Fréttablaðið - 18.12.2004, Qupperneq 67
LAUGARDAGUR 18. desember 2004 51
talið og við enduðum á því að
pródúsera það líka og gera eig-
inlega allt á því. Þannig að það
var mjög gaman.“
Slow var ákaflega vinsælt á
sínum tíma og mikið spilað á út-
varpsstöðvum. Vanalega fá höf-
undar slíkra laga vænan skerf
af vinsældunum í sinn vasa og
ætti Emiliana ekki að vera þar
nein undantekning. Spurð um
höfundarlaunin segist Emilina
ekki vilja tala um peninga. Hún
segist vera ákaflega gamaldags
í þeim efnum og roðni bara ef
einhver minnist á þá.
Margir draumar rættust
Þáttur Emiliönu í kvikmyndinni
Lord of the Rings: The Two
Towers vakti mikla athygli á
sínum tíma, enda hafði fyrsta
myndin í þríleiknum notið mik-
illar hylli. Hún var fengin til að
syngja aðallag myndarinnar,
Gollum’s Song, og segir marga
drauma hafa ræst við það verk-
efni. „Það var eiginlega það
besta í heimi. Ég var rosalegur
aðdáandi bókanna þegar ég var
krakki. Þegar ég sá fyrstu
myndina óskaði ég mér að fá að
vera með, þótt ég hefði bara
fengið að vera tré eða eitthvað.
Sá draumur rættist og ég fékk
líka að syngja í stúdíói eitt í
Abbey Road sem ég hefði lík-
lega aldrei getað gert. Það var
líka frábært að vera bendluð við
Howard Shore, kvikmyndahöf-
undinn. Síðan er leikstjórinn
Peter Jackson alveg frábær.“
Emiliana er ekki viss um að
lagið hafi opnað dyr fyrir sig.
Hún segist vera dálítið í sínum
eigin heimi í borginni Brighton,
þar sem hún hefur búið undan-
farin tvö ár. Skiptir hún sér
frekar lítið að því sem er að ger-
ast úti í hinum stóra heimi og
hafi ekki orðið vör við aukin
tækifæri í kjölfar lagsins. Hún
segist heldur ekki vita hvort
lagið Slow hafi opnað einhverjar
stærri dyr fyrir sig. „Það er
erfitt að segja eins og er því við
helltum okkur bara aftur í plöt-
una. Við fórum ekkert að skrifa
fullt af popplögum allt í einu.“
Hún segist hafa fengið einhverj-
ar beiðnir um að semja fleiri lög
en vill ekki gefa upp nein nöfn í
því samhengi. „Þetta verða að
vera listamenn sem maður fílar.
Við höfum eiginlega engan tíma
til að gera það alveg strax.
Kannski eftir áramót.“
Lífið í Brighton
Emiliana fluttist út til Bretlands
fyrir sjö árum eftir að hafa ver-
ið áberandi hér á landi á tónlist-
arsviðinu. Fyrstu fimm árin bjó
hún í London en fluttist síðan til
Brighton, sem var staðurinn þar
sem hún vildi upphaflega búa.
„Brighton er alveg æðisleg
borg. Þetta er svona lítill hippa-
bær. Þar er hægt að labba um
allt eins og heima, sem ég elska.
Svo er sjórinn hérna, góðir veit-
ingastaðir og kaffihús. Allt
þetta sem maður ólst upp við.
Maður sækir ennþá alltaf í
minni bæi.“ Emiliana býr í
Brighton með kærastanum sín-
um Jamie, sem er umboðsmað-
ur. Hefur hann meðal annars á
sínum snærum, auk Emilönu, ís-
lensku sveitina múm.
Til Íslands um jólin
Emiliana ætlar að eyða jólunum
hér á landi í faðmi fjölskyldunn-
ar og hlakkar mikið til. „Ég ætla
að loka mig inni og fara á vatnið
til að róa og veiða. Mér finnst
rosalega gaman að veiða og bara
vera úti í náttúrunni.“ Með þess-
um orðum lýkur samtalinu.
Kannski viðeigandi því Emili-
ana er mikið náttúrubarn þegar
kemur að tónlistinni og fer
ávallt sínar eigin leiðir.
freyr@frettabladid.is
EMILIANA TORRINI Næsta plata Emiliönu Torrini kemur út í janúar á næsta ári. Nefnist
hún Fisherman´s Woman.
M
YN
D
/K
EV
IN
W
ES
TE
N
B
ER
G
Í HLJÓÐVERINU Emiliana Torrini við
upptökur á nýju plötunni. Aðeins hálftíma
tók að semja lagið Slow sem nú hefur
verið tilnefnt til Grammy-verðlaunanna.
66-67 (50-51) Helgarefni 17.12.2004 14:58 Page 3