Fréttablaðið - 30.12.2004, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 30.12.2004, Blaðsíða 38
KB banki hefur bæði verið bakhjarl helstu útrásarfyrirtækjanna og sótt djarft fram sjálfur. Tvennt á árinu stendur upp úr. Kaup bankans á danska bankanum FIH, en bankinn keypti hlutafé bankans á 84 milljarða króna. Með kaupunum var slegið Íslandsmet í kaupverðmæti fyrirtækis. Hitt var djörf innkoma bankans á íbúðalána- markaðinn sem leitt hefur til harðrar samkeppni milli Íbúðalánasjóðs og bankanna. Sigurður segir árið í ár ekki við- burðaríkara í sjálfu sér en mörg önnur. „Þetta var ánægjulegt ár og þar ber auð- vitað hæst kaup okkar á danska bank- anum FIH.“ Hann segir kaupin rökrétt framhald af stefnu bankans. „Það má rekja þessi kaup bankans til þeirrar stefnu sem við mörkuðum árið 1996 til 1997. Þá gerðum við okkur grein fyrir því að vaxtarmöguleikar bankans inn- anlands væru takmarkaðir. Eina leiðin til að halda vexti áfram væri að sækja til útlanda.“ Sigurður viðurkennir fúslega að ekki hafi alltaf blásið jafn byrlega í sókninni á erlendan markað. „Það tekst ekki allt sem maður ætlar sér. Hins vegar misstum við aldrei sjónar á þessu markmiði.“ Sigurður kom til starfa hjá Kaupþingi árið 1994 frá Iðnaðarbank- anum. Hann nam þjóðarhagfræði í Kaupmannahöfn og vann að námi loknu hjá Danske Bank. Þegar hann kom til Kaupþings störfuðu þar 28 manns. Nú starfa 1250 manns hjá KB banka. „Stór hluti þessa hóps er enn við störf í bankanum og lykilstjórnendur hans.“ Bankinn hefur vaxið gríðarlega og Sigurður segir að ábyrgðin sé dreifð innan bankans. Hver starfsmaður beri ábyrgð á sínum verkefnum. Þessi hópur hefur því starfað náið saman í tíu ár. Lykilstarfsmenn á heimsmæli- kvarða Stjórnendur skráðra fyrirtækja eru jafn- an tregir til að tjá sig um nálægan tíma í rekstrinum. Sigurður segist hins vegar eiga von á því að þessi harðsnúni hópur lykilfólks í KB banka muni áfram verða við stjórnvölinn eftir önnur tíu ár. „Við höfum mikinn metnað fyrir hönd bankans og sjáum mörg tækifæri í framtíðinni, þannig að ég býst fastlega við því að við munum hafa áhuga á að starfa saman að þeim verkefnum eftir tíu ár. Ég tel að okkar fólk standist fyllilega samanburð við besta starfsfólk fjármálafyrirtækja hvar sem er í heim- inum. Kaupin á FIH sýndu það þar sem við notuðum okkar eigið fólk undir forystu Ármanns Þorvaldssonar í stað þess að leita til utanaðkomandi ráðgjafa.“ Niðurstaðan var að KB banki stóð upp frá samningaviðræðum með kaupsamning í höndunum. Sjálfur seg- ist Sigurður ekki hafa komið að málinu fyrr en á lokastigum. Hann segir menntun og starfsreynslu í Danmörku ekki hafa haft úrslitaáhrif á kaupin. „Það spillir auðvitað ekki.“ Íslensku bankarnir skoðuðu allir kaup á FIH og Landsbankinn keppti við KB banka á lokametrunum. „Ég hef lesið um það í blöðunum,“ segir Sigurður og er ófáan- legur til þess að tjá sig frekar um það. Kaupþing óx hratt og tvöfaldaði helstu tölur í rekstrinum árvisst. Þegar Kaupþing sameinaðist Búnaðarbank- anum höfðu margir efasemdir um að sá vöxtur myndi halda áfram. Kaupin á FIH héldu uppi merkinu og enn á ný tvöfaldaðist bankinn. „Við höfum alltaf lagt á það mikla áherslu að vöxtur er ekki markmið í sjálfu sér. Markmið með vexti er alltaf að auka verðmæti hluthafanna, við horfum því alltaf fyrst á arðsemi og síðan á vöxt.“ Fjárfest og fylgt úr hlaði Sigurður þekkir vel til útrásarsögu íslenskra fyrirtækja. Kaupþing studdi og flest þau fyrirtæki sem náð hafa miklum árangri á erlendum vettvangi. „Við höfum haldið til streitu þeirri stefnu að fjárfesta með þeim fyrirtækj- um sem við vinnum með. Stefna okkar hefur verið að vinna með fyrirtækjum sem hafa sannað sig í rekstri, eru með gott sjóðstreymi og kraftmikla og metnaðarfulla stjórnendur. Við ætlum að halda áfram á þeirri braut.“ Meðal þeirra fyrirtækja sem fylgt hefur verið úr hlaði út í hinn stóra heim eru Bakka- vör, Össur, Actavis, Baugur og nú síðast Medcare Flaga og SÍF. KB banki fjár- festir í slíkum fyrirtækjum samhliða því sem bankinn sér um lánafyrirgreiðslu. „Þessi aðferð er þekkt til dæmis í Bretlandi, en nánast óþekkt á Norður- löndunum. Við teljum að við höfum markaðsforskot með þessari nálgun og finnum fyrir góðum undirtektum hjá viðskiptalífinu á Norðurlöndum.