Tíminn - 09.03.1975, Qupperneq 23
Sunnudagur 9. marz 1975
TÍMINN
23
Fyrstir á
morgnnna
HESMSLIS-
rafstöðvar
Garðastræti 6
Símar 1-54-01 & 1-63-41
Höfum til sölu eftirtaldar
notaðar vinnuvélar:
INTERNATIONAL TD8B Jarðýtu, árgerð
1972
INTERNATIONAL TD9B Jarðýtu, árgerð
1971
INTERNATIONAL TD15B Jarðýtu,
árgerð 1966
INTERNATIONAL BTD20 Jarðýtu,
árgerð 1971
INTERNATIONAL 3434 Traktorsgröfu,
árgerð 1971
MASSEY-FERGUSON MF-50 Traktors-
gröfu, árgerð 1972.
Leitið upplýsinga hjá sölumanni.
^ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
$ Véladeild
ÁRMÚLA 3 REYKJAVÍK, SÍMI 38900
Guðmundur
Hinriksson
opnar
sýningu
Guðmundur Hinriksson hefur opnað sýningu á teikningum og málverk-
um að Kiausturhólum við Lækjargötu i Reykjavik. Sýningin verður op-
in til 17. marz. Virka daga verður hún opin á venjulegum verzlunar-
tima, laugardaga frá kl. 9-12 og 14-18, og sunnudaga kl. 14-18. Aðgangur
er ókeypis. — AIls sýnir Guðmundur 29 verk að þessu sinni, en þetta er
önnur einkasýning hans. Hann sýndi áður i Hamragörðum árið 1973, og
seldist þá þriðjungur myndanna. — Guðmundur Hinriksson stundaði
nám i Frakklandi á árunum 1965-’70. Hér heidur Guðmundur á einni
myndanna, sem hann sýnir að Klausturhólum. Þetta er blýantsteikn-
ing, sem listamaðurinn nefnir Lifmögn.
Timamynd Gunnar
Leiðsögumanna-
nómskeið 1975
verður haldið frá 13. marz til 2. júni n.k.
GÖÐIR
GREIÐSLU-
SKILMÁLAR
^DélaMilani
VERÐUR POLYFONKORINN
VIÐ PÁSKATÓNLEIKANA?
— neitað um opinbera fyrirgreiðslu
Höfum til afgreiðslu strax
úr vörugeymslu
6 kw eins og þriggja fasa
rafstöðvar
12,5 kw og 72 kw
sjálfvirkar rafstöðvar væntanlegar
með vorinu
FÓLÝFÓNKÓRINN hefur unnið
ötullega frá þvi i haust að undir-
búningi flutnings eins hins til-
komumesta og dáðasta tónverks,
sem til cr — óratórlunni
MESStAS” eftir Handel. Rösk-
lega 150 manns syngja kóra
verksins, 35 manna hljómsveit
leikur, og 3 einsöngvarar koma
frá Bretlandi, listamenn, sem
hlotið hafa há verðlaun og mikla
viðurkenningu þar og annars
staðar, Ráðgert var að flytja
verkið á bænadögunum 27. og 28.
marz, en nú er hæpið, að af þvi
geti orðið sökum mikils tilkostn-
aðar, og hvergi virðast undirtekt-
ir uin fjárframlög kórnum til
styrktar.
Beinn útlagður kostnaður við
hljómleikahaldið og undirbúning
þess er áætlaður um 2,8 milljónir
króna. Helztu útgjaldaliðirnir eru
laun hljóðfæraleikara og ein-
söngvara, fargjöld og dvalar-
kostnaður þeirra, sem koma er-
lendis frá, húsaleiga, nótnakaup,
prentun og auglýsingar. Há-
markstekjur kórsins af tónleikun-
um eru áætlaðar 1,4 milljónir
króna. Kórfélagar og söngstjóri
leggja fram vinnu sina endur-
gjaldslaust, en ef vinna kórfélaga
við æfingar væru reiknuð, næmi
sá útgjaldaliður a.m.k. 7 milljón-
um króna. Söngstjórinn, Ingólfur
Guðbrandsson, stofnaði Pólýfón-
kórinn og hefur stjórnað honum i
17 ár endurgjaldslaust.
Hvers eiga Bach og
Hándel að gjalda?
Kirkjuleg tónlist er að nokkru
styrkt af almannafé, söngfólk i
kirkjukórum og organistar fá
litilsháttar þóknun, og hljóðfæri i
kirkjum eru undanþegin tollum.
