Tíminn - 09.03.1975, Side 10
10
TÍMINN
Sunnudagur. 9. marz 1975
Jón M. Baldvinsson.
SÝNING
í ÞREM
DEILDUM
Gitt verkanna á sýningunni.
Málverkasýning Jóns M. Baldvinss á Kjarvalsstöðum
SÍÐAST liðinn laugar-
dag opnaði Jón Bald-
vinsson málverkasýn-
ingu að Kjarvalsstöðum,
en Jón fékk salinn léðan
i endurtekinni atkvæða-
greiðslu á sinum tima,
áður en til vinslita kom
milli myndlistarmanna
og Reyicjavikurborgar.
Jón M. Baldvinsson
fæddist árið 1927, og
lagði á unga aldri stund
á söngnám i Kaup-
mannahöfn hjá Imm-
anuel Franksen, en
myndlistin hefur þó að
hans sögn ávallt verið
áleitin, og árið 1971 hóf
hann myndlistarnám,
eftir áralanga málningu
i fristundum.
Jón M. Baldvinsson nam i
Myndsýn, einkum hjá Einari Há-
konarsyni, og fór námsferðir til
Frakklands og Hollands. Arið
1972 hóf hann svo nám i józku
kunstakademlunni, og lagði þar
einkum stund á módelteikningu.
Jón sýndi fyrst i Reykjavik
fyrir allmörgum árum, á Mokka,
sem þá var nýopnað kaffihús.
Arið 1972 hélt hann sýningu i húsi
Guðspekifélagsins við Ingólfs-
stræti, og hann tekur um þessar
mundir þátt i samsýningu
danskra málara á vegum
fræðsluyfirvalda i Danmörku.
II.
Af framansögðu sést, að ferill
Jóns M. Baldvinssonar er dálitið
óvenjulegur. Margir hafa nú
sungið svolitið, án þess að það
spillti fyrir öðru, en það sem eink-
um er athyglisvert, er að Jón
telur ekki eftir sér að byrja á
miðjum aldri á þvf, sem flestir
gera i æsku sinni. Hann ákveður
sem sé einn góðan veðurdag að
leggja frá sér kvundagsverkin og
snúa sér að málningu, þá 44 ára
gamall.
Jón er ekki alveg reynslulaus,
þegar hann tekur þessa
ákvörðun. Hann er búinn að
föndra við teikningu og málverk
lengi, og þá eru aðeins tvær leiðir
til: Maður „útskrifar” sig sjálfur,
eða maður lærir.
Sú leið, sem Jón M. Baldvins-
son hefur valið, að hefja nám á
miðjum aldri, er ekki ný. Inn I
málin blandast margt,
persónulegir hagir og fl., en
allavega er þessi leið
virðingarverð og vænlegri til þess
aö meira mark sé tekið á verkum
þeirra, heldur en hinna, er stytt
hafa sér leiðina þótt hvorugt sé
einhlítt til árangurs.
Við hljótum þvi að taka
viðleitni Jóns með alvöru.
Nú hefur Jón M. Baldvinsson
opnað stórsýningu á Kjarvals-
stöðum, og hefur hengt upp 91
verk. Þau elztu munu vera frá ár-
inu 1945, gerð þegar hann var að
syngja i Kaupmannahöfn. Þau
verk bera einkenni byrjenda-
verka f ríkum mæli. Af þeim
verður ekki annað ráðið en vissar
áleitnar hugsanir, sem margir
þekkja, hugsanir, sem oft verða
kveikja að þvi, sem síðar kemst i
verk. Hugsanir sækja á. Þetta
myndefni (sumt) er þó liklega
vænlegra til þess að skila sér i
söng, eða guðspeki, fremur en i
málverki.
III.
Sýningin byrjar i norðurenda,
og henni má skipta I þrjá hluta.
Æskuverk, eða verk frá Kaup-
mannahafnar árunum. Þá kemur
miðhluti, sem eru nýlegri verk,
en þó fyrir skólatima, og svo
syðst i salnum eru nýjustu verk
Jóns. Þetta er þannig f meginat-
riðum, að sögn málarans sjálfs.
Það er sem betur fer mikill
munur á þessum þrem hólfum.
