Fréttablaðið - 18.12.2004, Blaðsíða 1
6
Opið í dag
10-22
dagar til jóla
Jólagjafahandbókin
- vinningsnúmer dagsins:
96213Emilíana Torrini:
Tilnefnd til
Grammy-verðlauna
SÍÐA 50 OG 51
▲
Katla:
Eldstöð í ham
SÍÐUR 48 OG 49
▲
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
LAUGARDAGUR
HK MÆTIR ÞÓR Þrír leikir verða í
DHL-deild karla í handbolta klukkan 14.
Fram tekur á móti FH, HK sækir Þór heim
og Afturelding og KA mætast í Mosfellsbæ.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
18. desember 2004 – 345. tölublað – 4. árgangur
DÆMDIR FYRIR KÓKAÍNSMYGL
Sigurjón Gunnsteinsson og Salvar Hall-
dór Björnsson voru í gær dæmdir í
fimmtán mánaða fangelsi hvor fyrir
kókaíninnflutning. Sjá síðu 2
100 MILLJÓNA AFGANGUR
Eftir breytingar á fjárhagsáætlun Reykjavík-
urborgar lækkar áætlaður rekstarafgangur
um 450 milljónir. Sjálfstæðismenn segja
borgina komna í fjárhagslega erfiðleika.
Sjá síðu 4
DÓPIÐ HEFUR ALLT SKILAÐ SÉR
Nígeríumaðurinn sem tekinn var á þriðju-
dagskvöld í Leifsstöð með ætlað kókaín í far-
angri og innvortis er talinn hafa verið með
300 til 450 grömm af efninu. Sjá síðu 2
LÍKUR Á SNJÓKOMU UM JÓLIN
Á bilinu 65 til 95 prósent líkur eru á snjó-
komu á Norðurlandi og Vestfjörðum á jóla-
dag. Um 35 til 65 prósent líkur eru á hvítum
jólum annars staðar á landinu. Sjá síðu 8
Kvikmyndir 70
Tónlist 84
Leikhús 84
Myndlist 84
Íþróttir 54
Sjónvarp 72
ÞAÐ VERÐUR YFIRLEITT fremur
hægur vindur í dag, síst þó norðvestan-
lands. Él um landið vestanvert. Sjá síðu 4
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Úttekt Fréttablaðsins á refsingum:
Nítján sitja í gæsluvarðhaldi
FANGELSISMÁL Nítján manns sitja
nú í gæsluvarðhaldi grunaðir um
alvarlega glæpi. Það er óvenju-
margt að mati lögreglu og eins eru
mörg alvarleg afbrot orsök þess.
Flestir hafa verið handteknir
vegna ofbeldismála og fíkniefna-
mála en einnig sitja innbrotsþjóf-
ar bak við lás og slá í síbrota-
gæslu.
Í fréttaskýringu sem birtist í
blaðinu í dag og á morgun segir
fangi á Litla-Hrauni frá þriggja
mánaða vist sinni í gæsluvarð-
haldi. Þar af sat hann sex vikur í
einangrun þar sem hann var lok-
aður inni í klefa í 23 klukkutíma
á sólarhring. Í gæsluvarðhaldinu
skrifaði hann niður sautján
hundruð til tvö þúsund atriði um
hvernig hlutirnir hefðu getað
verið öðruvísi þegar hann varð
manni að bana. Hann segir tím-
ann hafa farið í að sættast við
sjálfan sig og sínar gjörðir, sem
séu óbreytanlegar. „Samviskan
nagar alltaf en ég verð að læra að
lifa með því. Það er ekki annað í
boði,“ segir fanginn í viðtali á
síðu 43. ■
HEILBRIGÐISMÁL Allt gjafasæði sem
notað er til tæknifrjóvgunar hér á
landi er keypt inn frá dönskum
sæðisbanka, að sögn Þórðar Ósk-
arssonar læknis á tæknifrjóvgun-
ardeild Art Medica í Kópavogi.
Mikið hefur verið rætt um
tæknifrjóvgun í kjölfar ákvörðun-
ar forráðamanna Art Medica um
að greiða hérlendum konum fyrir
egg til frjóvgunar. Hvað varðar
öflun sæðis er það með öðrum
hætti.
