Tíminn - 09.03.1975, Blaðsíða 29

Tíminn - 09.03.1975, Blaðsíða 29
Sunnudagur. 9. marz 1975 TÍMINN 29 UNDANFARIÐ hefur allmikið verið um það rætt, hverrar ætt- ar furðuhlutir þeir séu, sem á fjörur hafa rekið i Skaftafells- sýslu og viðar. Sýnist sitt hverj- um, en flestir veðja þó á Riiss- ann. Aðalhrellingin i máli þessu varð, þegar hylki eitt mikið, 1 1/2 tonn að þyngd, 3 metrar á lengd og um 1 metri i þvermál, þakið hljóðnemum, 32 stk., rak á Austurfjöru i landareign bæjarins Horns I Nesjahreppi, en þar rétt hjá er radarstöð Bandarikjamanna og nefnist á Stokksnesi. Tilkynning um þetta ógnandi furðuverk barst fyrst til lög- gæzlumanns, sem sér um Stokksnesstööina og er starfs- maður lögreglustjórans á Keflavikurflug velli. Atburðurinn varð siðla kvölds og þegar I stað tilkynntar yfir- völdum, jafnt heima I héraði sem syðra. Tóku nú ærði mátt- arvöld syðra málið I sinar hend- ur. Hólkurinn ógnvekjandi var vaktaður alla nóttina, en um hádegi daginn eftir komu fræðingar að sunnan, jafnt Is- lenzkir sem ameriskir, og vitið menn! ljósmyndari frá Morgun- blaðinu. Hvers vegna bara frá Mogganum? Eitt er vist, að ekki var nein- um blaðamanni tilkynntur fund- urinn að austan. Var nú ákveðið að flytja hólkinn dularfulla i varnarstöðina á Stokksnesi og „stóð hann þar uppi” i nokkra daga, unz hann var fluttur suður á Keflavikurflugvöll. Þar var allt rifið i sundur, en enginn Rússi fannst i hylkinu, og sumir segja hreint ekki neitt. Nú skeður það, að bændur á Hala i Suðursveit itreka tilkynningar sinar um dufl, er rekiðhafði á fjörur þeirra fyrir 10-11 mánuðum. Höfðu þeir i Dufl og hólkar ó fjörum í Austur-Skaftafellssýslu upphafi talið liklegt, að hér væri um að ræða siglingadufl frá Vitamálaskrifstofu og tilkynnt fundinn þangað, en þar vildi enginn neitt við gripinn kann- ast. En nú voru breyttir timar, og ekki þurfti að biða aðgerða varðandi Haladuflið. Land- helgisgæzlan, Landssiminn og utanrikisráðuneytið brugðu hart við og sendu sina menn austur á Höfn i flugvél, og var þaöan ekið á Hala og gripurinn kannaður. Ýmislegt kom úr maga Hala- duflsins m.a. einhvers konar simatæki. Enginn vildi þó svara, þegar simtólinu var lyft. Haft var við orð, að þegar búið væri að tæma duflið, væri kom- inn hinn ágætasti slátursuðu- pottur. Enn er allt á huldu, hvort I honum verður soðið slát- ur I Suðursveit, á vitamálaskrif- stofu, eða kannski bara pylsur suður á „Velli”. Þessir fljótandi furðuhlutir, sem raunar eru nú á landi, hafa ekki þótt nein veruleg tiðindi i Austur-Skaftafellssýslu og hér er mönnum alveg sama, hver hefur varpað þeim i sjó við strendur landsins. Menn segjast lengi hafa vitað.um slik apparöt við landið og telja „eigendur” geta verið marga. Hitt er þó að athuga, að slik reköld halda vöku fyrir ýmsum ábyrgum aðilum við Faxaflóa, og er það vel. 011 tilbreyting er góð og hreyfing hugans, ásamt tilheyrandi brambolti i ferða- lögum og vettvangsgöngu, eyk- ur blóðrásina og örvar hug- myndaflugið. Duflað i Suðursveit. Elias varðstjóri vill fá samband. Guðmundur Svavarsson: Stokksnesskrimslið i fjöruborði við Kanans land. Sendiherra Frakklands, Latour de Jean, við tvö af verkum á sýningunni LITO I. Timamynd: Róbert Frönsk listaverk á Vilhjdlmur Hjdimarsson, menntamdlardðherra: Eftir fund með AA-fólki gébé—Reykjavik — A föstudag- inn var opnuð sýning i franska bókasafninu að Laufásvegi 12. Nefnist sýningin LITO I, og eru þar sýndar litógrafiur og stein- þrykksmyndir, 49 að tölu, eftir kunna franska listamenn frá 19. og 20. öld. Sýningin verður opin á hverjum degi frá kl. 17:00 til 22:00 til 23. marz. A sýningunni eiga margir þekktustu listamenn Frakka á þessu sviði myndir, þar á meðal Hans Hartung, Jean Cocteau, Lucien Couturier, Alfred Maness- ier og Stanley William Hayter, sem stofnaði hið fræga L’Atelier 17 i Paris. Þrjár islenzkar lista- konur hafa verið nemendur hans i Paris, þær Björg Þorsteinsdóttir, sýningu sem sá um uppsetningu sýning- arinnar LITO I, Ragnheiður Jónsdóttir og Nina Tryggvadótt- ir. LITO I er farandsýning og hefur farið viða, en hingað kom hún beint frá Paris. Næsta vor er svo væntanleg önnur frönsk sýning, er nefnist LITO II. Mannleg vandamál eru marg- slungin og verkefnin, sem við er að fást, utan enda. Sum