Tíminn - 09.03.1975, Blaðsíða 32

Tíminn - 09.03.1975, Blaðsíða 32
32 TÍMINN Sunnudagur 9. marz 1975 Hólmgangan ó Freysnesi Gömul saga frd Noregi Einu sinni var maður, sem Grimúlfur hét. Hann bjó á Freysnesi í Noregi. Rikur var hann og voldugur og hafði ætið margt manna um sig. Hann átti mörg stór- býli. Mikið af auðæfum sinum hafði hann eign- azt með ójöfnuði og yfir- gangi. Hann kom sér i deilur við bændur. Oft- ast voru þær deilur jafnaðar með vopnum. Og Grimúlfur hafði allt- af sigur. En jarðir þeirra og óðöl eignaði hann sér. Grimúlfur var svo mikill vigamaður, að enginn þorði að skipta höggum við hann og enginn hafði jafn mörgum liðsmönnum á að skipa og hann. í þingdeilum bar hann alltaf hærri hlut, þvi að lögréttumennirnir þorðu ekki að dæma öðruvisi en Grimúlfur vildi vera láta. Að lokum var svo komið, að Grimúlfur réði einn öllu, eins og væri hann konungur. Hann var grimmur og hefnigjarn, svo að eng- inn þorði að risa á móti valdi hans. Einn af þeim, sem varð að hrökkva undan ofriki Grimúlfs, hét Þor- leifur. Þeir voru ná- grannar, og Grimúlfur komst brátt i deilur við hann. Þeim lauk svo, að Þorleifur fór burtu með allt sitt lausafé. Hann fór viða um lönd og gerðist að lokum hirð- maður konungs. Einu sinni særðist hann, svo að hann fann, að til dauða myndi draga. Synir hans voru þá allir vaxnir og hugdjarfir menn. Þeir höfðu unnið frægð og frama. Aðeins yngsti sonurinn var enn þá með Þorleifi. Hann hét Gauti. Þorleifur kallaði Gauta fyrir sig og sagði: ,,Ég finn að ég fæ ekki frið i haugi minum, fyrr en ætt mín er aftur setzt að á óðali okkar. Heit þú mér þvi, að fara heim og ná aftur eigum okkar úr höndum Grimúlfs. Þú ert að visu yngstur af bræðrum þinum, en ég hef gefið þér gætur og séð að gæfan mun fylgja þér.” Gauti hét þvi að fara og vinna aftur ættar- óðalið. Siðan andast Þorleifur faðir hans. Gauti ferðaðist nú um fjarlæg lönd, en aldrei gleymdi hann heiti sinu. Hann varð að halda orð sin, þótt Grimúlfur væri rikur og voldugur. Dag einn, siðla sum- ars, sté Gauti á land að Freysnesi. Þar var þá þing og glatt á hjalla. Það hafði árað vel, og þvi skyldi halda blót- veizlu mikla, guðinum Frey. Grímúlfur var hofgoði. Þá vegsemd hafði hann svælt undir sig með ójöfnuði, þvi að alls staðar vildi hann vera fremstur. Enginn þekkti þennan unga, ókunna mann, sem kominn var til þingsins. Gauti var svo ungur, þegar hann fór að heiman. Gauti var vel vopnum búinn og hinn vigaleg- asti. Nú sá hann aftur æskustöðvar sinar. Jörðin var i niðurniðslu. Grimúlfur lét vinnufólk sitt búa þar. Gauti sá, að sér myndi veitast erfitt að ná aftur óðali sínu, þegar hann leit yfir mannf jöldann, sem Grimúlfur réði yfir. En hann hét þvi að gefast ekki upp fyrr en i fulla hnefana. Það leið á þingið. Lög- réttumaðurinn spurði, hvort nokkur hefði fleiri mál fram að flytja. Það var hljótt um stund. En svo sté Gauti upp á stór- an stein, bað sér hljóðs og mælti: ,,Hér með stefni ég Grimúlfi á Freysnesi fyrir dóm þingsins og allra góðra manna fyrir það, að hann hefur rek- ið föður minn, Þorleif ívarsson, frá ættaróðali sinu og svælt það undir sig. nú krefst ég þess, að hann skili i minar hend- ur eign feðra minna og greiði hæfilegar bætur, að dómi lögréttu”. Grimúlfur reis á fætur og var reiður. Hann var digur og mikill að vallarsýn, svarthærður og svartskeggjaður. Um afl hans fóru miklar sög- ur. ,,Hvaða væskill er það, sem er að væla þarna á steininum? sagði hann hæðnislega. Gauti stóð enn þá uppi á steininum. Hann var hár og grannvaxinn. Hann var ljós yfirlitum, ,,Gauti Þorleifsson heiti ég”, sagði hann stillilega. „En svo virð- ist mér, sem virðingin fyrir helgi þings og laga sé að þverra, úr þvi að sá fær hæðnisorð ein, sem hefur sakir fram að færa. Væri þessi staður ekki friðhelgur, gætum :V|#v 3P\ DAN BARRY

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.