Tíminn - 29.06.1975, Page 35
TÍMINN
Sunnudagur 29. júni 1975.
35
lægi ekki hvolpurinn grafinn og
meginástæöan fyrir þeirri andúð
sem bú hefur á bók minni. En
áður en ég geng til næsta atriöis,
vil ég láta þig vita, það, að i
bindinu sem nú er að koma út,
segi ég nokkuð ýtarlega frá aftur-
hvarfi Guðmundar Jónssonar,
sem sést i bréfi þinu, að þú
virðir mikið, eins og allir menr
aörir, sem honum kynntust. Ég
hygg að þú munir lesa þann kafla
með nokkurri athygli. Einnig ætla
ég að fleiri kaflar kunni að vekja
þér forvitni, þvi þar er farið um
byggðir, sem við þekkjum báðir,
og staldrað við sumsstaðar.
XX
bá þykist ég skilja á bréfi þinu,
aö þú sért óánægður yfir þvi, að
ég geri ekki hlut fólks þins, sem
er fólk okkar beggja að hluta,
nógu mikinn i frásögu minni. Ég
þakka Guði fyrir fólk okkar, sem
var gott og traust.
Fór það fram hjá þér, að einn af
þeim sem skrifaði mjög vel um
bók mina, þeir voru raunar þrir
sem gerðu það, og allir þjóð-
þekktir menn, hafði sérstaklega
orö á þvi, hve vel ég lýsti mömmu
þinni? Þú hefur hins vegar hitt
naglann rækilega á höfuðið:
„Frændur eru frændum verstir”.
Heyrðu, ertu ekki ofurlitið stoltur
af þvi að hafa svona góða smiðs-
gáfu, að hitta naglhausinn svo
hressilega? Margt fallegt, og allt
satt sagði ég lika um pabba þinn,
þann ágæta mann. En við erum
allir menn, en engir englar.
Kannski er það einnig hér, sem þú
ert næmari en aðrir menn. Þá
verð ég aö segja eins og er, að ég
er að komast i vandræði með þig,
þvl að ekki fer ég að gera fólk
okkar að neinum dýrlingum, sem
svifa um einhvers staðar uppi i
hinu bláa.
Ekki hafðir þú gengið langt
ævibraut þina, þegar menn i
Fljótum, fjalla á millþvissu, að þú
varst kominn af ættum Grims
græðara á Espihóli og viðar I
Eyjafiröi. Þarna hefur þú
vinninginn fram yfir mig, þvi að
þeim ágæta manni er ég ekki
skyldur. Grimur var mætur
maöur. Ég ætla að mamma þin
hafi farið á kostum ættar þeirrar.
En enda þótt ættin sé góð, er ekki
þar með sagt að allir einstakling-
ar hennar séu jafngóðir. Inn i
spiliö kemur nefnilega stundum
þetta „ættanna kynlega bland”,
sem hann Kristmundur Bjarna-
son fer svo fræðilega og skemmti-
lega með I bókinni Jón Ósmann.
Hafir þú ekki lesið bókina, ættir
þú að gera það. Höfundur talar
þar um mikla menn með glæsi-
legum mannkostum. En svo
koma grönnu þræðirnir allt i einu
fram eins og skollinn úr sauðar-
leggnum. Þess vegna ber okkur
að fara hægt i það, að hefja fólk
okkar til skýjanna, þvi ólukkans
bláþráðurinn getur verið á næsta
strái. Mér virtist stundum, sem
þú hef ðir ekkert haft á móti þvi að
likjast þessum afa þinum, og það
getégskilið. Falleg setning finnst
um Grim græöara i bréfabók
landlæknis (1791). Hún er svona:
„Þeim fátæku gegnir hann upp á
kærleikans vegna fyrir alls ekk-
ert, en hinum betur megandi fyrir
viöurkvæmilegan betaling eftir
kringumstæðum.” Falleg
setning.
Þegar ég nú stilli ykkur báðum
hlið við hlið, manni gamla
timans, hvers bein eru að fúna I
jöröinni, og þér sem gengur enn
hnarrreistur um þessa jörð og llt-
ur ekki svo lágt að sinna beiðni
fátækrar ekkju., þá finnst mér
gamli maðurinn með fúnu beinin
eiga vinninginn.
Ó, þú „ættanna kynlega bland”,
hversu oft stendur þú ekki sem
dómari við veginn og vilt kenna
okkur mannanna börnum að
ganga auðmjúk um jörð vora.
