Tíminn - 09.03.1975, Blaðsíða 28
28
TÍMINN
Sunnudagur 9. marz 1975
með ungu fólki með ungu fólki með ungu
Maðurinn
oa vélin
Jón Jensson,
nemandi Vogaskóla
með nemendum
Handíða-
og myndlistarskólan
VIÐ „Timamenn” lögðum leið okkar i Hand-
iða- og myndlistarskólann við Skipholt i þeim
tilgangi að kynna okkur starfsemi hans. í skól-
anum hittum við Gisla B. Björnsson, skóla-
stjóra að máli og hann kynnti fyrir okkur starf
skólans i grófum dráttum. Gekk hann með okk-
ur um skólann og sýndi okkur hinar ýmsu hlið-
ar á starfseminni. Meðal annars litum við inn i
vefnaðardeild, keramikdeild og textildeild.
t þessu „ferðalagi” um skól-
ann kynnti Gisli okkur fyrir
þremur ungum mönnum, Sverri
Ölafssyni, Birgi Ingólfssyni og
Hauki Haraldssyni, — en þeir
eru nemendur skólans og er
þetta annar vetur þeirra þar.
Tilefni þess, að Gisli kynnti okk-
ur fyrir þessum mönnum var
það, að þeir voru að byrja að
vinna verkefni, sem kallað var
„Umhverfisteiknun”. Náminu
er skipt i mismunandi langar
annir og áðurnefnt verkefni er
eitt slíkra anna i náminu.
Strákarnir áttu að finna sér
verkefni úr umhverfinu, eins og
nafnið bendir til, og mátti hver
nemandi velja sér það sem hann
óskaði sjálfur.
Fyrirkomulagið var þannig,
að þrir eða fjórir nemendur fóru
saman eitthvað út i bæ og leit-
uðu að verkefni. Þó er rétt að
geta ess, að kennari þeirra hafði
borið fram ýmsar tillögur um
verkefnaval, sem þeir voru þó á
engan hátt bundnir af. Meðal
annars kom fram I tillögum
kennarans eftirfarandi verk-
efni: Eldsmiðja, bilaverkstæði,
bilakirkjugarður, lögregla,
slökkvilið, landsmiðja.
begar nemendur höfðu fundið
verkefni við sitt hæfi, skrifuðu
þeir greinargerð um það og
lögðu fyrir kennarann, auk þess
sem þeir ræddu það sin á milli.
Eftir umræður héldu nemendur
á þá staði, sem til greina höfðu
komið og átti hver nemandi að
skila tiu skissum eða teikning-
um úr þvi verkefni, sem endan-
lega varð fyrir valinu.
Þegar þeim þætti verkefnisins
var lokið var farið upp i skóla og
var þá komið að útfærslu hug-
myndarinnar. Kom þar margt
til álita, gátu nemendur unnið
myndirnar hvort sem þeir vildu
i formi málverka, veggmynda,
bókaskreytinga, myndasögu og
sitthvað fleira.
Við slógumst i för með Sverri,
Birgi og Hauki, til þess að fylgj-
ast með og sjá hvernig þeim
farnaðist að leysa verkefnið og
á hvern hátt það væri unnið.
Þeir höfðu ekki endanlega
ákveðið hvaða starfsvettvang
þeir ætluðu að vinna þetta verk-
efni upp úr, þegar við fórum
með þeim. Kom þó tvennt til
greina, annars vegar Alþingi og
hins vegar Stálsmiðjan.
Lögðum við fyrst leið okkar
niður i Alþingi, — en þar fundu
þeir ekkert áhugavert verkefni.
Þegar þeir voru spurðir að þvi
hvers vegna i ósköpunum þeir
fyndu ekki skemmtilegt verk-
efni á Alþingi, svöruðu þeir þvl
til, og bentu okkur á, að þing-
bekkir væru harla þunnskipaðir
og þeir fáu þingmenn sem bekk-
ina sætu gerðu sér það helzt til
dundurs að skafa neglurnar
meðan Geir Hallgrlmsson
forsætisráðherra talaði.
Eftir skamma viödvöl I
alþingishúsinu og árangurs-
lausa ferð að þeirra dómi var
haldið sem leið liggur niður I
Stálsmiðjuna við Brunnstig. Og
þar kom annað hljóð i strokk
þremenninganna.
Þeir voru strax mjög hrifnir
af staðnum og ekki leið löng
stund, þar til þeir höfðu allir
fundið verkefni við sitt hæfi, — i
öllum þeim aragrúa vinnuvéla
og tækja sem þar voru.
Til þess að gefa lesendum
Timans smámynd af þvi, hvern-
ig strákarnir vinna að verkefn-
um sinum skulum við aðeins
fylgjast með Sverri við vinnu
sina, en hann nefnir verkefni
sitt: Maðurinn og vélin. 1 mynd-
um sinum ætlar hann að reyna
að sýna „hlutfallið milli stóru
vélanna og litla mannsins, sem
vinnur við þær” eins og hann
orðaði það.
Sverrir sagðist ekki gera ná-
kvæmar frummyndir af þvi sem
hann teiknaði, heldur kappkosta
þess i stað, að ná hlutföllum
réttum. Hann vann verkefnið
þannig, að hann teiknaði stóra
mynd af ákveðnum hlut, sem
hann hafði valið sér, — hafði
hlutinn á miðbiki blaðsins og
fyllti siðan upp i eyðurnar á
blaðinu með mörgum smáhlut-
um, senuýmist voru á gólfinu
eða héngu á veggjum.
Haukur vann aftur á móti sitt
verkefni á annan hátt. Hann
teiknaði hlutina minni og teikn-
aði marga á hvert blað. Hann
sagði mér, að siðar er hann
færi að vinna myndirnar I skól-
anum myndi hann raða þessum
mörgú hlutum og mönnum
saman eftir þvi sem verkast
vildi.
Haukur sagðist ekki kalla
myndir sinar neitt sérstakt, en
hann sagði mér að hann myndi
vinna myndirnar endanlega f
túss.
Birgir ætlaði einnig að vinna
myndir sinar I túss, en hann
vann að skissunum á svipaðan
hátt og Sverrir, en lagði þó held-
ur meiri vinnu og nákvæmni i
frumgerð þeirra að þvi er mér
fannst. J.J.
Fyrir nokkru dvöldu tveir nemendur Vogaskóla I starfskynningu á Tlmanum. Annar þessara nemenda
var Jón Jensson og meðai þess sem honum var faiið að vinna, þann tima sem hann var meðal blaða-
manna Timans, var að skrifa um eitt verkefni, sem nemendur I Handlða- og myndlistarskólanum tóku
fyrir. Hér á siðunni birtist grein Jóns og við viljum nota tækifærið og þakka honum fyrir. Jón er hér á
myndinni lengst til hægri, en meö honum eru þrlr nemendur Handlða- og myndlistarskólans, t.f.v. Birg-
ir Ingólfsson, Sverrir ólafsson og Haukur Haraldsson. Tlmamynd: Róbert.
með ungu fólki með ungu fólki með ungu