Tíminn - 09.03.1975, Page 1
vélarhitarinn
í frosti og kulda
HF HÖRÐUR GUNNARSSON
SKULATUNI 6 — SÍMI (91119460
ÆNGIRf
Aætlunarstaðir:
Blönduós — Sigluf jörður
Búðardalur — Reykhólar
Flateyri — Bíldudalur
Gjögur — Hólmavík
' Hvammstangi — Stykkis-
hólmur — Rif
Sjúkra- og leiguflug um
allt land
Símar:
2-60-60 &
2-60-66
t2
Á annað hundrað fslendinga á bið-
lista hjá danska „náttúrulækninum"
væntanlegur hingað i vor?
gébé Reykjavík — Danski ,,nátt-
úrulæknirinn” Aksel G. Jensen er
væntanlegur hingað til iands i
vor. Þetta er í annað sinn sem
hann leggur leið sína hingað, en i
fyrra skiptið tók hann tiu islenzka
sjúklinga til meðhöndlunar. í
þetta sinn mun hann dveljast hér
lengur en áður og hefur ákveðið
að taka áttatiu sjúklinga til með-
höndlunar. Nú þegar hafa hátt á
annað hundrað manns óskað eftir
meðhöndlun, svo að auðséð er, að
færri munu komast að en vilja,
þótt aðferðir „náttúrulæknisins”
komi mörgum kynduglega fyrir
sjónir.
Jörgen Sölvason, innflytjandi
og kona hans, Jakobina Helga-
dóttir, hafa verið önnum kafin við
að svara upphringingum fólks,
vlðsvegar að af landinu, sem
spurzt hefur fyrir um danska
„náttúrulækninn” og viljað kom-
ast að hjá honum og sifellt bætast
fleiri á biðlistann. Timinn sneri
sér til Jörgens og spurði hann um
Aksel G. Jensen og hvers vegna
fólk hefði svona mikinn áhuga á
lækningaaðferðum hans.
— Við hjónin lásum fyrst um
Aksel G. Jensen I dönsku blaði,
sagði Jörgen. — Konan min hafði
lengi þjáðst af migrene og við
ákváðum að fara til hans og
reyna að fá lækningu, sem tókst
vonum framar. Jakobina var
fyrsti Islendingurinn, sem fékk
meðhöndlun hjá Jensen.
Á siðasta ári kom út bók i Dan-
mörku um Aksel G. Jensen, og
lýsir hún vel lækningaaðferðum
hans og tildrögum þess að hann
hóf náttúrulækningar, sagði Jör-
gen. Það var i október 1973, sem
Jensen opnaði stofu i Odense, en
þá hafði hann stundað lækningar
um nokkurt skeið. Orðstir hans
barst fljótlega til annarra
Norðurlanda, og fóru miklar sög-
ur af þvi, hversu skjótan og góðan
bata sjúklingar hans höfðu feng-
ið, við sjúkdómum, sem læknar
höfðu gefizt upp við að lækna eða
kunnu engin ráð við. Brátt hafði
Jensen svo mikið að gera við
'lækningarnar, að hann varð að
hætta rekstri teppaverzlunar
sinnar og snúa sér eingöngu að
náttúrulækningum.
Aðferðir Aksels G. Jensens við
lækningar koma ýmsum spánskt
fyrir sjónir, en árangurinn er að
sögn ótrúlega mikill, og fjöldi
sjúklinga telur sig standa I mikilli
þakkarskuld við hann. Hann not-
ar t.d. ýmsar jurtir til lækning-
anna, þar á meðal ýmsar teg-
undir af jurtatei, sem eru við nær
öllum sjúkdómum, sem fyrirfinn-
ast. Jörgen Sölvason hefur um-
Framhald á 22. siðu.
„Náttúrulæknirinn”
Aksel G. Jensen.
Jörgen Sölvason
Fjdrveiting hefur ekki fengizt til stuðnings við byggð d Hólsfjöllum:
EKKERT BYGGT OG RÆKT-
AÐ SÍÐAN FYRIR STRÍD
I DAG
Guðrún Ásmunds-
dóttir leikkona
: ..
rleimilisdýrin okkar
I DAG
Skrautfiskar
— síðari hluti
— og endurbyggja þarf flest öll húsin d tiltölulega fdum
drum, segir Árni Jónsson landndmsstjóri
Gsal-Reykjavik —, Landnám
rikisins hefur að undanförnu i
samráði við Framkvæmdastofn-
unina og búendur á Hólsfjöllum
unnið að áætlanagerð um byggð-
ina i Fjallahreppi, og hvernig
hægt verði að viðhalda henni.
tbúar Fjallahrepps eru 26 á fjór-
um bæjum, og i Möðrudal og Viði-
dal eru aðeins fimm ibúar.
Flestum, ef ekki öllum, virðist
vera ljóst, að nauðsyn ber til að
tryggja áframhaldandi búsetu á
þessu svæði, og hafa ýmis rök
verið nefnd i þvi sambandi, s.s.