Bezt er það nýjasta, það gamla
verst. Að gagnrýna einstök verk
frá fyrri tið er i rauninni út i hött.
Sýning þessara gömlu mynda er
ekki annað en tæknileg mistök og
skemmir aðeins heildarsvip
sýningarinnar. Við höfum ekki
áhuga á yfirlitssýningu á verkum
Jóns M. Baldvinssonar, — það
gera menn siðar á ævinni, þegar
ferillinn er orðin lengri og þrosk-
inn hefur náð hápunkti. Að visu
segir þetta okkur að málarinn er I
framför, stöðugri framför, og þá
miðað við hann sjálfan. Ef
nauðsynlegt var að segja sögu
málarans fyrst, mátti gera það
með „sýnum”, útvöldum
myndum frá fyrri tið, en ekki með
allsherjar eignakönnun, eins og
þama er gert, enda er þetta I
dálitlu ósamræmi við feril Jóns,
— sem sé það, að gera mun á
föndri og skólaðri málningu.
Nóg um það.
Miðdeildin og sú syðsta, sem
geyma nýjustu myndir Jóns,
glæða nýja von. Jón hefur þar náð
miklu betri tökum á málverkinu,
og tel ég, án þess að hafa fyrir þvi
vissu, að þau verk hafi orðið
honum drýgst til þess að fá
„heimild” til þess að fá að sýna
verk sin á Kjarvalsstöðum.
Þarna er að finna mjög athyglis-
verðar myndir, sem gefa það
ótvírætt til kynna, að hann getur
málað á þvi plani, sem hann ber
sig eftir. Þarna er að finna (mið-
deild) stórar landslagsmyndir,
ekki mjög persónulegar, en vel
unnar tæknilega, og svo abstrakt-
sjónir, sem unnar eru með punkt-
um, likast mósafk, enda fer það
ekki hjá þvi að maður spyrji
sjálfan sig, hvort oliulitir séu eina
aðferðin við slika myndgerð.
Kæmi ekki mosaík til greina?
Litameðferðin er glaðleg, en
samt dulmögnuð á stundum, og
viss handfesta hefur náðst hvað
sem öðru liður.
IV.
Ég hafði orðið svolitið var við
hann Jón M. Baldvinsson og vissi
um fyrirferðamikla þörf hans til
listsköpunar, og ég vissi, að hann
hélt i nám eftir rækilega umhugs-
un. Það var því með nokkurri
eftirvæntingu, sem ég fór að lita I
farangur hans nú, eftir heimkom-
una. Ég hef ekki orðið fyrir
vonbrigðum, og þótt skipulag
sýningarinnar hafi verið
gagnrýnt hér, breytir það ekki
þeirri skoðun minni, að hann hafi
'haft erindi sem erfiði. Það er
ástæða til þess að fagna þeim
áfanga, sem hann hefur náð með
þessari stórsýningu að Kjarvals-
stöðum, og það verður áhugavert
að fylgjast með framhaldinu.
Jónas Guðmundsson.
Ritari óskast
Opinber stofnun óskar að ráða ritara til
starfa allan daginn. Góð kunnátta i tungu-
málum (ensku og dönsku) nauðsynleg.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf
sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 20. marz
n.k. merkt: 1577.
Hagfræðingur —
Viðskiptafræðingur
Seðlabankinn óskar eftir að ráða á næst-
unni hagfræðing eða viðskiptafræðing til
þess að vinna að athugunum á fjármálum
fyrirtækja, einkum i sjávarútvegi og
iðnaði, svo og að almennum athugunum á
fjármálum þessara atvinnugreina. Starfs-
reynsla á þessu sviði er æskileg.
Hafið samband við starfsmannastjóra
bankans i Landsbankahúsinu, Austur-
stræti 11, III. hæð. Skriflegar umsóknir
stilist til bankastjórnarinhar.
Seðlabanki íslands
Breytingar á ferðum strætis
vagna í Breiðholtshverfi
Nýveriö var gerö nokkur breyt-
ing á ferðum Strætisvagna
Reykjavikur i Breiöholtshverfi,
fjöímennasta hverfi borgarinnar.
Breytingin var á leið tólf I Efra
Breiöholti. Hún er fólgin I þvi, aö
fjórir vagnar, sem þar hafa ekiö
sömu leiö munu nú aka hvorir á
móti öðrum.