Með beztu kveðju
Kröflunefnd
óskar eftir að ráða staðarverkfræðing til
þess að hafa umsjón með virkjunarfram-
kvæmdum við Kröflu. Starfið felur að auki
með sér margs konar eftirlits- og trún-
aðarstörf fyrir Kröflunefnd.
Starfstimi er áætlaður fram til loka virkj-
unarframkvæmda.
Æskilegt er að væntanlegir umsækjendur
séu byggingarverkfræðingar eða bygg-
ingartæknifræðingar með starfsreynslu
við hliðstæðar stórframkvæmdir.
Umsóknir um starfið með upplýsingum
um fyrri störf og menntun skulu sendast
til formanns nefndarinnar, Jóns G. Sól-
nes, P.O. Box 5, Akureyri fyrir 15. júli n.k.
Frekari upplýsingar veitir Páll Lúðviks-
son, Álfheimum 25, Reykjavik, simi 37070.
Kröflunefnd
óskar eftir að ráða yfirverkfræðing til
starfa við undirbúning og framkvæmdir
við Kröfluvirkjun.
Starfinu fylgir m.a. eftirlit með smiði véla
og tækja fyrir virkjunina og yfirumsjón
með uppsetningu, einkum vélbúnaðar. Þá
er yfirverkfræðingnum ætlað að fylgjast
með og vera tengiliður Kröflunefndar við
aðra framkvæmdaaðila við virkjunina.
Starfinu munu fylgja mikil ferðalög bæði
utan lands sem innan.
Starfið er laust til umsóknar strax, og er
ráðningartimi óákveðinn.
Umsóknir um starfið, með upplýsingum
um ævi- og starfsferil, skulu sendast til
formanns nefndarinnar, Jóns G. Sólnes,
P.O. Box 5, Akureyri fyrir 1. ágúst n.k.
Æskilegt er að væntanlegir umsækjendur
búi yfir starfsreynslu, góðum stjórnunar-
hæfileikum og málakunnáttu.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Páll
Lúðviksson, Álfheimum 25, Reykjavik,
simi 37070. •
Rauðblesóttur hestur
tapaðist úr girðingu i Mosfellssveit. Leitar
að öllum likindum austur i Árnes- eða
Rangárvallasýslu.
Einkenni: hvitur blettur á baki fram við
herðakamb. Aldur 20 vetra. Járnaður.
Finnandi vinsamlegast hringið i sima
7-15-50.
Skipholti 35 • Símar:
8-13-50 verzlun • 8-13-51 verkstæði • 8-13-52 skrifstofa
i (
Rafgeymar
í miklu úrvali
y- iilossk—
Skipholti 35 Simar:
8-13-50 verzlun «13 Sl verltsteói 8 13 52 sknlstola
N f
Höggdeyfar
í flestar
gerðir
bifreiða
frá Japan
og Evrópulöndum
»L€)SSB-------------
Skipholti 35 • Simar:
8-13-50 verzlun - t-13-SI verkstcói • 8-13-52 skrífstofa
Viðgerðir
á rafmagns- og
diesel-kerf um
111.
Tki
íOssi;
Skipholti 35 - Simar:
8-13-50 verzlun • 8-13-51 verkstæði • 8-13-52 skrífstofa
Oliu- og
loftsiur
i flestar
tegundir
bif reiða
og vinnu
véla
IIIjOSSIp •
Skipholti 35 Simar
_____ n 11 (i A. a 11 O iliri klnlA I
Kveikjuhlutir
i flestar tegundir
bíla og vinnuvéla
HLOSSlf
Skipholti 35 Simar
8 13 50 verzlun 8 13 51 verkstæði 8 13 52 skrifstofa
........................................................................................................................................................................................... 1
Margar gerðir mæla
í bifreiðir, báta
og vinnuvélar
L
13LOSSK
Skipholti 35 Simar.
Iverrlun 8 lj 51 verkstfði 8 13 52 skrifsto
j
Útvörp
Segulbönd
Loftnet
Hátalarar
HLOSSLI--------------
Skipholti 35 Simar:
8 13 50 verzlun 8 13 51 verkstæði 8-13-52 skrifstofa
Permobel
Blöndum
bílalökk
Skipholti 35 Simar:
50 verzlun 8-13-51 verkstæði 8-13-52 skrifstota
*
Loclcneea
Hemlahlutir i flestar
gerðir bifreiða frá
Japan og Evrópulöndum
33 laCl S SI ?
Stýrisendar í brezkar
vöru- og fólksbifreiðar
og dráttarvélar
HLOSSI?
Skipholti 15 r - -
3 ve» rlun 8 13 51 i