Tíminn - 09.03.1975, Blaðsíða 27
Sumiudagur. !). marz 1975
TÍMINN
27
BURNLEY
kostuðu Burnley ekki neitt, og má
þar nefna nöfn eins og Kalph
Coates, Ilave Thomas, Wilíie
Morgan, Steve Kindon, Mártin
rtobson og Geoff Nulty, svo að
einhver nöfn séu nefnd, allir
þessir leikmenn hafa verið seldir
frá Burnley fyrir meira en 100
þús. pund.
Coates var leystur undan at-
vinnumennsku hjá Sunderland,
áður en Burnley gerði hann að
enskum landsliðsmanni. En i mai
1971 var hann seldur til Totten-
ham, þá fyrir metupphæð á Bret-
landseyjum — 190 þús. pund.
Ralph Coates hefur verið einn
bezti leikmaður Tottenham siðan.
Hann lék t.d. með Tottenham á
Laugardalsvellinum gegn Kefla-
vik i UEFA-bikarkeppni Evrópu.
Þá tryggði hann Tottenham
deildarbikarinn 1973, þegar hann
skoraði úrslitamarkið á Wembley
gegn Norwich.
Willie Morgan, nú fyrirliði
Manchester United og skozkur
landsliðsmaður, fundu njósnarar
Burnley i skólaliði i Skotlandi.
Morgan.sem er nú snjallasti leik-
maður United, var seldur frá Turf
Moor til Old Trafford i ágúst 1968
fyrir 110 þús. pund.
Have vThomas, enskur
landsliðsmaður, og Steve Kindon
komu til Burnley beint úr skóla.
Félagið ól þá upp, og þeir þóttu
með efnilegustu leikmönnum
Englands, þegar Burnley seldi þá
1972. Kindon, sem er einn mark-
sæknasti leikmaður Úlfanna um
þessar mundir, var seldur frá
Burnley i júli 1972 til Úlfanna
fyrir 100 þús. pund. Hann er
aðeins 24 ára. Thomas, sem er
einn af snjöllustu leikmönnum
Englands, er yngsti leikmaður,
sem nokkurn tima hefur leikið
með aðalliði Burnley — aðeins 16
ára (og 7 mánaða). Hann var
seldur til Q.P.R. fyrir 165 þús.
pund i október 1972, og er það
metupphæð fyrir leikmann, sem
hefur verið seldur á milli 2. deild-
ar liða.
Geoff Nulty var seldur til New-
castle i vetur fyrir 140 þús. pund,
en hann var einn af aðalmarka-
skorurum Burnley. Fyrsti leik-
maðurinn, sem seldur var frá
Burnley fyrir 50 þús. pund, var
Alex Elder, sem Stoke keypti
1967. Þá var Gordon Ilarris seldur
til Sunderland fyrir 70 þús. pund
og Andy Lochhead til Leicester
fyrir sama verð 1967.
Brian O’Neil (nú Huddersfield)
var seldur frá Burnley til South-
ampton 1970fyrir 75 þús. pund, en
hann hafði þá leikið með enska
landsliðinu, skipuðu leikmönnum
undir 23ja ára aldri. Þá seldi
Burnley hinn snjalla markvörð,
Peter Mellor.fyrir 25 þús. pund til
Fulham i febrúar 1972, og annar
enskur landsliðsmaður i landslið-
inu undir 23ja ára, Alan West, var
seldur til Luton i ágúst 1973 fyrir
80 þús. pund, en hann byrjaði að
æfa hjá Burnley aðeins 14 ára
gamall. Þá seldi Burnley þá
Harry Wilsonog Ronnie Welshtil
Brighton fyrir samtals 70 þús.
pund, en þessir tveir ungu leik-
menn komu til Burnley beint úr
skóla.
Þá er það athyglisvert, að dýr-
asti leikmaðurinn, sem Burnley
hefur keypt, er hinn snjalli fram-
linuspilari, Paul Fletcer, sem
félagið keypti fyrir aðeins 60 þús.
pund. Og til gamans má geta
þess, að kostnaðurinn við allt
aðallið félagsins er aðeins 200
þús. pund, sem er lægra én verð á
einum úrvals leikmanni á þessum
siðustu og verstu timum verð-
bólgunnar. Þegar þetta er
skrifað, eru miklar likur á, að
Burnley selji hinn snjalla lands-
liðsmann frá Wales, Leighton
James. Þótt hann sé aðeins 21
árs, er hann talinn einn snjallasti
knattspyrnumaðurinn á Bret-
landi. Hann verður örugglega
keyptur frá Burnley fyrir met-
upphæð, og talað er um, að hann
fari á yfir 400 þús. pund. Þróunin
er þannig hjá Burnley, að mönn-
um leikur ávallt forvitni á, að
vita, hvaða leikmaður verður
næstur til að yfirgefa Turf Moor.
Það virðist ekki skipta miklu
máli, þvi að Burnley hefur leik-
menn á sinum snærum, sem fylla
ávallt þau skörð, sem höggvin eru
i lið félagsins. Einn stórkostlegur
leikmaður yfirgefur liðið i dag, en
á morgun er ungur og efnilegur
leikmaður kominn i hans stöðu.