A timabilinu á milli klukkan
07:00 á morgnana og 19:00 á
kvöldin verður ekið eftir tima-
töflu leiðar 12. En breytingin
veröur þessi:
Vagnar, sem fara frá Hlemmi 8
minútur yfir heila og hálfa tim-
ann aka um Vesturberg og til
baka um Austurberg. Þessir
vagnar fara frá endastöð, Suður-
hólum, 11 minútur yfir heila og
hálfa timann. Vagnarnir, sem
fara frá Hlemmi 7 minútur fyrir
heila og hálfa timann, aka eftir
Norðurfelli og Austurbergi að
endastöð i Suðurhólum. Þaðan
fara þeir samkvæmt skráðum
tima i leiðabók SVR 4 minútur
fyrir heila og hálfa timann, og
aka þá Vesturberg til baka.
A morgnana klukkan 07:26 og
08:26 fer aukavagn frá gatnamót-
um Norðurfells og Austurbergs
og ekur Norðurfell að Hlemmi.
.Við gatnamót Vesturbergs og
Norðurfells verður farþegum
hleypt út og inn, ef þeir óska þess,
þótt ekki sé um fastan viðkomu-
stað að ræða.
Eftir klukkan 19:00 á kvöldin
fækkar vögnunum um einn á
þessari leið. Vagnar, sem fara frá
Hlemmi eftir klukkan 19:00 og
leggja af stað 13 og 53 minútur yf-
ir heila timann, aka um Vestur-
berg og til baka frá Suðurhólum
um Austurberg. Þeir leggja af
stað frá Suðurhólum 26 og 46 min-
útur yfir heila tímann. Einn vagn,
sem fer frá Hlemmi 33 minútur
yfir heila timann, ekur eftir Aust-
urbergi að Suðurhólum, og fer
þaðan 6minútur yfir heila timann
og ekur Vesturberg til baka.
Þessi áætlun gildir frá klukkan
19:00 á virkum dögum, — eftir
klukkan 13:00 á laugardögum, —
á sunnudögum og aðra helgidaga.
Við miðhluta Vesturvegs varð
þó sú breyting, að þar verður
strætisvagn á 30 minútna fresti i
Tlmanum hefur borizt eftirfar-
andi frá nemendum Menntaskól-
ans á Akureyri:
„Almennur skólafundur, hald-
inn I setustofu heimavistar
Menntaskólans á Akureyri 27.
febrúar, ályktar eftirfarandi um
Landssamband Islenzkra
menntaskólanema: Við nemend-
ur Menntaskólans á Akureyri
teljum okkijr ekki eiga neina
samleið á grundvelli LIM með
nemendum Menntaskólans við
Hamrahlið, Menntaskólans I
staö 15 áður. lbúar þar eiga þó að
ná vagni á 15 minútna fresti með
þvi að ganga nokkrum metrum
lengra en áður. Hins vegar stytt-
ist sú vegalengd, sem ibúar aust-
astahluta Breiðholts, eða austan
endastöðvar við KRON, verða að
ganga, en hún hefur verið mun
lengri en sú vegalengd, sem ibúar
miðhluta Vesturbergs þurfa nú að
fara. A þennán hátt næst veruleg-
ur jöfnuður á vegalengdum.
Rétt er að taka fram, að vagn-
inn Miðbær/Breiðholt gengur á-
fram eins og verið hefur.
Skýringar á þessum breyting-
um eiga að liggja frammi hjá
vagnstjórum, og þar geta farþeg-
ar fengið þær.
(Fréttatilkynning)
Kópavogi, Menntaskólans við
Tjörnina og Mennta- og gagn-
fræðaskólans i Flensborg, sem
aldir eru upp undir áhrifum
amerisks hermannasjónvarps,
þar sem fulltrúar þeirra á siðasta
LIM þingi sýndu það berlega, að
þor þeirra til þess að ræða og
álykta um þjóðfélagsmál og
baráttumál nemenda virðist al-
gerlega niðurbrotið. Af þeim
orsökum segjum við skilið við
Landssamband islenzkra
menntaskólanema.”
Eiga ekki samleið með
menntaskólanemum sunnan fjalla