Tíminn - 29.06.1975, Blaðsíða 26

Tíminn - 29.06.1975, Blaðsíða 26
26 TÍMINN Sunnudagur 29. júnl 1975. SKORAÐ HAT-TRICK" óskadraumur allra knattspyrnumanna er aö skora //hat-trick", eða þrjú mörk í leik. Það er afar sjaldan, sem þessi draumur rætist hjá knattspyrnumönnum — um heim allan. Sérstaklega í meistarakeppnum landa, þar sem baráttan er mjög mikil, enda meistara- titilinn íhúfi. Hériá Islandi hefur40 leikmönnum tekizt að skora „hat-trick" i leik — sumir oftar en einu sinni, og er þá aðeins 1. deildarkeppnin tekin með í dæmið. Deildarskipting var samþykkt á Islandi 1955. Þrír leik- menn skoruðu „hat-trick" fyrsta árið, sem 1. deildar- keppninni var komið á, það voru þeir Hörður Felixson úr KR, Skagamaðurinn Þórður Þórðarson, sem skoraði þá 4 mörk í leik og Gissur Gissurarson úr Víking. HERMANN GUNNARSSON úr Val hefur oftast skorað „hat- trick” eða alls 8 sinnum. Her- mann, sem skoraði sitt fyrsta deildarrhark gegn Akureyri 1963, skoraði fyrst „hat-trick” 1964 i leik gegn Fram, en i þeim leik skoraði Helgi Númason úr Fram einnig „hat-trick”. Leikn- um lauk með sigri Vals 7:3 og skoraði Hermann fjögur af mörk- um Vals, en Helgi skoraði öll mörk Fram. ÞÓRÓLFUR BECKúr KR hef- ur skorað 7 sinnum „hat-trick” á sinum litrika knattspyrnuferli — fyrst gegn Hafnarfirði 1958. Alls hafa 40 leikmenn skorað „Hat-trick” i 1. deildarkeppninni. KR-ingurinn Hörður Felixson varð fyrstur til að skora „hat- trick” 1955 gegn Viking, en hinn ungi Valsmaður Guðmundur Björnsson skoraði siðast „hat- trick” — gegn FH-liðinu á dögun- um, eins og menn muna. En nú skulum við lita á lístann yfir þá leikmenn sem hafa skorað „hat- trick” i leik — innan sviga er, hvað oft þeir hafa unnið það af- rek: Hermann Gunnarsson, Val- IBA..........................(9) Þórólfur Beck, KR ...........(7) Þórður Þórðarsson, Akranesi. (4) Steingrímur Björnsson, Akur eyri.........................(4) Ingvar Ellasson, Val/Akra nesi.........................(4) Baldvin Baldvinss., Fram/KR (3) Eyleifur Hafsteinss. Akran./KR.... ...............(3) Ingi Björn Albertsson, Val .... (3) Rikharður Jónsson, Akranesi . (2) Gunnar Felexson, KR..........(2) Ellert B. Schram, KR.........(2) Helgi Númason, Fram..........(2) Matthias Ilallgrimss., Akra nesi.........................(2) Tómas Pálsson, Vestm.ey ....(2) Haraldur Júliusson, Vestm.ey (2) Oðrum leikmönnum hefur einu sinnitekizt að skora „Hat-trick” i HERMANN GUNNARSSON..........hefur skorað 78 mörk I 1. deildar- keppninni. Hann hefur einnig oftast skorað „hat-trick”, eða 8 sinnum. leik, en þeir eru: Hörður Felix- son, KR, Gissur Gissurarson, Vikingi, Gunnar Gunnarsson, Val, Matthias Hjartarson, Val, Björgvin Arnason, Fram, Skúli Skúlason, Keflavik, Sveinn Jóns- son, KR, Grétar Sigurðsson, Fram, Þórður Jónsson, Akranesi,’ Bergsteinn Magnússon, Val, Jón Jóhannsson, Keflavik, Einar Magnússon, Keflavik, Karl Ilermannsson, Keflavik, Skúli Agústsson, Akureyri, Kári Arna- son, Akureyri, ólafur Júliusson, Keflavik, örn óskarsson, Vest- mannaeyjum, Marteinn Geirs- son, Fram, óskar Valtýsson, Vestmannaeyjum, Steinar Jóhannsson, Keflavik, Kristinn Jörundsson, Fram , Ey jólfur Agústsson, Akureyri, Hafliði Pétursson, Vikingi, Teitur Þórðarson, Akranesi og Guðmundur Þorbjörnsson, Val. ÞÓRÓLFUR BECK. MARKAKONGAR Á SKOTSKÓNUM: TEITUR HEFUR SKORAÐ FLEST MÖRK í LEIK Landsliðsmaðurinn marksækni frá Akranesi, TEITUR ÞÓRÐARSON, hefur skorað flest mörk I 1. deildarkeppninni f leik, eða samtals 6 mörk. Þetta átti sér stað upp á Akranesi 1973, þegar Akranes vann stórsigur (10:1) yfir Breiðablik. Tveir leikmenn hafa skorað 5 mörk I leik, þeir Gunnar Gunnarsson úr Val og KR-ingurinn, Þórólfur Beck. TEITUR ÞÓRÐARSSON......hefur skorað 6 mörk I 1. deildarleik. Gunnar skoraði 5 m örk I leik gegn Akureyri 1957 og Þórólfur skoraði einnig 5 mörk gegn Akureyri — 1961. Niu leikmenn hafa skorað 4 mörk I leik, en enginn eins oft og Skagamaðurinn Þórður Þórðar- son (faðir Teits) sem hefur skorað þrisvar sinnum 4 mörk I leik. Eftirtaldir leikmenn hafa skorað flest mörk i leik f 1. deildarkeppninni frá upphafi (1955): Teitur Þórðars., Akranesi....6 Gunnar Gunnarsson, Val.......5 Þórólfur Beck, KR ...........5 Þórður Þórðarsson, Akranesi ... 4 Steingrímur Björnss. Akureyri .4 Ellert B. Schram, KR..........4 Grétar Sigurðsson, Fram......4 Óskar Valtýrsson, Vestm.ey .... 4 Hermann Gunnarsson, Val......4 Skúli Ágústsson, Akureyri....4 Haraldur Júllusson, Vestm.ey ..4 Gunnar Feltxson, KR ..........4 Hermann Gunnarsson hefur tvisvar sinnum skorað 4 mörk i leik — 1964 gegn Fram og þegar hann lék með Akureyringum 1970. Þá skoraði hann 4 mörk gegn Vikingi. ÞEIR HAFA

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.