Fréttablaðið - 18.12.2004, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 18.12.2004, Blaðsíða 4
4 18. desember 2004 LAUGARDAGUR Útgáfa nýrra atvinnuleyfa: Fjölgaði um rúmlega helming VINNUMARKAÐURINN Atvinnuleyfi í flokki nýrra tímabundinna leyfa fjölgaði um meira en helming á fyrstu ellefu mánuðum þessa árs miðað við sama tíma í fyrra. Alls voru gefin 3,356 atvinnu- leyfi fyrir útlendinga fyrstu ellefu mánuði ársins samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofn- un. Á sama tíma í fyrra voru gefin út 3.014 atvinnuleyfi en alls voru gefin út 3,299 atvinnuleyfi árið 2003. Mesta fjölgunin á milli ára er í flokki nýrra tímabundinna leyfa en á fyrstu ellefu mánuðum ársins voru þau 1.230, en 512 á sama tíma árið 2003. Framlenging atvinnuleyfa fækkar hins vegar mjög, úr 1,303 í 969. „Síðustu tvö ár drógum við mjög úr nýjum leyfum og þess vegna eru færri sem koma til framlengingar núna,“ segir Gissur Pétursson, forstjóri Vinnu- málastofnunar. „Núna höfum við fjölgað nýjum leyfum aftur vegna stórframkvæmda sem eru að komast á fullt skrið og hámarkinu verður náð árið 2006, en svo dregur hratt úr því.“ - bs REYKJAVÍKURBORG Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar var afgreidd á fundi borgarstjórnar aðfaranótt föstudags. Nokkrar breytingar urðu á áætluninni á milli funda borgarstjórnar. Í stað rekstaraf- gangs upp á 554 milljónir er nú gert ráð fyrir afgangi upp á tæpar 100 milljónir. Steinunn Valdís Ósk- arsdóttir borgarstjóri segir að helstu breytingar séu um 300 millj- óna króna framlag vegna samn- ings um séreignalífeyrissjóð og 90 milljónir vegna landnámsskálans. Þá sé það einnig útgjaldaauki að hækkun á leikskólagjöldum til þess hóps þar sem annar aðilinn er í námi komi til framkvæmda í áföngum á næsta ári, og sé því frestað. Þá eigi eftir að taka tillit til kostnaðarauka vegna kjara- samninga kennara og leikskóla- kennara, en í áætluninni var gert ráð fyrir þriggja prósenta hækkun á launum. „Kostnaðarauki við kjarasamninga hleypur á einhverj- um hundruðum milljóna. En á móti koma útsvarstekjur, auk þess sem framlagi vegna séreignalífeyris- sjóðs er trúlega ofaukið. Væntan- lega verður áætlunin endurskoðuð þegar þetta liggur fyrir.“ Í ljósi þessa segir Steinunn Val- dís að ekki sé farið í felur með að verið sé að auka tekjur með því að hækka útsvarið. „Það eru öll sveitarfélög í sömu sporum. Þau eru öll að auka tekjur sínar með einhverjum hætti.“ Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna, segir það valda áhyggjum hversu ógn- arhratt skuldir borgarinnar, bæði heildarskuldir og skuldir borgar- sjóðs, hafa vaxið á síðustu árum. „Þrátt fyrir gríðarlegar tekjur á góðæristímum, tekjur hafa hækk- að árlega og borgarstjóður hefur fengið marga milljarða frá Orku- veitunni, þá er R-listinn að hækka útsvarið í topp og hækka fast- eignaskatta. Þetta sýnir að borgin er komin í fjárhagslega erfið- leika, langstærsta og öflugasta sveitarfélagið. Það er ekkert sveitarfélag sem býr jafn vel og Reykjavíkurborg. Samt sjá þeir sig knúna til að hækka útsvarið í topp.