Sjálfsagt þyrfti að hlúa betur ao
þeirri starfsemi. En æðsta og feg-
ursta kirkjutónlist, sem ekki er á
færi nema beztu flytjenda að
koma til skila, nýtur engrar fyrir-
greiðslu af hálfu hins opinbera.
Að sögn Ingólfs Guðbrandssonar
verðurstarf áhugakóra á borð við
Pólýfónkórinn ekki til hér eftir
nokkur ár með þessu áframhaldi.
En hann telur það njóta minni
skilnings og fyrirgreiðslu hér á
landi heldur en t.d. leiklist fyrir
30—40 árum.
Pólýfónkórinn er stofnun, sem
fullyrða má að væri i hávegum
höfð i milljónaborgum erlendis,
en starfsemi hans hefur verið
sýnt mikið tómlæti af yfirvöldum
hér. Nýjasta dæmið þar um er
synjun fjármálaráðuneytis á
tollaeftirgjöf af orgeli, sem kór-
inn keypti til þess að geta flutt
stórverk Bachs og Hándels með
réttri hljóðfæraskipan.
Pólýfónkórinn hefur rekið
söngskóla i mörg ár án nokkurs
opinbers styrks, auk þess sem
þátttakan i starfi kórsins hefur
reynzt mörgum góður skóli.
Margt af bezta söngfólki landsins
tekur þátt i flutningi Messiasar,
þ.á.m. margir tónlistarkennarar.
Hin nýja stétt tónlistarkennara er
að verulegu leyti sprottin upp úr
starfsemi Pólýfónkórsins, þar
sem söngnám þeirra hófst. Marg-
ir telja, að áhrifa frá Pólýfón-
kórnum gæti nú viða orðið i söng-
starfsemi þjóðarinnar, og tón-
leikar kórsins vekja jafnan mikla
athygli og hafa hlotið mikið lof al-
mennings og gagnrýnenda, ekki
Harley-Davidson-snjósleðar
VIÐ BJÓDUAA AÐEINS NÝJUSTU ÁRGERÐ, 1975
• HARLEY-DAVIDSON býður 2 vélastærðir, þá minni sem
er
34 hestöfl og stærri sem er 37 hestöfl
• HARLEY-DAVIDSON er með hljóðdeyfi og þessvegna
e.t.v. hljóðlátari en nokkur annar.
• HARLEY-DAVIDSON er byggður úr áli
og þessvegna sterkari og léttari
hann er 178 kg.
• HARLEY-DAVIDSON er sérstaklega
þýður, enda t.d.
demparar á skíðum.
Harley-Davidson.
HARLEY-DAVIDSON er með:
Rafstarti handstarti og neyðarstarti. Styrkis
dempara. Bensintankur tekur 24 lítra. Hraða
mælir bensínmælir og míluteliari. Skiði
demparar og stuðarar eru krómaðir. CD raf
eindakveikja—120 watt alternator. 10" diska
bremsur — bremsuljós. Tvöföld aðalljós, hár
og lágur geisli. 18" belti — styrkt með stáltein-
um. Krókur að aftan— dráttarsleði fyrir tvo
fáanlegur.
GÍSLI JONSSON & CO. H.F.
Klettagaröar 11 — Sundaborg — Reykjavik — Sími 86644
Söluumboð
BÍLAÞJÓNUSTAN AKUREYRI
Tryggvabraut 14 — Slmi 21715
AÐ HÆTTA
siður erlendis en hér heima. Þrátt
fyrir það er betur búið að t.d.
lúðrasveitum og áhugaleikfélög-
um af opinberri hálfu en Pólýfón-
kórnum.
1 trausti þess, að almenningur
sýni starfsemi kórsins áhuga eins
og áður, og einstaklingar og fyrir-
tæki leggi nokkuð af mörkum til
að tryggja fjárhagslega útkomu
flutningsins — verður sala að-
göngumiða hafin nk. mánudag
hjá Ferðaskrifstofunni ÚTSÝN og
Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar.
Kennt verður á mánudögum og fimmtu-
dögum kl. 20:30 i stofu nr. 201 i Árnagarði
við Suðurgötu.
Vigdis Finnbogadóttir hefur skipulagt
námskeiðið, en auk hennar leiðbeina
kunnir fyrirlesarar og leiðsögumenn.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð er að
fá i afgreiðslu Ferðaskrifstofu rikisins,
Reykjanesbraut 6. Simi 1-15-40.
Innritun hefst 7. marz.
% FERÐASKRIFSTOFA