Að lokum ætlum við að stilla
upp liði, sem er eingöngu skipað
leikmönnum, sem Burnley hefur
selt frá sér undanfarin ár verðið á
þeim (pund) innan sviga):
Peter Mellor, Fulham ......(25)
Harry Wilson, Brighton.....(35)
Ronnie Walsh, Brighton.....(35)
Alan West, Luton...........(80)
Brian O’Neil, Iiuddersf....(75)
Steve Kindon, Wolves......(100)
Willie Morgan, Man.Utd. ...(110)
Martin Dobson, Evertön .... (300)
Ralph Coates, Tottenh.....(190)
Have Thomas, Q.P.R........(165)
Geoff Nulty, Newcastle....(140)
Allir þessir leikmenn eru i hópi
beztu leikmanna sinna núverandi
félaga, enda flestir frægir i ensku
knattspyrnunni. Það væri örugg-
lega gaman að sjá þá leika gegn
Burnley-liðinu, eins og það er
skipað nú — SOS.
STEVE KINDON.... kom
Burnley beint úr skóla.
til
UAASJÓN:
Sigmundur O.
Steinarsson
TREVOR FRANCIS . . . byrjaði aðeins 16 ára gamall að hrella markverði. Hann skoraði 16
mörk í sinum 15 fyrstu leikjum með Birmingham.
,,Ég kem fljót
lega aftur"
— segir Trevor Francis, knattspyrnu-
snillingurinn ungi frd Birmingham
TREVOR Francis, hinn snjalli
leikmaður Birmingham City,
er eitt mesta efni, sem hefur
komið fram I ensku knatt-
spyrnunni. Hann kom fyrst
fram á sjónarsviðið 1970, þá
aðeins 16 ára gamall strák-
hnokki. Hann vann strax hug
og hjörtu áhorfenda á St.
Andrews, heimavelli Birm-
ingham og menn dáðust að
leikni hans. ÖU stærstu félög
Englands, fylgdust með þess-
um unga leikmanni, sem vakti
strax athygli — aöeins 8 ára
gamall — I heimaborg sinni,
og þau kepptust um að vinna
hann i sinar raðir. Trevor
Francis lét ekki gylliboð tæla
sig frá heimaborg sinni, hann
sá ekkert annað en Birming-
ham. Þegar Francis byrjaði
að leika með Birmingham-lið-
inu, aðeins 16 ára, lét hann
strax að sér kveða og skoraöi
hvorki meira né minna en 16
mörk 115 fyrstu leikjum sinum
I 2. deild.
Hann lék við hliðina á Bob
Latchford, sem er nú leikmaö-
ur með Everton, og þessir
góöu framlinumenn áttu
mestan heiður að þvi, að
Birmingham vann sér aftur
sæti i 1. deild. Þegar Freddie
Goodwin, framkvæmdastjóri
Birmingham, var spurður að
þvi, hvort hann vildi selja Tre-
vor Francis, sagði hann fljótt
og ákveðið: Selja hann? — nei,
aldrei.
Freddie Goodwin hefur nú
haft miklar áhyggjur af
meiöslum Trevor Francis,
sem meiddist alvarlega i októ
ber sl. Hann hefur ekki getað
leikið með Birminghamliðinu
siðan vegna meiðsla i hné, og
það er óvist hvort hann leikur
með sinu liði á næstunni. Allt
frá þvi að Francis varð fyrir
þessum alvarlegu meiðslum
hefur Goodwin verið að leita
aö góðum sóknarleikmanni I
lið sitt, en þeir liggja ekki á
lausu I dag. — „Ég hef enn
áhuga á góöum leikmanni, ef
sá rétti væri á boðstólum”,
sagði Goodwin fyrir stuttu, en
aðaláhugamál hans er að fá
Trevor Francis i sitt fyrra
form. —
,,Ef viö höldum áfram að fara
svona vel út úr leikjum okkar,
án þess að Francis leiki með,
þá tel ég það mjög gott, þvi að
Francis er búinn að vera aðal-
leikmaöur liðsins undanfarin
ár.”
— Mér þykir þetta leiðinlegt
vegna Francis, þvi að hann
var orðinn svo áhugasamur og
spenntur yfir þvi, að hafa
verið valinn i enska landsliðs-
hópinn, og hann átti mögu-
leika á að leika sinn fyrsta
landsleik fyrir England. En
hann er aðeins 20 ára, og hann
á áreiðanlega eftir að fá mörg
tækifæri, að vera með i lands-
leikjum i framtiðinni.
Trevor Francis var kominn i
mjög góða þjálfun, áður en
hann meiddist. Hann var pott-
urinn og pannan i góðum
árangri Birmingham-liðsins i
byrjun keppnistimabilsins og
það var honum að þakka, að
Birmingham var ofarlega á
blaði i byrjun deildarinnar.
Francis segir sjálfur, að um
leið og hann féll i leiknum
gegn Sheffield United i lok
október, þá hafi hann strax
gert sér grein fyrir þvi, aö
meiösli hans væru alvarleg,
og að tækifærið fyrir hann til
aö leika fyrir England gegn
Tékkóslóvakiu hefði runnið úr
greipum hans. Já, þaö er
kannski grátbroslegt, að þetta
eru fyrstu alvarlegu meiðslin
sem hann hefur fengið á knatt-
spyrnuferli sinum og þau
komu á hinum versta tima, —
eða rétt áður en hann átti að
klæðast landsliðspeysu Eng-
lands.
— ,,Ég hafði öðlazt mikið
sjálfstraust og framtiðin virt-
ist björt. En eitt spark eyði-
lagði allt þetta. Ég veit að ég
þarf að æfa mikið og leggja
hart að mér til þess að komast
aftur i fulla æfingu. En hafið
þið ekki áhyggjur, — ég kem
fljótlega aftur”, sagði Trevor
Francis, sem er greinilega
ekki búinn að leggja árar i bát.