Tíminn - 29.06.1975, Qupperneq 12

Tíminn - 29.06.1975, Qupperneq 12
12 TÍMINN Sunnudagur 29. júnl 1975. Orsakir ofnæmis eru enn ófundnar, en vísindamenn hafa náð umtals- verðum árangri í rannsóknum á því. Taka eins blóðsýnis kemur nú i stað 30 inngjafa með sprautu. Enginn er óhultur fyrir ofnæmis- sjúkdómum — fimmti hver maður á Vesturlöndum getur átt von á að fá ofnæmi. Ofnæmisvaldarnir geta verið allt frá frjódufti og dýrahári upp í matvörur og efnaúrgang — og einstöku lyf. Fimmti hver maður fær ofnæmi A háskölasjúkrahúsinu i Uppsölum hefur fundizt ný aðferð til að rannsaka ofnæmis- sjúklinga, svokölluð Rast-aðferð. Þessi aðferð leysir af hölmi um- fangsmikil ofnæmispróf á húö, ásamt allt að 30 mismunandi sprautum i bakið. Nú þarf aðeins að taka eitt blóðsýni úr sjúklingn- um. Reiknað er með að allt að 15% af fólki þurfi einhvern timá að leita læknis vegna ofnæmis. Astma er alvarlegasti ofnæmis- sjúkdómurinn, en ofnæmi er næstum alltaf orsök astma, eink- um meðal barna. Ofnæmi orsakast læknisfræði- lega séð af ólikum ofnæmisvöld- um — efnum i matvöru, lyfjum, ryki eða frjódufti. Þegar þessir ofnæmisvaldar komast i snertingu við mótefnin, sem eru i lungunum, nefinu eöa húðinni, framkalla mótefnin einkenni, sem við köllum ofnæmi. Mótefnin, sem framkalla of- næmið og eru kölluð IgE, eru til í meira mæli en eðlilegt er I likama ofnæmissjúklinga. Þegar sjúklingur leitar læknis vegna astma, exems eða heymæði, hefur til þessa verið reynt að finna ofnæmisvaldinn fyrstog fremst með svonefndum húðprófum. Þau fela i sér að sjúklingurinn fær margar sprautur með mismunandi efn- um, sem hugsanlegt er að hann hafi ofnæmi fyrir. Fjöldi sprautanna er venjulega á milli 20 og 50. Venjulega eru viðbrögö sjúklingsins við ofnæmisvaldin- um reynd með mismunandi sterkum skömmtum af efninu. Þvi minna sem þarf af ofnæmis- valdinum til að framkalla einkenni hjá sjúklingnum, þvi viðkvæmari er hann. Langar biðraðir Þetta veldur þvi að rannsóknin er timafrek. Húðprófin eru ekki aðeins gerð með sprautum, held- ur einnig eins og berklapróf, rispu- eða stungupróf. Að lokum eru oftgerö próf, sem fara þannig fram, að sjúkiingurinn er látinn anda að sér efninu, sem talið er valda ofnæminu. Eftir u.þ.b. hálf- tlma sést árangurinn. En læknir verður að vera viöstaddur allan timann. Meö hlustunartæki er mælt, hve fljótur sjúklingurinn er að anda frá sér. Læknirinn heyrir einnig, hvort aukahljóð eru I lungunum. Ef um heymæði er að ræða, fær sjúklingurinn dropa i nef eða augu til að sjá, hvort þeir valda einkennum. Þegar sjúklingur hefur gengiö i gegnum of- næmisprófið að fullu, getur læknirinn sagt með vissu um hvaöa tegund ofnæmis er að ræöa. Þörfin fyrir ofnæmisrannsóknir er svo mikil, að á stórum sjúkrahúsum i Sviþjóð er margra mánaða biðtími. Sums staðar t.d. i Stokkhólmi geta börn þurft að biða heilt ár eftir ofnæmisprófi. ódýr aðferð Uppgötvun ónæmisefnisins (immunglobulin) E i Uppsölum var þvi mjög mikilvæg. Rast-aðferðin kemur I staö allra ofnæmisprófanna og árang- urinn er 90-100%. Nýja aðferðin er auk þess miklu ódýrari en sú gamla. Gunnar Jóhannsson dósent vann að tilraunum og þróun Rast- aðferðarinnar ásamtLeif Wide og Þannig hafa ofnæmispróf veriö gerö fram til þessa. Efni, sem kunna aö valda ofnæminu hjá sjúklingunum eru sett viö húöina. 