“ KB banki sér meðal annars tækifæri í að nýta mikil sambönd danska FIH bankans við stóran hóp danskra fyrir- tækja með þeim hætti að geta boðið þeim víðtækari þjónustu við vöxt þeirra og viðgang. Vandað til útrásar Útrás KB banka og fyrirtækja sem bankinn hefur unnið með hefur smitað út frá sér. Hinir bankarnir eru einnig í útrásarhugleiðingum og útrásin er eins konar töfraorð í íslensku viðskiptalífi. Ýmsir hafa lýst ótta á að hratt sé farið yfir og hætta á að menn gleymi arðsem- inni í hugsuninni um vöxt og útrás. „Mér sýnist að íslensk fyrirtæki sem hafa verið að fjárfesta erlendis að und- anförnu hafi vandað til fjárfestingar- innar. Ég sé ekki betur en þetta sé vel unnið hjá þeim. Fram til þessa hafa þessar fjárfestingar almennt gengið vel,“ segir Sigurður. Áhættan er alltaf fyrir hendi, enda hefur hann margoft lýst því að þeir sem telji sig vera í áhættulausum viðskiptum séu að blekkja sjálfa sig. Þeir eigi einfaldlega að snúa sér að öðru. Hann segir að nú blasi við fjölbreytt flóra erlendra fjár- festinga íslenskra fyrirtækja erlendis sem dragi úr áhættu með dreifingu hennar. Staðið við fyrirheit Kaupin á FIH eru sá einstaki atburður ársins sem ræður mestu um val dóm- nefndar á Sigurði sem viðskiptamanni ársins. Almenningur finnur þó mest fyrir því skrefi sem bankinn steig þegar hann lækkaði vexti á íbúðalánum og innleiddi harða samkeppni á íbúða- lánamarkaði. Aðgerð sem kemur beint við pyngju fólks. „Við vorum að standa við þau fyrirheit sem við höfðum gefið um að íslenskir neytendur myndu njóta stærðar bankans. Við erum alhliða banki á Íslandi og viljum auka mark- aðshlutdeild okkar í þjónustu við ein- staklinga og hugðumst þess vegna kaupa SPRON. Alþingi setti hins vegar lög sem komu í veg fyrir þau kaup.“ Sigurður segir að menn verði að fara að lögum hvað sem þeim kunni að finnast um slík lög. „Ég held að þegar menn horfi um öxl, þá sjái menn að þetta voru slæm lög.“ Margir telja að frekari uppstokkun á fjármálamarkaði sé óhjákvæmileg. Vöxtur stærri bank- anna leiði til hagkvæmari rekstrar sem hinir smærri geti ekki keppt við. „Ég vil engu spá um hver þróunin verður hér heima. Það verða aðrir að gera. Við höfum hins vegar séð þá ánægjulegu þróun að viðskipti einstaklinga við okkur fara vaxandi.“ Árið er einnig tímamótaár hjá fjöl- skyldu Sigurðar. Hann fluttist ásamt eiginkonu og tveimur börnum, sjö og tíu ára til London. Þrír fjórðu hlutar tekna KB banka koma erlendis frá og Sigurður því mikið á ferðinni. „Við kunnum ágætlega við okkur. Það er mikill munur að geta farið að morgni og komið að kvöldi hvort sem það er frá Luxemburg, Kaupmannahöfn, Stokkhólmi eða Helsinki.“ Fjarvist- irnar frá fjölskyldunni verða skemmri fyrir vikið. Vinnan tekur mestan tímann og lítið pláss fyrir áhugamál. „Það gildir um mig eins og aðra stjórn- endur bankans að starfið tekur allan okkar tíma.“ Sigurður er áhugamaður um íþróttir og æfði á yngri árum með Fram í fótbolta og handbolta. Hann segir lítinn tíma fyrir slíkt. „Það er helst að maður skreppi í einn eða tvo veiði- túra á sumri,“ segir Sigurður Einars- son, viðskiptamaður ársins, og viður- kennir að veiðitúrarnir séu oftar en ekki tengdir viðskiptum og viðskipta- vinum bankans. haflidi@frettabladid.is Sigurður Einarsson er viðskiptamaður ársins 2004 að mati dómnefndar sérfræð- inga Fréttablaðsins. Úrslitin ættu ekki að koma á óvart þar sem Sigurður hefur sem forstjóri Kaupþings og stjórnarformaður KB banka eftir sam- einingu við Búnaðar- bankann verið frum- kvöðull í sókn íslenskra fyrirtækja á erlendan markað. „Ég tel að okkar fólk standist fyllilega sam- anburð við besta starfsfólk fjármála- fyrirtækja hvar sem er í heiminum. Kaupin á FIH sýndu það þar sem við notuðum okkar eigið fólk undir forystu Ármanns Þorvaldssonar í stað þess að leita til utan- aðkomandi ráðgjafa.“ F2 12 30. desember 2004 FIMMTUDAGUR FREMSTUR Í SÓKNINNI Viðskiptamaður ársins Sigurður Einarsson, stjórnarformaður KB banka, er viðskiptamaður ársins 2004. Sigurður og samstarfsfólk hans hefur verið í fararbroddi útrásar fjár- málakerfisins og stutt íslensk fyrirtæki í uppbyggingu og vexti. Ferill Sigurðar er einkar glæsilegur en undir hans stjórn hefur bankinn vaxið hratt og skilað góðum hagnaði. LJ Ó SM YN D /P ÁL L ST EF ÁN SS O N 12-13-F2lesið 29.12.2004 14:53 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.