Tíminn - 29.06.1975, Qupperneq 3
Sunnudagur 29. júní 1975.
TÍMINN
3
ELZTI MÁLARI
LANDSINS SÝNIR
VERK SÍN
Eyjólfur J. Eyfells heldur
yfirlitssýnlngu að
Kjarvalsstöðum.
Elzta myndin er mdluð 1908 — þær yngstu í fyrra
EYJÓLFUR J. EYFELLS list-
málari hefur opnað málverka-
sýningu að Kjarvalsstöðum, en
Eyjólfur er á nitugasta aldursári,
en hann er fæddur 6. júnf 1886 i
Seljalandsseli, Vestur-Eyja-
fjaliahreppi I Rangárvallasýslu.
A yfirlitssýningu þessari sýnir
Eyjólfur 125 myndir, sem málað-
ar eru á ýmsum timum. Sú elzta
er af kirkjunni og kirkjustaðnum i
Gaulverjabæ, en hún er máluð
fyrir 68 árum. Eigandi myndar-
innar er Alfreð Guðmundsson,
forstöðumaður Kjarvalsstaða.
Eyjólfur J. Eyfells bauð blaða-
mönnum upp á kaffi að Kjarvals-
stöðum á föstudaginn. Hann er
við ágæta heilsu og lætur engan
bilbug á sér finna, þrátt fyrir há-
an aldur.
Eyjólfur J. Eyfells þarf ekki að
kynna fyrir Islendingum, en ekki
sakar að rifja upp eftirfarandi:
Eyjólfur J. Eyfells, listmálari,
varð 89 ára 6. júni sl. og i tilefni
þeirra timamóta er haldin yfir-
litssýning sú, er nú gefur að lita i
vesturálmu Kjarvalsstaða.
Eyjólfur var i þrjá vetur i
teikniskóla Stefáns Eirikssonar,
hins oddhaga, i Reykjavik. Hann
var við listmálaranám hjá próf.
E.O. Simonson-Castelli I Dresden
á árunum 1923 og ’24.
Hann hefur haldið fjölda mál-
verkasýninga innan lands og i
Brook Street Gallerie i London
árið 1936.
Þá hefur hann tekið þátt i fjölda
samsýninga, bæði utan lands og
innan.
Hann hefur helgað sig málara-
listinni sl. 60 ár og ætið verið af-
kastamikill við starf sitt og selt
öll verk sín jafnóðum og prýða
þau nú heimili fólks af öllum
þjóðfélagsstéttum um land allt,
enda hefur hann ætið stillt verði
verka sinna m jög i hóf i þvi skyni
að sem flestir ættu þess kost að
njóta þeirra.
Þá munu allmargar af mynd-
um hans vera viðs vegar erlendis.
Eins og fjölmörgum er kunn-
ugt, hlaut hann i vöggugjöf dul-
ræna hæfileika, sem hann lagði
rækt við er hann náði fullorðins-
aldri.
Hann er einlægur spiritisti og
einn þeirra er telur sig muna
glefsur úr fyrri jarðvistum sin-
um.
Hann telur sig i þessari jarðvist
hafa stigið það skref til þroska, að
hafa að fullu getað skilið við þann
leiða löst mannkynsins, ágirnd-
ina.
Hann er ern, sjón og handa-
styrkur i góðu langi, enda fæst
hann enn við að handleika pensla
og fást við liti.
Hann mun elztur núlifandi list-
málara hérlendis.
Sýning Eyjólfs J. Eyfells verð-
ur opin daglega frá kl. 16.00-22.00,
nema um helgar, þá er opið frá
14.00-22.00.
Þá mun verða opið á mánudag-
inn, en sem kunnugt er þá eru
listsýningar á Kjarvalsstöðum
yfirleitt lokaðar á þeim degi.
Sýningunni lýkur 28. júni — JG.
„Hannes Pétursson er
skáld lífsfyllingarínnar"
— sögðu þýzku blöðin, þegar honum voru afhent
Henrik-Steffens verðlaunin í Kíl
SJ—Reykjavik — Nýlega voru
Hannesi Péturssyni skáldi afhent
svonefnd Henrik-Steffens-verð-
laun, 25.000 þýzk mörk, i ráðhús-
inu i Kil I Þýzkalandi. Þessum
verðlaunum er ætlað að stuðla að
viðhaldi menningararfs Evrópu,
skoðanaskiptum milli þjóða.
Verðlaun þessi eru árlega veitt
Norðurlandabúa, sem skarað hef-
ur fram úr i listum, skipulagi
borga eða landslags, þjóðfræðum
eða hugvisindum.
