Tíminn - 09.03.1975, Blaðsíða 16

Tíminn - 09.03.1975, Blaðsíða 16
16 TÍMINN Sunnudagur. 9. marz 1975 aö nokkur fjandmaður sigri hann.... Hér svipar orðum Jesú mjög til þess, sem frá segir i Bibllunni. Og jafnvel hér spáir Jesú dauða sin- um innan skamms. Allt stendur það heima við það, sem segir i guöspjöllunum, sem að sjálfsögðu undirstrikar mikilvægi orðanna. Alltof mikill munur á frásögnun- um heföi virzt furðulegur. Anan málar málverk af Jesú En jafnframt málaði Anan þetta málverk af Jesú, sem nú er slikur helgigripur. Málverkið gaf hann konúnginum, sem leit á það sem mikla heiðursgjöf, og siðar gerist það, að Labubna fær þau fyrirmæli að skrásetja allt og koma fyrir i spjaldskrám kon- ungsins. Okkur er meira að segja sagt frá þvi, að Jesús gleymdi ekki lof- orði sinu. Eftir dauða hans kom lærisveinninn Thaddeus til Ed- essa, þar sem hann skirði kon- unginn og læknaði hann. En hvað um málverkiö? bótt það hafi einhvern tima verið til, þarf málverkið ekki endilega að vera það upprunalega. Kirkjusagnfræðingurinn Eva- grius telst hafa séð það siðastur manna. Það var árið 545. Siðan liða nokkrar aldir, og ekkert heyrist af málverkinu. Nú eru samgöngur slæmar, að það segir svo sem ekkert þö ekkert heyrist af þvi fyrr en árið 944. Þetta ár leggja Múhameðstrú- armenn nefnilega Edessa undir sig. Þá skiptir Jesúm engu máli, svo að þeir fallast á það að láta málverkið af hendi til austur- rómverska keisarans Romans Lacapenus gegn þvi, að hann viðurkenni hernámið og greiði 12.000 silfurdali fyrir málverkið. Málverkið hafnar fyrst um sinn i Konstantinópel. Þar er það til ársins 1372, þegar kapteinn Moltaldo frá Genúa hrekur Tyrkina á brott. Á hann er hlaðið dýrum gjöfum — þar á meðal er Jesú-myndin, sem hann siðar gefur kirkju Heilags Bartólomeusar. Þegar hermenn Lúðviks 12. ræna myndinni árið 1507 ris svo sterk mótmælaalda, að koiiungurinn skilaði henni aft- ur, og eftir það voru settir á hvelf- inguna, þar sem hún er geymd, sjö lásarnir i öryggisskyni, og er öryggið slikt, að það þarf nánast styrjöld til að granda myndinni. Hvelfingin haggast ekki Það munaði mjóu i heimsstyrj- öldinni siðari, þegar sprengja lenti á hlaustrinu, en hvelfingin haggaðist ekki. Aldurinn hefur að sjálfsögðu sett merki sin á þennan heilaga grip. Viss litblær hefur horfið, en rauður blær gerir það að verkum, að hægt er að átta sig nokkurn veginn á, hvernig það hefur verið. Onnur verk eftir Anan eru ekki kunn, en samtimamyndir frá þessum timum eru unnar með sömu litum, þannig að karlmenn eru dökkir, konurnar ljósar yfir- litum. Þetta er lika aðferð til að sýna mun á kynjunum. Hvað þvi viðvikur að þarna bregður fyrir býsantiskum stil, sem tiðkaðist miklu siðar, er hægt að visa hvers konar grunsemdum strax á bug, einnig þvi að hér sé um eftirmynd að ræða, þvi að I bisantiskum stil eru karlmenn málaðir ljósari. Allt bendir til þess, að skrif La- bubna séu rétt. Þar fáum við glögga sönnun fyrir tilveru Jesú og sömuleiðis þvi, að hann vildi alls ekki komast hjá ákæru, þvi að allt væri fyrirfram ákveðið. Það stendur heima viö guðspjöll Nýja Testamentisins. —Þýöing: BH Tæknifræðirtgar —- Raftæknar Rafmagnsveita Reykjavikur óskar eftir að ráða rafmagnstæknifræðing (sterk- straum) og raftækna til starfa i Innlagna- deild. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu Rafmagnsveitunnar Hafnarhúsinu 4. hæð. Umsóknarfrestur er til 18. marz 1975. W\ 1RAFMAGNS ÍM VEITA ^ 1REYKJAVÍKUR Mosaik-mynd af Jesú i þjóðminjasafninu i Flórens. Kaupfélag Húnvetninga kappkostar að hafa ávallt á boðstólum allar holztu NAUÐSYNJAVÖRUR í verzlunum sínum — á eins hagkvæmu verði og unnt er á hverjum tíma — ásamt ýmsum öðrum vörum og þjónustu. Þegar á reynir er hagur fólksins bezt tryggður með viðskiptum við kaupfélagið. Kaupfélag Húnvefninga Blönduósi — Útibú á Skagaströnd mmm® i

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.