1 vissum tilfellum þarf einnig að gera húðpróf og öndunarpróf. Þaðgóða við Rast-aðferðina er m.a. að það hefur ekki áhrif á árangurinn þótt sjúklingurinn fái meðul við ofnæmi. Og hægt er að taka blóðsýni til rannsóknar, þótt sjúklingurinn sé með ofnæmis- einkenni. Hættulaust A háskólasjúkrahúsinu i Uppsölum hafa menn fundið tiu algengustu orsakavaldana. 90% af ofnæmissjúkdómum 'eru af þeirra völdum. Til þess að hjálpa hinum 10% þarf mikinn fjölda of- næmisvalda til viðbótar, kannski 50-100. — Á siðustu árum höfum við komizt að þvi, að Rast-aðferðin gefur góðan árangur. Nú er um að gera að halda áfram að rannsaka þá þætti, sem við eigum eftir, m.a. ofnæmi fyrir fæðutegundum. Rast-aðferðin er alveg hættu- laus. Aftur á móti geta húðprófin haft hættu i för með sér, ef þau eru gerð af öðrum en reyndum læknum. Þau eru nefnilega vand- meöfarin. Hætta er á að sjúkdóm- urinn sé vanmetinn og nægrar ná- kvæmni sé ekki gætt. Ofnæmisvaldarnir, sem fást nú, eru nefnilega breytilegir að gerð. Styrkleikinn getur verið mismun- andi, og getur munað allt að þúsundi. Rast-aðferðina má einnig nota til aö staðla og greina ofnæmis- valdana, sem notaðir eru við húðpróf. Sjúkdómurinn, sem hrjáði Nils Danielsson var einmitt í frumun- um, sem framleiða IgE, en hann var sjálfur ekki með ofnæmi. Arið 1967 höfðu visindamenn I Uppsölum rannsakað nægilega margt fólk til að geta gengið úr skugga um að IgE er i öllum — þótt I mjög litlum mæli sé. IgE er i okkur öllum, ef vera kynni að við fengjum ofnæmi. En hjá ofnæmissjúklingum getur veriö 100 sinnum meira af þvi en eðli- legt er talið. — Það er spennandi að vita, hvers vegna IgE er i likamanum. Þaö hlýtur að hafa öðru skynsam- legra hlutverki að gegna i likamanum, en að valda þvi að fólk geti fengið ofnæmi, segir Gunnar Jóhannsson dósent. Mikið magn af IgE i blóðvatninu, eins og finnst i of- næmissjúklingum, kemur lika fyrir hjá sjúklingum með viss snikjudýrssmit, m.a. i Afriku. Svo virðist sem IgE gegni ein- hverju varnarhlutverki. — Ef við gætum komizt að þvi, hvemig og hvers vegna aðeins þetta IgE mólekúl festist á slim- himnunni og veldur ofnæmi, gæt- um við e.t.v. einnig komið i veg fyrir það. Enn höfum við ekki leyst gátu ofnæmisins. Og við getum ekki læknað ofnæmi, en verið fljótari að greina það og gert það betur, segir Gunnar Johansson dósent. Tizkusjúkdómur Ofnæmi er næstum orðið „tizkusjúkdómur,” segja læknar. Stöðugt fjölgar ofnæmissjúkling- um, og það hlýtur að skrifast á reikning hinna mörgu nýju Gunnar Johansson ásamt aöstoöarkonu. Hann var i hópnum, sem fann Rastaöferöina. Hans Bennich. Lyfjafyrirtækið Pharmacia lauk siðan við rannsóknir á Rast-aðferðinni. Frá þvi 1921 hafa ýmsir reynt að einangra og framleiða i hreinu formi efnið, sem veldur þvi að sjúklingur fær ofnæmi. Lykillinn að gátunni fannst I eggjahvitu- efnunum i blóðinu. Arið 1965 fannst af tilviljun i Uppsölum nýtt onæmisefni, IgE, i blóöi sænsks bónda, Nils Daniels- son. Visindamönnum tókst að framleiða mótefni, og þar meö var grundvöllurinn fyrir að- feröinni fundinn. Rast-aðferðin felst i þvi, að litill bréfmiði, smurður ofnæmisvaldi, er settur i tilraunaglas. Siðan er dropi af blóðvatni (úr blóðsýninu) settur i hvert tilraunaglas. Ef sjúklingurinn hefur IgE- mótefni gegn t.d. hesti, þá festist þaö strax við bréfmiða, sem hafa ofnæmisvald úr hesti á. Notaðir eru yfir 50 bréfmiðar með ofnæmisvöldum. Eitt blóösýni nægir til að prófa þá alla. Sjúklingurinn getur komið og látið taka blóðsýni, og i næsta skipti, sem hann kemur til læknisins, fær hann að vita, fyrir hverju hann hefur ofnæmi.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.