Tíminn - 29.06.1975, Blaðsíða 17

Tíminn - 29.06.1975, Blaðsíða 17
Sunnudagur 29. júni 1975. TÍMINN 17 hvaö við sig I þeim efnum. Safnaðarfulltrúi hef ég verið um áraraðir, og i sýslunefnd hef ég átt sæti siðan 1945. Nú, ef þú vilt að ég haldi þessari upptalningu áfram, þá var ég formaður fjórðungssambands Vestfjarða I fimmtán ár. Mér þótti ákaflega ánægjulegt að vinna að málefnum fjórð- ungssambandsins. Starfsemi þess fór fyrst eingöngu fram á ársfundagrundvelli, sem við héldum annað hvort ár og yfir- leitt I Bjarkarlundi. Tvisvar héldum við þó þessa ársfundi á Rafnseyri, og voru það ánægju- legustu ársfundir fjórðungs- sambandsins, sem ég sat. Kyrrðin f sveitinni hefur alltaf svo góð áhrif á mig. Margt alvarlegra málefna bar auðvitað á góma á þessum ársfundum, en aldrei fór þó svo, að ekki flyti eitthvað gamanefni með. Hagyrðingar snjallir, ekki slzt Hjörtur Hjálmarsson og Magnús frá Ósi, sátu oft þessa íundi, og þá var létt yfir. Á einu fjórðungsþinginu var /erið að ræða um bættar sam- göngur á Vestfjörðum. Séra 3tefán á Þingeyri, sem lengi íefur verið eldheitur baráttu- naður bættra flugsamgangna, nælti af eldlegum áhuga fyrir aessu baráttu- og hugsjónamáli >Inu, en strax að lokinni ræðu íans, fór ég I ræðustól og ræddi ím nauðsyn bættra samgangna i sjó. Ég hafði varla lokið ræðu ninni, þegar Hjörtur varpaði 'ram þessari vísu: Sturlu sýnist I særokið grá að sullast sé ævinnar grín! En Stefán sig heldur við heiðloftið bláa, hærra, minn guð, til þín. — Hefur þú fengizt við kveð- skap sjálfur? — — Tvisvar hef ég gert for- mannavlsur um alla formenn, sem hér hafa verið. Þú getur fengið að heyra brot úr þeim: Nú skal hefja nýjan brag, njótum stáls, sem fýrr um dag. Kveða ljóð um kappamóð, konunga með fiskiþjóð. Alla telja upp nú skal, engum gleyma vil ég hal. Suðureyri sem að frá sigluhaukum stýra ná. Knár Ólafur kappinn þar keyrir Freyju út á rtiar. Sækir djarft um silaból sortinn þó að byrgi hól. slag. Kristján Ibsen kvæðalag kyrjar hátt við ramman Hallvarð stýrir höldur sá hetjulega miðin á. Kristján Bjarna kappinn snar karlmennskuna sýnir þar. Gylli brunar geist um haf gnotri þó I siglutaf. — Hverju viltu spá um fram- tlð Suðureyrar? — — Helzta ósk min er, að þessi staður eignist 1000 Ibúa. Til þess að viö getum talist sjálfstæðir I efnalegum og menningarlegum skilningi. Það má kannski segja, að landrými sé hér lltið, en þó má byggja mörg hús enn. Héðan færi ég aldrei óneyddur, það get ég svarið. Ég hef hingað til látið mér nægja að fara til Reykjavlkur einu sinni á ári og er þá vanalega búinn að fá nóg af staðnum eftir vikuveru. Þar eru vegalengdirnar svo glfur- legar, að maður getur ekkert ferðast, nema þvl aðeins að hafa bll til umráða. Ég á bll, en hann nota ég aldrei, nema ég þurfi að fara eitthvað út úr þorpinu, til Isa- fjarðar og þaðan af lengra. Inn- an þorpsins geng ég alltaf, en hringsóla ekki um götur þorps- ins, eins og svo margir gera. Þetta eru engar vegalengdir og maður hefur ekki nema gott af þvl að ganga. Ég hef sem betur fer reynt að haga minu lifi á heilbrigðan hátt, enda hef ég aldrei þurft á sjúkrahús að fara um dagana. Ég hef eins og aðrir átt þess kost að flytja frá Suðureyri, en eins og ég sagði áðan, þá fer ég aldrei héðan óneyddur, því að lifandi eða dauður vitja ég minna frjálsu fjalla.