eru al- menns eðlis, önnur einstaklings- bundin. Oft varða þau einkum fjármál og athafnir og svo eru hin, sem vita inn á við, eru hug- læg, sálræn eða hvað menn vilja nú nefna það. AA-samtökin færast mikið i fang. Vettvangur þeirra spannar yfir öll þessi svið. Og starfsemin beinist að þvi að efla viðnám og byggja upp sóknarmátt hjá einstaklingum, sem eiga örðugt uppdráttar. Nýlega átti ég þess kost öðru sinni, að sitja „opinn fund” hjá þessum samtökum. Þótti mér það sem áður næsta lærdómsrikt og ærið umhugsunarefni það sem fram kom i máli manna. Afengisbölið er ekkert orða- tiltæki, eða óljóst hugtak heldur ógnvekjandi veruleiki. Þrátt fyrir vindýrkun ótrúlega mikils fjölda manna, þá starfa nú samt i landinu allmörg félög og félaga- samtök, sem hafa á stefnuskrá sinni baráttu gegn Bakkusi. Þau eru byggð upp á ýmsa vegu. Sum eru bindindisfélög, félagarnir skulu allir vera bindindismenn og leitast við með fordæmi sínu, hvatningum og ýmiss konar félagsstarfi að glæða áhuga fyrir bindindi gagnvart áfengum drykkjum. önnur vinna einkum að björgunarstörfum á þeim eyðisöndum mannlegrar tilveru, þar sem skipbrotsmönnum Bakkusar skolar löngum að landi. — Enginn vafi er á þvi, að þessi starfsemi margvisleg gerir stórmikið gagn. AA-samtökin eru byggð upp af fólki, sem sjálft hefir kynnzt Bakkusi meira en góðu hófi gegnir — að eigin mati. Þetta er fólk, sem viðurkennir, að það sé „alkóhólistar” og hefir bundizt samtökum um að styðja hvert annað i baráttu fyrir breyttum og betri háttum. Samtökin eru opin öllum þeim, sem eiga i sams konar erfiðleikum og sjálfir vilja reyna að spyrna við fótum. Allt það, sem fram kom á þess- um fundi kom heim og saman við þá vitneskju, er ég áður hafði fengið, um starfsemina i heild og um viðhorf einstaklinganna. Allir höfðu átt i erfiðleikum, jafnvel ratað i miklar raunir. Löngunin að breyta til vakti undir niðri og þar kom, einatt eftir margar misheppnaðar tilraunir til úr- bóta, að leitað var kjóls og stuðnings hjá AA-samtökunum. Þar gafst tækifæri að ræða vandamálin, jafnvel daglega, við annað fólk, sem skildi stöðuna og nákvæmlega hvar skórinn kreppti. Og enda þótt takmarkið sé oft i fyrstu aðeins að „vera ódrukkinn einn dag” þá hafa margir náð undraverðum árangri. AA-samtökin eru ekki bundin neinum trúfélögum. En marg- ir þeir, sem þar starfa, telja að og bæn hafi veitt þeim ótviræðan styrk i striði. Þegar ég hlýddi á mál manna á þessum fundi duttu mér i hug hin gamalkunnu orð: I sveita þins andlits skalt þú hrauðs þins neyta. Ég held, að þau megi vel heimfæra upp á viðleitni þess fólks, sem berst hinni góðu baráttu i AA, þvi þar er við harðan að deila. Ög augljóst virðist af ummælum þeirra, að hver og einn gengur að viðreisn- arstarfinu með einlægum ásetn- ingi, en þó með fullri vitneskju um það, að „veikur er viljinn”. AA-samtökin gera litið að þvi að auglýsa starfsemi sina. Með þessu greinarkorni leyfi ég mér nú samt að vekja athygli á tilvist þeirra. Jafnframt þakka ég ánægjulega samverustund á dögunum. En fyrst og fremst þakka ég AA-fólkinu fyrir þau ræktunarstörf, sem það vinnur á þeirri akurrein þjóðlifsins, sem hvað vandasamast er að erja. Vilhjálmur Hjálmarsson. Auglýsing um skoðun ökurita Með tilvisun til fyrri auglýsingar ráðuneytisins um skoðun ökurita i stýrishúsi í dieselbif- reiðum yfir 5 tonn að eigin þyngd hefur ráðuneytið hlutast til um að skoðunarmenn verði staddir á eftirtöldum stöðum og tima dagana 11.-15. mars n.k. til hagræðis fyrir viðkom- andi bifreiðastjóra. Þriðjudagur 11- mars kl. Miðvikudagur 12. mars kl. Miðvikudagur 12. mars kl. Fimmtudagur 13. mars kl. Föstudagur 14. mars kl. Laugardagur 15. mars kl. 13—18 Borgarnes v/Bifreiðaeftirlit 10—12 Laugarbakka, Miðfirði 15—18 Blönduós v/Bifreiðaeftirlit 10— 14 Sauðárkrókur v/Bíiaverkst. K.S. 9—20 Akureyri v/Þórshamar 11— 16 Húsavík v/ Bílaverkst. Jóns Þorgr. Skoðunarmaður verður ekki sendur aftur á framangreinda staði. Komi umráðamenn við- komandi bifreiða þvi ekki við, að láta skoða ökuritana á hinum auglýstu timum verða þeir að koma með bifreiðina eða senda ökuritann til V.D.O. verkstæðisins Suðurlandsbraut 16 Reykjavik fyrir 1. april n.k. Fjármálaráðuneytið, 7. mars 1975.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.