Tíminn - 09.03.1975, Blaðsíða 30

Tíminn - 09.03.1975, Blaðsíða 30
30 TÍMINN Sunnudagur 9. marz 1975 Nú-tíminn Það eru of morqir um kökuna Nú-tíminn ræðir við Sverri Garðars- son formann FÍH AÐALFUNDUR Félags islenzkra hljómlistarmanna var haldinn um siðustu helgi og þvi fannst Nú- timanum kjörið tæki- færi til að spjalla litil- lega við Sverri Garð- arsson, formann fé- lagsins. Fer hluti þess spjalls hér á eftir. 1 upphafi spjallsins inntum viB Sverri eftir þvi, hvort mikil kjarabarátta væri framundan hjá félaginu, og sagði Sverrir, að þeir yrðu eins og aðrar stéttir þjóðfélagsins að berjast með hnúum og hnefum fyrir bættum kj örum. Nú-timinn hafði heyrt, að meðal samþykkta sem gerðar voru á aðalfundinum, hefði verið ein, sem kvað á um kaup þeirra manna, sem tiðast eru nefndir rótarar. Við spurðum Sverri um þessa samþykkt. — Tillagan um þetta atriði, er þess eðlis, að þeir sem flytja hljóðfæri fá* greidd laun fyrir sina vinnu úr öðrum vösum en hljómlistarmanna. Þetta er eitt atriði okkar kjarabaráttu, en að öðru leyti get ég litt tjáð mig um kröfur okkar i fyrirhuguðum samningum, vegna þess að þær eru aö stórum hluta ómótaðar hjá okkur, — og þær eru svotil ómótaðar hjá öðrum stéttum þjóðfélagsins, þvi að það er verið að biða eftir þvf, hvað rikisvaldið hugsarsér að gera. Hverning þeir ætla t.d. að taka á skattamálum, húsnæðismálum o.s.frv. Hljómlistarmenn standa höllum fæti — Hver er staða hljómlistar- manna miöað við aðrar stéttir, hvað launamál áhrærir? — Hljómlistarmenn standa höllum fæti og það stafar mest af þvi, að það eru of margir um kökuna, —eins og t.d. i poppinu. Ef að hljómlistarmenn væru færri eða störfin fleiri, þá væri staða þeirra miklu betri. Það er t.d. ekki hægt að gera ráð fyrir þvi, aö hljómlistarmaður geti lif- að af þvi, að leika eitt til tvö kvöld I viku hverri. Vinsælustu popphljóm- sveitirnar leika ekki vinarkrusa Nú-timinn hefur oft heyrt popphljómlistarmenn kvarta yfir þvi, að þær hljómsveitir sem leggja mikið upp úr gæðum og æfa sig gifurlega mikið fái ekki uppskoriö eins og þeir hafi sáð til, vegna þess aö ýmiss konar trió hafi forgang á veit- ingahúsunum, — þvi að I trióun- um eru aöeins þrir hljóðfæra- leikarar og veitingahúsaeigend- ur þurfa þvi minna að greiða úr pyngju sinni, heldur en ef þeir réðu 4-5-6 manna góða popp- hljómsveit. Við leituðum álits Sverris á þessu atriði. — Trióin sem þú talar um eru hljómsveitir, sem einskoröa sig ekki viö eina tegund tónlistar, þeir leika allt frá gömlu dönsun- um til nýjustu laganna. — Finnst þér þá popphljóm- sveitirnar ekki geta gert þaö? — Ég er ekki að segja að þær geti það ekki. Þú ferö ekki og hlustar á vinsælustu popphljóm- sveitirnar leika vinarkrusa, marzurka og annað slikt á skemmtunum, sem þeir skemmta á. Þessi svokölluðu trió starfa á allt öðrum grund- velli, og veitingamaður sem ræður til sin trió, gerir það til þess að fá inn i húsið ákveðna gesti. Ef popphljómsveit er ráð- in er veitingamaðurinn einnig að fá inn I húsið ákveðna gesti. Gerum ekki hætishót meira fyrir sinfóniu- meðlimi en popphljóm'- listarmenn — Popphljómlistarmenn hafa gagnrýnt FÍH talsvert og talið að félagið geri litið þeim til framdráttar. Hvað vilt þú segja um þá gagnrýni? — Þetta er misskilningur. Ég get nefnt sem dæmi, að fimm popphljómsveitir, — vinsælustu