“ svanborg@frettabladid.is Sameinaður skóli: Guðfinna verður ráðin SKÓLAMÁL Guðfinna S. Bjarnadóttir, núverandi rektor Háskólans í Reykjavík, hefur verið ráðin rektor sameinaðs skóla Háskólans í Reykjavík og Tækniháskóla Íslands. Í fréttatilkynningu kemur fram að Stefanía K. Karlsdóttir, rektor Tækniháskólans, hafi ekki sóst eftir stöðunni þar sem hún hyggist ljúka doktorsnámi sínu á næstu misser- um. Í tilkynningunni kemur enn fremur fram að stofnuð verði tækni- og verkfræðideild í nýjum samein- uðum skóla. Þar verður kennd rekstrarverkfræði, fjármálaverk- fræði, hugbúnaðarverkfræði og heilbrigðisverkfræði. - th Þróunarmál: Framlög þrefaldast FJÁRLÖG Aukning hefur orðið á op- inberum framlögum til þróunar- mála á síðustu árum. Framlög á verðlagi hvers árs hafa nær þre- faldast á fimm árum, eða úr 583 milljónum króna árið 1999 í 1.644 milljónir árið 2004. Samkvæmt fjárlögum verða framlög til þró- unarmála 2.029 milljónir króna á næsta ári. ■ VÖRUBÍLLINN Eins og sjá má skemmdist bíllinn talsvert við veltuna. Vörubíll í Garðabæ: Valt með fullfermi UMFERÐARÓHAPP Engan sakaði þeg- ar vörubíll með fullfermi af möl valt í Garðabæ á fimmta tímanum í gær. Að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði var bíllinn staddur í beygju þar sem ann reyndi að sturta hlassinu af pallinum þegar óhappið varð. Vörubíllinn skemmdist tölu- vert en engin önnur ökutæki munu hafa verið í grennd við bíl- inn þegar hann valt, enda var hann staddur í byggingarlandi. Þetta er annar vörubíllinn á jafn mörgum dögum sem veltur á höf- uðborgarsvæðinu. ■ ■ AFRÍKA Var rétt að veita Bobby Fischer dvalarleyfi á Íslandi? Spurning dagsins í dag: Á Guðjón Þórðarson eftir að gera Keflavík að Íslandsmeisturum í fót- bolta innan þriggja ára? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 31% 69% Nei Já KJÖRKASSINN Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun BÍLL FÓRNARLAMBANNA Árásarmennirnir kveiktu í bílnum eftir að hafa myrt fjóra menn sem í honum voru. Írak: Dregnir út og myrtir ÍRAK, AP Fjórir menn voru dregnir út úr fólksbíl við borgina Mosul í Írak og myrtir. Talið er að þrír mannanna hafi verið útlendingar en einn þeirra hafi verið Íraki. Ekki er vitað af hvaða þjóðerni mennirnir þrír voru. Grunur leikur á að uppreisnar- menn hafi myrt mennina. Mikil ólga hefur verið í Mosul síðan um miðjan nóvember þegar uppreisn- armenn réðust á lögreglustöðvar í borginni og stálu vopnum. Dag- lega er ráðist á bandaríska her- menn og liðsmenn íraska þjóðvarnarliðsins. ■ VIÐKVÆMT ÁSTAND Í DARFUR Talið er að stjórnvöld í Súdan séu að undirbúa nýja sókn gegn upp- reisnarmönnum í Darfur-héraði. Það slitnaði upp úr friðarviðræð- um milli uppreisnarmanna og stjórnvalda eftir að uppreisnar- mennirnir sökuðu stjórnvöld um að rjúfa vopnahlé. Um 70 þúsund manns hafa látist í átökum í Darfur og meira en 1,5 milljón manna misst heimili sitt. „Fullkomið verk“ „Vélar tímans er allt að því fullkomið verk.“ Sigurður Gylfi Magnússon, kistan.is „Með hinum mikla sagnabálki sínum ljær Pétur Gunnarsson tilveru Íslendinga aukna merkingu. Í þeim skilningi er hann sagnaskáld Íslands.“ Torfi Tuliníus, Mbl. „Eitthvert metnaðarfyllsta og skemmtilegasta verkefni sem íslenskur prósahöfundur hefur tekist á hendur... þegar Pétur skrifar best standa fáir honum jafnfætis.“ Halldór Guðmundsson, Frbl. GISSUR PÉTURSSON Nýjum leyfum var fækkað síðustu tvö ár en hefur aftur verið fjölgað vegna stórframkvæmda. RÁÐHÚS REYKJAVÍKUR Meirihluti borgarstjórnar boðar hagræðingu í rekstri þriðja árið í röð. 100 milljóna afgangur í stað 554 milljóna Eftir breytingar á fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar lækkar áætlaður rekstarafgangur um 450 milljónir. Sjálfstæðismenn segja borgina komna í fjárhagslega erfiðleika. 04-05 17.12.2004 20:37 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.