginn.
ÞAÐ DYLST engum að greinileg-
ur sparnaðarvilji og hagsýni er
ríkjandi í utanríkisþjónustunni. Til
dæmis hefur pólitískum flótta-
manni verið boðið hæli hér á landi,
sem getur orðið hinn mesti bú-
hnykkur því að maðurinn er mátu-
lega frægur til að hingaðkoma hans
geti orðið landkynning á við heil-
síðuauglýsingu í New York Times.
Þar fyrir utan hefur gata í Reykja-
vík þegar verið nefnd eftir honum
svo að ekki þarf að leggja í auka-
kostnað við að breyta götuskiltum
til að sýna honum sóma. Við, þessir
fjórir íbúar við Fischersund í
Grjótaþorpi, erum stolt af okkar
manni.
BAKÞANKAR
ÞRÁINS BERTELSSONAR
96 (64) Bak 16.12.2004 20:33 Page 2