Einnig er árlega veittur 5000
marka námsstyrkur ungum
námsmönnum, og hlaut Árni Ósk-
arsson hann að þessu sinni.
Verðlaunin eru afhent til skiptis
i Kil og Lubeck. Sérstakt ráð
ákveður hver hlýtur verðlaunin,
og er forseti þess dr. Landahl
þingmaður i Hamborg, en auk
hans eiga fulltrúar Norðurlanda-
þjóðanna sæti i ráðinu, og tveir
fulltrúar Kilarháskóla. Vilhjálm-
ur Þ. Gislason er fulltrúi Islands.
I grein i dagblaðinu Kieler
Nachrichten um þennan atburð
er Hannes kallaður skáld lifsfyll-
ingarinnar og ferill hans itarlega
rakinn, jafnframt þvi sem sagt er
frá"afhendingu verðlaunanna. Dr.
Otto Oberholzer sérfræðingur i
Norðurlandamálum, sem á sæti i
verðlaunaráðinu, flutti afhend-
ingarræðu, sem Jón Friðjónsson
lektor við Norrænudeild Kilarhá-
skóla hafði samið. Þá lék strok-
kvartett kammerhljómsveitar-
innar i Kil.
1 blaðagreininni segir, að
Hannes hafi frá upphafi verið
fremstur i flokki skáldbræðra
sinna. „List hans er frábærlega
fjölbreytt að efni og tjáningar-
form hans er i stöðugri breytingu.
I ræðu Jóns Friðjónssonar segir,
að Hannes yrki um gleði og sorg
— meðal verka hans eru einhver
fegurstu ástarljóð 20. aldar, sem
vekja aftur til lifsins þráða liðna
tið. Hann snýst gegn vigbúnaði og
sérhverri litilsvirðingu á fyllingu
hins jarðneska lifs..”
Þegar Hannes tók við verðlaun-
unum sagði hann, að verk sin
væru tilraun til islenzkrar túlkun-
ar á evrópskri nútimahugsun i
ljóðum. Skáldskapur sinn væri
táknrænn fyrir andlega og félags-
lega breytingatima á Islandi,
ihugun og málamiðlun milli borg-
aralegrar menningar og menn-
ingar timanna fyrir iðnbyltingu,
en einnig hlifðist hann ekki við að
mótmæla neikvæðum fyrirbrigð-
um nútimans. An þekkingar á
sérkennum hinnar „sibreytilegu”
náttúru íslands væri ekki hægt að
skilja ljóð sin til neinnar hlitar.
Hanncs Pétursson skáld tekur viö tilkynningu um aö honum hafi verið
veitt Henrik-Steffens verðlaunin 1975 úr hendi dr. Werners Kaltefleiter
varaforseta Christian-Albrechts-háskóIans I KIl.
#( KARNABÆR
hljomtækjadeild
Laugavegi 66 ' Simi 2-81-55
Prentarar
Viljum ráða handsetjara strax
Prentsmiðjan Edda h.f.
Sérfræðileg þekking T.D.K. á segulmagni og seguláhrifum. hafa sett
T.D.K í fremstu röð framleiðanda á segulbandsþræði
Þegar þú hljóðritar uppáhalds hljómlistina þeirra. kemstu fljótt að
raun um að T.D.K. spólurnar hafa: alla háutónana, alla
millitónana, alla lágutónana, allar yfirsveiflur og allt sem skiptir máli
til að ná fullkominni upptöku
Kassettur frá T.D.K. eru til sölu í mörgum útgáfum
DYNAMIC (D)
er góður og ódýr þráður sem er mjög
góður til allra venjulegrar upptöku
SUPER DYNAMIC (SD)
Mjög góður þráður sérstaklega þar sem
gerðar eru kröfur um tóngæði
EXTRA DYNAMIC (ED)
Bezti þráður, sem völ er á. Notist þar sem
kröfur um gæði eru mestar
KRÓM (KR)
Frábær þráður sem notist i tæki gerð fyrir
krómþráð einnig fyrirliggjandi
OTDK
fást í öllum helstu
hljómtækjaverslunum
How to make the sound system you bought
sound like the sound system you bought.
ítTDK
á segulbandsþræði
/SSK
Sjúkrahús a Akureyri
Heildartilboð óskast i frágang á fokheldri
viðbyggingu við Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri
og skrifstofu bæjarverkfræðingsins á
Akureyri gegn skilatryggingu kr. 10.000.-.
Tilboðin verða opnuð 22. júli 1975, kl. 11.00
f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844