Fréttablaðið - 19.02.2005, Page 9
19. febrúar 2005 LAUGARDAGUR
Magni Magnússon,
kaupmaður við Lauga-
veg, sest í helgan stein í
haust eftir rúmlega 40
ára verslunarrekstur.
Hann hyggst þá selja
búðina sína og hlakkar
til að verja tíma sínum
við spilaborðið með
Steinunni sinni.
„Í haust verð ég sjötugur og vil
hafa einhvern tíma til að leika
mér sjálfur, þannig að í október
eða nóvember ætla ég að sjá
hvort einhver vill kaupa búðina
og halda áfram að vera jókerinn
við Laugaveg,“ segir Magni
Magnússon kaupmaður, sem hef-
ur ákveðið að setjast í helgan
stein.
Magni hefur verið lengi að,
rekið frímerkja- og spilabúðina
Hjá Magna á Laugavegi síðan
1979 ásamt eiginkonu sinni,
Steinunni Guðlaugsdóttur. Áður
hafði hann rekið Frímerkjamið-
stöðina að Skólavörðustíg sem
var opnuð árið 1964. „Frímerki
og mynt stóðu ekki undir rekstr-
inum og þá bættust spilin við,“
segir Magni um ástæður þess að
hann leiddist út í spilabransann.
Áður en Magni fór út í verslun
vann hann hjá Landsbankanum
og þó honum hafi líkað vel við
samstarfsfólk sitt og yfirmenn
ákvað hann að venda kvæði sínu í
kross. „Ég bara fílaði ekki að
vera þarna til lengdar og þegar
mér var boðin útibússtjórastaða
hafði ég vit á að stofna minn eig-
in spilabanka.“ Allar götur síðan
1979 hefur Magni verið órjúfan-
legur partur af Laugaveginum og
orðið nánast tákngervingur kaup-
mannsins. „Það þekkja mig allir
hérna og ég get hvergi skandalís-
erað, það er mínusinn við þetta,“
segir hann og hlær. Þegar hann
opnaði verslunina á sínum tíma
gerði hann djarfa tilraun og
ákvað að hafa opið á laugardög-
um. „Þá komu til mín tveir lög-
reglumenn, kurteisir og elskuleg-
ir, og sögðu að ég mætti ekki hafa
opið þar sem þetta væri ekki
blómabúð eða minjagripaversl-
un. Ég skrifaði borgarráði bréf út
af þessu en hef enn ekki fengið
svar. En þegar Kringlan kom
mátti hafa opið allan sólarhring-
inn.“
Verslun Magna er athvarf frí-
merkja- og myntsafnara og
Magni leggur mikla rækt við
fastakúnna sína, sem eru fjöl-
margir. Laugardagsmorgna helg-
ar hann söfnurum og býður upp á
kaffi. Hann segir þó að nýliðunin
í hópi safnara sé því miður ekki
mikil. „Þetta breyttist allt þegar
tölvan kom. Ef ég býð barnabörn-
unum mynt eða frímerki svara
þau að það hafi verið að koma út
nýr tölvuleikur.“ Magni er þó
bjartsýnn á framtíð Laugavegar-
ins og segir síðasta sumar hafa
verið það besta í langan tíma.
„Útlendingarnir munu alltaf
koma á Laugaveginn því þeir
eiga nóg af Kringlum og Smárum
heima hjá sér.“
40 ár eru langur tími í verslun-
arrekstri en Magni gefur ekki
mikið fyrir það. „Ég á langt í að
slá metið hans tengdapabba, Guð-
laugs Pálssonar á Eyrarbakka,
sem var með verslun þangað til
hann var 98 ára.“ Hann viður-
kennir þó að ferill hans sé orðinn
lengri en hjá mörgum. „Galdur-
inn við að tóra svona lengi er að
eiga góða konu sem stendur með
manni, eiga skemmtilega og vin-
sæla búð og hafa húmor. Ef það
er rólegt að gera þýðir ekkert að
gráta, það verður kannski meira
að gera á morgun.“
bergsteinn@frettabladid.is
„Þetta var ágæt vika og frekar fáir óskila-
kettir hafa komið til mín síðustu daga,“
segir Sigríður Heiðberg í Kattholti.
Stundum koma átta kettir á dag til
hennar en fyrir hverja átta ketti sem
koma fara að jafnaði tveir heim. Það eru
ójöfn hlutföll. Nokkrir kettir komust í
hendur eigenda sinna á ný í liðinni viku.
„Annars eru nýju kattareglurnar fullsmíð-
aðar og nú er bara að sjá hvernig þær
virka,“ segir Sigríður. Hún er ekki að
fullu sátt við gang mála og segir óráð að
reglurnar séu mismunandi eftir sveitar-
félögum. „Það er ekkert samræmi í
þessu. Svo hefði ég viljað fá að koma
meira að þessu sjálf, ég veit nefnilega
ekki hversu mikið þetta fólk er inni í
málefnum katta,“ segir Sigríður og á þar
við fólkið sem sér um regluverk hins op-
inbera.
Ágæt kattavika
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? SIGRÍÐUR Í KATTHOLTI
Magni hættir í haust
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
STEINUNN OG MAGNI
Hjónin hafa staðið saman í gegnum súrt og sætt í rúmlega 40 ár og Magni þakkar henni hversu lengi hann hefur enst í starfi.
10-11 (24 klst) 18.2.2005 19:03 Page 2