Fréttablaðið - 18.12.2004, Page 15

Fréttablaðið - 18.12.2004, Page 15
15LAUGARDAGUR 18. desember 2004 Félagsmálaráðherrar: Vilja auka velmegun EVRÓPUSAMSTARF Fyrsti fundur fé- lagsmálaráðherra Evrópuríkja sem vinna að átaksverkefni um bætta lýðheilsu í Norður-Evrópu var hald- inn í Tallinn í Eistlandi í gær. Ráðherrarnir hafa rætt um út- breiðslu alnæmis, heilsufar fanga og varnir við neyslu vímuefna auk almennrar heilsugæslu. Óskaði fulltrúi Rússlands eftir tafarlausri aðstoð til að hefta útbreiðslu alnæmis. Markmiði fundanna, samkvæmt tilkynningu, er að finna leiðir til að bæta heilsufar fólks á Norðurlönd- um, í Rússlandi og öðrum þátttöku- ríkjum. - gag SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfis- ráðherra telur að loftslagsvæn tækni, ekki síst í orkumálum, geti átt stóran þátt í að draga úr veðurfarsbreytingum og losun gróðurhúsalofttegunda af þeirra völdum. Þetta sagði hún á 10. aðildarríkjaþingi loftslagssamn- ings Sameinuðu þjóðanna nú í vikunni. Umhverfisráðherra tilkynnti að Íslendingar hygðust auka þró- unaraðstoð sína og að verulegum hluta þessarar aukningar yrði varið í að styðja framkvæmdir á sviði endurnýjanlegrar orku í smáeyjaríkjum. Hún nefndi einnig að Jarð- hitaskóli Sameinuðu þjóðanna hygðist færa út kvíarnar og halda þjálfunarnámskeið í Afríku, Asíu og Mið-Ameríku á næstu fjórum árum. Hundruð milljóna manna eigi kost á að nýta sér hreina orku frá jarðhita víðsvegar í heiminum. Íslendingar hafi náð miklum ár- angri við nýtingu endurnýjan- legra orkulinda og vilji aðstoða önnur ríki við að nýta svipaðar auðlindir. Önnur tækni sem geti dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda sé nýting vetnis sem orkubera. ■ Umhverfisráðherra: Íslendingar auka þróunaraðstoðina STYRKJA MÆÐRASTYRKSNEFND Hér afhenda framkvæmdastjórar Hag- kaupa og Velferðarsjóðs barna styrki til Mæðrastyrksnefndar og Hjálparstofnunar kirkjunnar. Mæðrastyrksnefnd: Öll framlög nýtast vel STYRKVEITING Um 2.000 manns hafa sótt til Mæðrastyrksnefnd- ar fyrir þessi jól. Ragnhildur Guðmundsdóttir, formaður nefndarinnar, segir að verði ásóknin jafn mikil síðustu tvo daga úthlutunarinnar og hún hafi verið verði allt í járnum hjá nefndinni. Ragnhildur segir Mæðra- styrksnefnd hafa notið mikillar velvildar fyrirtækja fyrir þessi jól og allt árið. Heimili hafi einnig látið til sín taka: „Það virðist allt nýtast hér“. Ragnhildur á von á 1.200 til 1.500 manns síðustu tvo úthlut- unardagana, sem eru mánudag- ur og þriðjudagur. - gag UNNU Í LITASAMKEPPNI Rakel Sif, Alexander, Árni Már, Elvar og Thelma Mjöll á bleikum bíl fögnuðu sigri í litasamkeppni Dótabúðarinnar. Á myndinni eru einnig Alli froskur og Sigurður. Dót um jólin: Fimm unnu í litakeppni SIGURVEGARAR Fimm krakkar hlutu verðlaun í litasamkeppni Dótabúðarinnar í gær. Þau voru Elvar, Thelma Mjöll, Rakel Sif, Alexander og Árni Már, sem voru meðal 94 barna sem sendu inn teikningar í keppninni. Litasamkeppnin var haldin í þriðja skipti og segir Sigurður Þorbergsson, rekstarstjóri Dótabúarinnar, að brugðið sé á leik til að kæta börnin í jólamán- uðinum. Börnin drógu um vinningana og hlaut Thelma Mjöll þann stærsta, rafknúinn bíl. - gag FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M SIGRÍÐUR ANNA ÞÓRÐARDÓTTIR Umhverfisráðherra tilkynnti að Íslendingar myndu auka þróunaraðstoð sína á 10. að- ildarþingi Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I 14-15 17.12.2004 19:14 Page 3

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.