öryggi fyrir ferðamenn og hinir
miklu erfiðleikar, sem myndu
skapast fyrir nágrannasveitirnar
vegna afrétta er umlykja Fjalla-
byggðina, ef búskapur og byggð
legðist af á Fjöllunum.
A búnaðarþingi 1974 voru þessi
mál til umræðu, og þar var sam-
þykkt með 25 samhljóða atkvæð-
um, að Landnám rikisins hlutað-
ist til um það, að treyst yrði til
frambúðar byggð á Hólsfjöllum,
ásamt Möðrudal og Viðidal. Var
gert ráð fyrir, að likur væru á, að
fjárveiting til stuðnings þessu
byggðarlagi myndi verða á fjár-
lögum fyrir árið 1975, — en engin
slik fjárveiting fékkst.
Að sögn Arna Jónssonar land-
námsstjóra fækkaði ibúum ekkert
á s.l. ári, og einn ungur maður hóf
byggingu ibúðarhúss i Grims-
tungu, og var það hús orðið fok-
helt s.l. haust. Sagði Arni, og það
hefði verið gert i þeirri trú, að
eitthvað yrði stutt við bakið á
þeim, sem vildu búa á Fjöllunum,
a.m.k. með hagstæðum lánum og
einhverjum óafturkræfum fram-
lögum.
Við inntum Árna eftir þvi, hvort
eitthvað af ungu fólki hefði hug á
að hefja búskap á Fjöllunum i
næstu framtíð.
— Já, þrir ungir menn voru
ákveðnir i þvi að byggja og hefja
búskap i þessari byggð. Einn
þeirra hóf byggingu ibúðarhúss
I Grimstungu, annar ætlaði að
hefja byggingarframkvæmdir i
ár, og sá þriðji siðar á þessum
áratug. Þetta voru hugmyndirn-
ar, en þær gætu hafa breytzt
núna, þvi að þessir menn voru
bjartsýnir á, að einhver fyrir-
greiðsla myndi nást fram I ár. En
eins og málum er nú háttað, verð-
ur ekkert framlag til stuðnings
byggðinni fyrr en á næsta ári.
Einnig hafa verið uppi áform um
það hjá ungu fólki að flytjast i
Möðrudal, — þannig að leit vel út
með að koma þarna á kynslóða-
skiptum,en fólkið, sem býr þarna
núna, er margt orðið aldrað.
Að sögn Árna er markmiðið
með Hólsfjallaáætluninni að gera
I fyrsta lagi úttekt á núverandi á-
standi byggðarinnar, með það i
huga, að hægt verði að styðja við
bakið á þeim, sem þarna eru núna
og virðast vilja vera þarna
áfram. Aðalmarkmiðið væri þvi
að fá f jármagn og fyrirgreiðslu til
að viðhalda þeirri byggð, sem þar
er nú.
A s.l. hausti voru lagðar fram
tillögur i þessum efnum, sem að
mestu voru byggðar á fundargerð
frá Kópaskeri, en þar var fundur
haldinn um þetta mál. I þeim til-
lögum komu fram megin-
stjórnarmið og óskir heima-
manna, svo og ábendingar um
það, hvernig hægt væri að treysta
búsetu á Fjöllunum.
Að sögn Arna var borin fram
þingsályktunartillaga i fyrra, um
að rikisstjórninni yrði heimilað
að treysta búsetuna með fjárveit-
ingu.
— Rikisstjórnin hefur þvi
miður ekki treyst sér til að leggja
neitt af mörkum sagði hann. —
Við erum að vinna að itarlegri
framkvæmdaáætlun, og við höf-
um bæði fengið óskir og bending-
ar frá þeim búendum, sem þarna
eru núna, um byggingar, ræktun
og annað, sem tilheyrir búsetu.
Við höfum, út frá framkvæmda-
áætluninni, ákveðið að leggja
fyrir stjórnvöld ákveðnar tillögur
i þessum efnum i næsta mánuði,
— i trausti þess, að hægt verði að
fá stjörnvöld til að fallast á ein-
hverjar tillögur til stuðnings, sem
treyst gætu búsetuna.
— Hverjar eru þær tillögur
helztar?
— Það kemur fram i þessari
Framhald á 22. siðu.
Hvassafellsstrandið:
Allir farnir
fró borði
Gsal-Reykjavik. Atta manns
voru um borð IHvassafellinu á
strandstað I fyrrinótt, en I
gærmorgun tók Jón Kristins-
son skipstjóri þá ákvörðun, að
yfirgefa skipið og fara I land.
Björgunarsveit SVFI á Húsa-
vik tóku skipverja i land inilli
kl. 9 og 10 I gærmorgun og
gekk björgunarstarfið vel.
Nokkru siðar hélt Svanur
ÞH-100 af stað frá Flatey
skipverja og björgunar-
sveitarmenn.
Svipað verður hefur verið á
þessum slóðum allt frá þvi
Hvassafellið strandaði
aðfaranótt föstudags. Átta til
nfu vindstig af norð-austri,
gaddur og mikill sjór.
I fyrrinótt jókst sjór til
muna i forlestinni og snerist
skipið litilsháttar á strand-
staðnum.