popphljómsveitirnar að þvi er ég hygg, — höfðu samtök og voru meö aðstöðu i húsakynnum FIH og hittust hér tvisvar i viku. Þær höföu hér simaaðstöðu og við komum til þeirra skilaboð- um frá þeim að ilum, sem vildu ráöa þessar hljómsveitir. En við verðum að lita á aðra hlið málsins, — þess- ar hljómsveitir eru sam- keppnisaðilar. Þegar um ráðningar er að ræða, og við skulum segja að þaö sé ekki háannatími, þá er I raun litil samvinna milli þess- ara hljómsveita, og var I raun merkilegt hvað sá félagsandi I þessum litla hópi hélzt góður, og helzt góður. Þeir, sem halda þvi fram, að FÍH geri ekkert fyrir þessa ungu menn, ættu að at- huga sinn gang áður en þeir halda þvi fram, þvi að ég veit ekki betur en að við séum hér á þönum fyrir popphljómsveitir sem og aðrar. Eins get ég nefnt, að yfir 2000 beinar ráðningar á vegum FtH voru til popphljómlistarmanna á s.l. ári. Hins vegar fer megnið af ráöningunum þannig fram, að sá aðili, sem ætlar að halda dansleik eöa skemmtun, hringir tilFlHogspyr hvar sé að ná I þennan og þennan hijóðfæra- leikara. Við gefum viðkomandi upp simanúmer þess hljóðfæra- leikara sem spurt er eftir, og hann spyr gjarnan, hvort við vitum hvort þessi hljómsveit sé laus þetta ákveöna kvöld, — og þá bjóðum við manninum að at- huga það fyrir hann. Ætla má þvi, að við höfum ráðið á milli 4-5000 ráðningar á siöasta ári, ef þetta væri talið með. Popphljómlistarmenn njóta . allra réttinda, sem eitt stéttarfélag getur veitt varö- andi tryggingar, sjúkra- og styrktarsjóði, lifeyrissjóði og annað. Ég fæ ekki séð, aö við gerum hætishót meira fyrir sinfóniumeðlimi heldur en popphljómlistarmenn, — og allt þar á milli. Við litum ekki niður á þá, og upp til hinna. Þeir eru félagar — þeir greiöa sin félags- gjöld og við tökum við öllum þeirra tillögum. Þeir eiga aðild að stjórn félagsins og sitja I nefndum og annað slikt. Ég minnist t.d. aðalfundar fyrir þremur árum, þegar popp- hljómlistarmaður stakk upp á sinfóniuhljómsveitarmeðlimi I stjórn. Þaö vilja allir halda ein- ingunni. Hins vegar, ef stórir hópar ganga atvinnulausir, eða hafa litla atvinnu, hugsa menn kannski: Þarna er ráðning- arstofa. Ég fæ ekkert frá þess- ari ráðningarstofu. Þetta er samt sem áður ráðningarstofa mins félags. Þá kemur kannski næsta hugsun: Félagið gerir ekkert fyrir mig. Þetta eru eðlileg viðbrögð þess, sem þarna á I hlut. Hann verður sár. Hann telur sig góðan — og er það jafnvel. Samt hefur hann ekkert að gera. Hann gengur atvinnulaus. Það er einungis svartnætti at- vinnuleysingjans, og þaö einskorðast ekkert við hljóð- færaleikarastéttina. Taxti sérhvers stéttar- félags er það helgasta • — Hver eru inntökuskilyrði félagsins? — í lögum félagsins segir: „Félagi i FÍH getur orðið hver sá hljómlistarmaður, sem vinn- ur eöa vill vinna hljómlistar- störf samkvæmt kauptöxtum, er félagið setur eða semur um við vinnuveitendur, enda sé hann fullra sextán ára að aldri. Islenzkur rfkisborgari og hafi meðmæli þriggja fullgildra fé- lagsmanna með inntöku I félag- ið. — 1 þessu sambandi langar mig til að spyrja: Hefur það komið fyrir að hljómsveitir hafi leikið undir löglegum kauptöxt- um? • — Það er krabbamein at- vinnuleysisins. Þetta kom fyrir á kreppuárunum um 1930. Þá setti Dagsbrún það sem skilyröi að öll laun verkamanna yrðu greidd á skrifstofu Dagsbrúnar, og var