Tíminn - 09.03.1975, Page 7
Sunnudagur 9. marz 1975
TÍMINN
7
Vaka eða víma
„Rikið er mesti alkóhól-
istinn”, sagði Visir 19.
febrilar sl. Þetta var þridálka
fyrirsögn, en svo var strax
dregið úr fullyrðingunni i
greinni, sem á eftir fylgdi og
byrjaði með þessu:
„Sumir eru orðnir háðir
áfengi. Meðal annars rikið. Is-
lenzka rikið er með meiriháttar
alkóhólistum”. Siðan segir: I
fjárlögum fyrir árið er
rekstrarhagnaður Afengis- og
tóbaksverzlunarinnar metinn á
rúmlega þrjá og hálfan milljarð
króna”.
Ekki veit ég hvaðan Visir
hefur þessa tölu. t fjárlögum
ársins 1975 stendur:
Rekstrarhagnaður A.T.V.R.:
þús. kr.
Er ríkissjóður
háður áfengi?
4.100.000
43.000
Rekstrarhagnaður
A.T.V R.
Gjald af seldum
vindlingum
. Gjald af seldum eldspýtum 2.000
Gjald af einkasöluvörum 2.000
Þetta virðist mér vera 4
milljarðar og 147 milljónum
betur.
Þetta er áætlun fjárlaga
Tekjur eru áætlaðar samtals 47
milljarðar og 625.680 þús. kr.
Hagnaður af Áfengis- og
tóbaksverzlun rikisins hefur þvi
verið ráðgert að væri 8.71%
heildarteknanna.
Litum svo á hver reynsla
hefur veriö áður og hvern þátt
verzlun með áfengi og tóbak
hefur átt I tekjuöflun rikissjóðs.
Árið 1937 voru rikistekjur alls
18.298.858 kr. og hagnaður af
rekstri tóbakseinkasölu og
áfengiseinkasölu 2.605.134 kr.
eða 14.24% af rikistekjum.
Árið 1951 voru rfkistekjur alls
413.5i41.681 kr. en hagnaður af
þessari verzlun 86.988.524 kr. =
21.03%
Áriö 1962 uröu tekjur rikis-
sjóðs 2.051.460 þús. kr. og
hagnaður af A.T.V.R. 304.998
þús. kr. eða 14.87%.
JOHNS-MANVILLE
glerullar-
9 einangrun
er nú sem fynr vinsælasta og öruggasta glerull-
areinangrun á markaðnum I dag. Auk þess fáið
þér frian álpappír með. Hagkvæmasta
einangrunarefnið i flutningi. Jafnvel flugfragt
borgar sig.
Munið Johns-Manville I alla einangrun.
Sendum hvert á land sem er.
Hringbrout 121 . Simi 10-600
G/obus
r\
Fóður
HAGSTÆTT VERÐ
Þær svíkja ekki \
Kia
bandarísKu fóðurvörurnar
WAYNE
fóður-
BLÖNDUft
.V Á
ECIiL'
Hann er viða — en ekki í nýja
Globus-fóðrinu fró
ALLIED AAILLS
í Bandarikjunum
Höfum til afgreiðslu
nú þegar:
A-kúafóöurblöndu með
15% meltanlegu hrápr.
100 FE/100 KG
Maisinnihald 51%
Allied Mills er meðal staerstu
fóðurvörufyrirtaekja þar i landi og
framleiðir aðeins úrvals fóður
HLAÐIÐ ORKU
Leitið upplýsinga — Pantið strax
Allt afgreitt í sterkum trefjaplastsekkjum
B-kúafóðurblöndu með
12% meltanlegu hrápr.
100 FE/100 KG
Maisinnihald 61%
Eldissvínafóður með
13% melfanlegu hrápr.
100 FE/100 KG
G/obusa
LÁGMÚLI 5, SlMI 81555
Arið 1973 voru rikistekjurnar
25.129.413 kr. og hagnaður af
'A.T.V.R. 2.206.068 þús. kr. eöa
8.78%.
Þannig er hagnaðurinn af
þessari verzlun miklu minni
hluti af rikistekjunum siðustu
árin en áður var.
Sumum finnst óeðlilegt að
rikiö græði á tóbaks og áfengi .
Stundum segjast menn jafnvel
drekka af hollustu við rikis-
sjóðinn. Auðvitað er það for-
smán að verzlað sé með áfengi
én úr þvi þjóðin vill það er sjálf-
sagt að rikið reki þá verzlun.
Hvaöa neyzlu ætti frekar að
skattleggja en þessa?
