Tíminn - 09.03.1975, Qupperneq 6
6
TÍMINN
Sunnudagur 9. marz 1975
Hólshús I Eyjafirði 1890
Ingólfur Davíðsson:
Byggt og búið
í gamla daga lxiv
„Forna Kristnes, gamla
Grund gróin lofi hverja stund”.
Svo kvað Matthias Jochumsson.
Grund hefur öldum saman verið
höfuðból. Litum á mynd frá
aldamótunum siðustu — eða um
það bil. Gamla timburkirkjan
sést t.v. (gafl og bakhlið). Haf-
izt var handa árið 1842 og kirkj-
an byggð. Var hún 16x8 3/8 álnir
og hæð frá gólfi að bitum 3 3/8
álnir og þaðan til mænis 4 og 7/8
álnir. Kostaði kirkjan uppkomin
rúmlega 1121 rikisdal. Kirkjuna
Grundarbillinn 1907
smiðaði Ólafur Briem á Grund.
Hún mun hafa verið tekin niður
um eða eftir 1906, er Magnús
Sigurösson hafði reist nýja, veg-
lega kirkju á Grund. Reisulegt
er ibúðarhúsið fyrir miðju á
myndinni, byggt 1890. En hvaða
hús sést yzt til hægri? Grundar-
billinn kom til Akureyrar i
nóvember 1907, að ýmsu leyti
ósamsettur. Ungur maður, Jón
Sigurðsson frá Hellulandi i
Skagafirði, er numið hafði vél-
fræði I Þýzkalandi var ráðinn til
að setja bilinn saman — og hafði
lika séð um innkaup á honum,
en eigandinn var Magnús á
Grund. 10. desember 1907 ók Jón
bilnum fyrstu ferðina fram að
Grund. Þetta var fyrsti billinn
sem kom til Norðurlands.
Skammt frá Grund er Hóls-
hús.Þar stóð gerðarlegur fjög-
urra bursta bær þegar myndin
var tekin 1890. Peningshús úr
klömbrum og grjóti til beggja
hliða að sjá.
Lágreistari virðast húsakynn-
in hafa verið að Naustum við
Akureyri um aldamótin og túnið
Naust við Akureyri um 1900
Egilsstaðir i Fljótsdal 1899
Gamla Grundarkirkja t.v., byggð 1842
æði stórþýft. Nú eru fjögur býli
að Naustum, búrekstur á þrem-
ur þeirra og mikil ræktun. Húsin
flest úr steinsteypu. Tilrauna-
fjós var byggt úr leirsteypu 1929
og reynist allvel. 1738-1744
bjuggu að Naustum og þvi næst
nokkur ár á Kjarna við Akur-
eyri, Hallgrimur Jónsson, ey-
firzkrar ættar, og kona hans
skagfirzk Halldóra Þorláksdótt-
ir. Urðu þau kynsæl mjög. T.d.
eru útaf þeim komnir sira Gunn-
ar á Upsum, Þorlákur i Skriðu,
Kjærnestedarnir, Tryggvi
Gunnarsson, Hannes Hafstein
og ýmsir fleiri nafnkenndir
menn. Forfaðirinn Hallgrimur
var listfengur mjög, smiður og
tréskurðarmaður ágætur og all-
góður málari. Hefur löngum
verið smiðsnáttúra og listfengi i
ættinni.
Myndin af Egilsstöðum i
Fljótsdal 1899 er ljósmynd eftir
teikningu, sem fannst i mynda-
safni Hallgrims Einarssonar
ljósmyndara á Akureyri. Þarna
er tvilyft torfbaðstofa, skemma
og eldhús. Garður framundan
bænum. Byggingarlagið tals-
vert annað en i Hólshúsum.
Myndirnar eru úr Minjasafni
Akureyrar.