þetta gert til þess að koma i veg fyrir, að menn ynnu ekki verkamannavinnu undir taxta. Undirbyðu ekki félaga sina. Ég heyrði þvi fleygt af mér eldri mönnum, að sumir menn hefðu farið og skilað atvinnu- rekendum peningum aftur. Við höfum eftirlit með taxta- brotum eins og við frekast get- um. Þaö er brottrekstrarsök hjá félaginu að leika undir taxta. Taxti sérhvers stéttarfélags er það helgasta. Og það er kjarni málsins. Hvort reynt hafi á taxtabrot? Ekki svo ég muni. Menn verða að hafa jörð til að ganga á, ef menn ætla aö væna aöra um aö hafa brotið taxta. ,,Það er ekki hægt að gera ráð fyrir að hljóm- listarmaður geti lifað af þvi, að leika eitt til tvö kvöld i viku". ,,Ég minnist t.d. aðalfundar fyrir þremur ár- um, þegar popphljómlistarmaður stakk upp á sinfóniuhljómsveitarmeðlimi i stjórn. Það vilja allir haida einingunni’’. kynnir: DAVID BOWIE DAVID BOWÍE fæddist I London 8. janúar 1947. Við skirnarathöfnina hlaut hann þó ekki nafnið David Bowie heldur David Robert Jones. Þegar piltunginn var sextán ára að aldri, hætti hann i skóla og fór að leika á saxófón öllum stundum, jafnframt þvi, sem hann sökkti sér ofan I rit um búddisma. Þegar svona hafði gengið um stund i lifi hans, hætti hann skyndilega aðieika á saxófóninn og iesa búddismabækur. Hann sá, að framtiðin var i auglýsinga - teiknun. David Robert Jones varð ekki mosavaxinn i auglýsingateiknuninni, þvi fljótlega sneri hann við henni baki. Þegar hann hafði hætt við framtiðaráform sín, sem auglýsingateiknari, stofnaði hann sina fyrstu hljómsveit, sem hann skirði „David Jones and the Lower Third”. Hljómsveitin var á „rythm and blues”-linunni, og þetta var^árið 1966. Skömmu eftir stofnun hljómsveitarinnar fékk David ' Jones þá flugu i kollinn, að viturlegast væri að hann breytti um eftirnafn — og var sú hugmynd grund- völluð á þvi aö bandarisku Apakettirnir voru mjög vinsælir, og einn þeirra hélt einmitt David Jones. Og nafnið sem varö fyrir valinu var BOWIE. En fyrst hann var nú á annað borð byrjaður að breyta nöfnum, var þá ekki tilvaliö að breyta nafni hljómsveitarinnar lika? — Jú, jú — og það geröi hann: „David Bowie and the Buzz” hét hljómsveitin. Arið 1967 leystist hljóm- sveitin upp, og Bowie varö einn á báti. En það var hon- um lika fyrir beztu, — sólóferill hans var hafinn. Og skömmu siðar kom út LP- platan The World Of David Bowie — sem vakti ekki neina sérstaka athygli. Ári seinna komst nafn hans á allra varir, þegar lag hans „Space Oddity” varð gifurlega vinsælt. Bowie fylgdi þó ekki þessum vinsældum eftir, heldur sneri baki við tónlistinni og varöi timanum til trúariðkana. Þannig gekk I eitt ár. Arið 1969 hefur tónlistar- þörfin aftur náð yfirhöndinni og Bowie gefur út plötuna „Space Oddity” LP-plötu, en hún vekur svo til enga eftir- tekt. Ári siðar kemur út platan „The Man Who Sold The World” — hard-rokk plata. A næstu plötu, „Hunky Dory” hafði hann skilið viö harða rokkið og var kominn með sinn eigin stil, aö mestu leyti. Þetta vakti athygli fólksins. Bowie sló svo i gegn með næstu plötu, „The Rise And Fall Of Ziggy Stardust And The Spiders From Mars” en þar er m.a. lagiö „Starman”. Og Bowie er oröinn skær- asta poppstjarna Bretlands frá þvi aö Bitlarnir voru og hétu. „Alladin Sane” hét Framhald á bls. 39.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.