„Við kaupum inn allt gjafasæði
frá þessum danska banka,“ sagði
Þórður. „Við þekkjum hvernig
hann vinnur og treystum sýnum
hans. Það er mjög hagkvæmt að
gera þetta með þessum hætti, auk
þess sem enginn sæðisbanki er til
hér á landi, þar sem sæðið gæti
verið tilbúið þegar á þyrfti að
halda.“
Spurður um verð á einingu sæð-
is kominni hingað til lands sagði
Þórður að skammturinn væri á bil-
inu 12-14.000 krónur. Verðið gæti þó
verið hærra ef um magnafslátt
væri að ræða. Þá ætti eftir að falla
til kostnaður við meðferðina sjálfa,
það er að koma sæðisfrumunum
fyrir, fylgjast með egglosi og fleira.
Þórður sagði að tæknilega séð
væri vel hægt að fá sæði úr karl-
manni hérlendis
og frjóvga egg
konu með því.
„Þá verður að
koma beiðni frá
viðkomandi pari
um að það kjósi ís-
lenskan gjafa. Ef
til vill myndu þau
vilja einhvern
ákveðinn gjafa,
sem er alveg
heimilt. En þá yrð-
um við að tala við
hann og rannsaka
hann. Hann yrði að undirgangast
prufur og skila inn sýni, sem við
yrðum að geyma í hálft ár. Að því
liðnu yrðum við að endurtaka allar
rannsóknir á honum aftur. Við yrð-
um að vinna eftir nákvæmlega
sömu reglum og gilda í sæðisbank-
anum sem við verslum við. Það
myndi tefja meðferðina um hálft
ár ef þessi leið væri farin, en
vissulega er hún heimil.“
Þórður sagði að gera mætti ráð
fyrir að til yrðu 4-5 börn á ári með
gjafasæði. Það hlutfall í blöndun
þjóðarinnar sem væri tilkomið
með því væri því aðeins brotabrot
af allri blöndun landsmanna við
aðrar þjóðir. Sjá einnig bls. 2
jss@frettabladid.is
Allt gjafasæði hér
keypt frá Danmörku
Allt gjafasæði sem notað er til tæknifrjóvgunar hér er keypt frá dönskum sæðisbanka. Skammturinn
kostar 12-14.000 krónur kominn hingað til lands. Þetta fyrirkomulag flýtir meðferðinni um hálft ár.
ÞÓRÐUR
ÓSKARSSON
Það flýtir tækni-
frjóvgunarmeð-
ferð um hálft ár
að nota erlent
sæði.
Bobby Fischer:
Gæti fengið
vegabréf
STJÓRNMÁL Hugsanlegt er að Bobby
Fischer geti fengið svokallað út-
lendingavegabréf ef hann kemur
hingað til lands. Georg Lárusson,
forstöðumað-
ur Útlend-
ingastofnun-
ar, segir að
með slíkt
vegabréf upp
á vasann og
íslenskt dval-
arleyfi geti
Fischer nán-
ast ferðast að
vild. Davíð Oddsson utanríkisráð-
herra skýrði frá því í gær að hann
teldi hugsanleg brot Fischers gegn
viðskiptabanni Sameinuðu þjóðanna
á gömlu Júgóslavíu fyrnd sam-
kvæmt íslenskum lögum. Sjá bls. 6
- ás
FISCHER OG SPASSKY
Þótt Fischer fái dvalar-
leyfi hér á landi er ekki
þar með sagt að hann
setjist hér að.
Í MIÐJU BÓKASTRÍÐI Bóksalan er í hámarki þessa dagana og rithöfundar fara um víðan völl til að kynna bækur sínar. Tveir ástsælir
höfundar voru að aðstoða bóksölufólk í verslun Máls og menningar á Laugaveginum í gær, en báðir eiga þeir bækur í bókaflóðinu fyrir jólin;
Einar Már Guðmundsson með bráðfyndið Bítlaávarpið sitt og Þorvaldur Þorsteinsson með lokabindið af dásamlegum Blíðfinni sínum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R
Bjarni Sigurðsson frá Geysi:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Jómfrúrferð á
blæjujeppa
● bílar ● jólin koma
Guðjón Þórðarson:
▲
SÍÐA 60
Kominn heim
til að vera
● gefur england upp á bátinn í bili
Brettafélag Íslands:
▲
SÍÐA 78
Snjóbrettastökk í
Smáralind
● heljarinnar sýning í dag
Pilobolus:
▲
SÍÐA 56
Sjónrænt
dansverk
● á leið til landsins
01 Forsíða 17.12.2004 20:58 Page 1