— SOLUSTAÐIR good/year HJÓLBARÐA Reykjavík: Hjólbarðaþjónusta Heklu h.f./ Lauga- vegi 170—172/ sími 21245 H j ó I ba r ða ver kstæð i Sigurjóns Gíslasonar, Laugavegi 171, sími 15508. Isafjörður: Vélsmiðja Þór h.f., sími 3041. Húnavatnssýsla: Vélaverkst. Víðir, Víðidal Sauðárkrókur: Vélsmiðjan Logi, sími 5165 Ólafsf jörður: Bílaverkstæðið Múla- tindur, sími 62194 Dalvík: Bílaverkstæði Dalvíkur, sími 61122 Akureyri: Hjólbarðaþjónustan, Glerárgötu 34, simi 22840 Bílaverkstæðið Baugur, Norðurgötu 62, sími 22876 Neskaupstaður: Bifreiðaþjónustan Neskaupstað, sími 7447 Egilsstaðir: Þráinn Jónsson, sími 1136. Hornafjörður: Bílaverkstæði Jóns Ágústssonar, sími 8392. Kirkjubæjarklaustur: Steinþór ' Jóhannesson, sími 7025 Hella: Kaupfélagið Þór, sími 5831 Vestmannaeyjar: Hjólbarðastofa Guðna, v/Strandveg, sími 1414 Grindavík: H j ó I ba rða ve r kstæð i Grindavíkur s.f., simi 8397 Kef lavík: Hjólbarðasalan, Skólavegi 16, c/o Hörður Valdimars- son, sími 1426 Hafnarf jörður: Hjólbarðaverkst., Reykjavíkurvegi 56, sími 51538. Garðahreppur: Nýbarðinn Garða- hreppi, sími 50606. ORYGGI I AKSTRI A GOOD$YEAR Fiskiðnaður sunnan og vestan- lands og annar iðnaður norð- an og austanlands P.P. Þorlákshöfn Kristján Friðriksson, iðnrek- andi frá Reykjavlk hélt fund I Bamaskólanum I Þorlákshöfn, sunnudaginn 22. júni 1975. Hann flutti þar framsöguerindi er hann nefndi „Hagkeðjan”, sem fjallaði um nýja stefnu I efnahagsmálum með tilliti til breyttrar stefnu I fiskveiðum og uppbyggingu frek- ari iðnaðar. Hann benti I ræðu sinni á þá gífurlegu hættu, sem smáfiskadrápið fyrir Norður- og Austurlandi hefur I för með sér, þar sem þarna er um að ræða aðaluppeldisstöðvar þorskfiska við landið. 1 tillögum hans kemur fram, að minnka megi fiskveiðiflotann um nær helming, eða niður I um 55.000 smálestir og haga veiðun- um þannig, að aðeins verði leyfð neta- og llnuveiði eða handfæra- veiði fyrir Norður- og Austurlandi fyrir óvemlegan hluta fiskveiði- flotans. A þennan hátt skapaðist aftur eðlileg veiði fyrir Suður- og Vesturlandi, þ.e. fiskurinn yrði veiddur eldri og um leið stærri, en nú er, sem myndi skapa stór- aukna nýtingu og verðmætasköp- un fyrir fiskiðnaðinn I þessum landshlutum. Afkoma fiskiðnaðarins á Suður- og Vesturlandi yrði þvi það góð, að hægt yrði að veita úr honum verulegt fjármagn til uppbygg- ingar nýrra iðnfyrirtækja á Norður- og Austurlandi. Þetta yrði nauðsynlegt, þar sem um töluverðan samdrátt I fiskiðnaði I þessum landsfjórðungum yrði að ræða. Fundarmenn gerðu góðan róm að ræðu Kristjáns, og urðu fjömgar umræður um ýmsa þætti hennar. Samróma álit allra þeirra, sem til máls tóku á fund- inum, var aö róttækra ráðstafana I friðunarmálum væri nú þegar þörf. Lögfræðiskrifstofa okkar að Sölvhólsgötu 4 er flutt i Banka- stræti 7, 3. hæð (Samvinnubankahúsið). Sveinn H. Valdimarsson hrl. Skúli Pálmason hrl. Jón Finnsson hrl. CROWN bílaviðtœki draga afburðavel, en eru þó ódýrari en önnur tœki Verð er sem hér segir: Car 100 kr. 6.000,- Car 200 kr. 8.885,- Car 300 kr. 11.495,- Csc 702 kr. 21.800,- bllaviðtæki stereo, með kassettutæki. Csc 8000 kr. 14.000,- stereo magnari með kassettutæki. Hátalarar á 300.-, 600.-, 1.735.-, 2.500.- kr. Þér gerið afburða kaup I Crown. tsetningar samdægurs. Viðgerðáþjónusta á eigin verkstæöi. B U Ð I N Sóiheimum 35, simi 33550. Skipholti 19, sími 23800. Klapparstig 26, slmi 19800.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.