1 Rikissjóður þarfnast mikilla
fjármuna til að mæta kostnaði
af drykkjuskap þjóðarinnar.
Það dæmi kann enginn að
reikna. Ýmsa liðimá nefna. Það
má t.d. benda á að rekstur
Kleppsspitalans er áætlaður
rúmlega 400 milljónir og vitað
aö 'nann er alltaf a.m.k. hálf-
skipaöur fólki, sem hefur
drukkið frá sér vitið. Það má
hafa til hliðsjónar tölfræðilegar
upplýsingar frá öðrum löndum.
í Bandarikjunum er fullyrt i
opinberum skýrslum að meira
en helmingur þeirra sem farast
I umferöarslysum farist i
árekstrum þar sem a.m.k.
annar ökumaðurinn er ölvaöur,
i meiri hluta morðmála er
um ölvun að ræða og meira en
fjórði hver þeirra, sem sjálfs-
morð fremja reynast hafa veriö
drukknir. Þar er talið að
drykkjuskapur sé aivarlegasta
og algengasta heilsutjón
þjóðarinnar næst hjarta-
sjúkdómum og krabbameini.
Þar er gert ráð fyrir þvi, að
millj. manna stytti aldur sinn
með áfengisneyzlu, svo að nemi
10-12 árum. Og fyrst við erum
aö tala um áfengis- og tóbaks-
verzlun má gjarnan koma þvi
að hér, að i Noregi og Dan-
mörku er talið að reykingar eigi
oft sök á eldsvoðum, þó að ég
muni ekki eftir að sagt hafi ver-
ið frá sliku hér á landi.
Svo að enn sé vikið að skýrsl-
um Bandarikjamanna leiða þær
I ljós, að hjónaskilnaðir eru
stórum algengari hjá fólki, sem
drekkur verulega.
Það getur enginn reiknað
hvað áfengisneyzla fslendinga
kostar rikið beinlinis I útlögðum
peningum. Fullyrða má, að það
skipti milljörðum, þegar saman
er taliö frá löggæzlu og fanga-
geymslu, heilsugæzlu og
hjúkrun, greiðslum trygginga-
bóta og beint vinnutap þeirra,
sem laun sin fá af opinberu fé.
Miklu stórkostlegra er út-
koman fyrir þjóðarbúið I heild,
þó aö það séu sömu fyrirbæri,
sem þar koma við sögu.
Kaupgjald verður að vera
lægra vegna vinnusvika sem
stafa af drykkjuskap.
Iðgjöld verða að hækka vegna
skemmda og tjóns sem drukknir
menn valda.
Hugsum okkur nú aö þjóðin
færi að horfast i augu við
staöreyndir, hugsa og draga
rökréttar ályktanir. Hugsum
okkur að þjóðin reyndi bindindi
eitt ár. Þeir veröa ekki
grátnir úr helju sem þar eru
komnir. Bilað fólk og niður-
brotið verður heldur ekki allt
jafngott i einni svipan — og
sumt auðvitað aldrei. Lög-
gæzlukostnaður á skemmtunum
félli niður að mestu og það
rýmkaðist fljótt á Kleppi en
rikissjóður yrði samt að bera
þungar byrðar vegna þess, sem
á undan er farið. Samt mun
mega færa sterkar likur að þvi
aö einn milljarður gæti sparast
fyrsta árið. Svo má minna á
það, að I fjárlögum þessa árs er
gert ráð fyrir þvi, að „hráefni
og vörur til endursölu” hjá
A.T.V.R. kosti 840 milljónir
króna og rekstrargjöld fyrir-
tækisins nemi 300 milljónum.
Þegar þessar tölur eru at-
hugaðar kemur i ljós að rikis-
sjóður er ekki svo háður
áfengiskaupum þjóðarinnar aö
það hafi neina úrslitaþýðingu.
En meðan þjóöin vill drekka og
gerir það að verulegu leyti á
kostnað rikissjóðs virðist ekki
óeölilegt að rikissj, r taki eitt-
hvaö upp I sinn .<$>'tnað af
söluveröi áfengisins. ‘
Okkar þilplötugeymsla
er upphituð
Þilplötur eru auðvitað meðal alls
þess byggingarefnis sem við bjóðum. En
við geymum plöturnar í fullupphituðu hús-
næði. Það meta þeir fagmenn mikils, sem
úr þeim vinna.
BYGGINGAVÖRUVERZLUN
WKÓPAV0GS NÝBÝLAVEGI 8 SÍMI:410Q0