Tíminn - 29.06.1975, Page 40
Sunnudagur 29. júni 1975.
Nútíma búskapur þarfnast
BAlfER
haugsugu
Guöbjörn
Guöjónsson
SÍS-FÓDUU
SUNDAHÖFN
GBÐI
fyrirgóóan mat
$ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
SÆMILEGT ÚTLIT
í y JÚRISAAA"
Á AKUREYRI
ASK-Akureyri. „Það er nokkuð
mikið um afpantanir og að ferða-
skrifstofur geti ekki staöið við að
fylla upp i pantanir” sagði Arn-
finnur Arnfinnsson hótelstjóri á
Varðborg í viðtali viðblaðið i gær.
„Hitt er svo aftur annað mál að
IOGT getur ekki boðið uppá sömu
þjónustuog önnur hótel, þjónustu
er íslendingar meta mikils.”
Þa® kom fram að nýting á
Varðborg var i vetur 40—50% og
sagði Arnfinnur að i þeim hópi
væri minna um Islendinga en oft
áður. í sumar bjóst hann við
sæmilegri nýtingu og þar hjálpaði
mikið framtak Flugleiða við að
lengja ferðamannatimann, en
hingað norður hafa komið hópar á
vegum félagsins.
Ragnar Ragnarsson hótelstjóri
á Hótel KEA sagði að þangað leit-
aði yfirleitt sama fólkið, en litið
væri um að ferðamannahópar
gistu þar. Þá bjóst Ragnar við
svipuðum ferðamannastraum
norður á land og undanfarið nema
hvaö Vestmannaeyjar drægju
eitthvað til sín af ferðamönnum
sem annars hefðu farið norður.
Á Akureyri verður lítið um ráð-
stefnur eða fundahöld. A Hótel
KEA verður iðnstefna i lok ágúst,
en Hótel Varðborg hefur engin
fundarhöld bókuð. Hinsvegar
vildi Arnfinnur benda á mögu-
leika þá er Borgarbió hefur uppá
að bjóða, en kvikmyndahúsið er i
tengslum við hótelið.
A Akureyri verður hótelrými i
sumar fyrir um 300 manns i um
það bil 150 herbergjum.
300 rúmmetrum af jarðvegi
mokað út úr frystiklefa hjá
Kaupfélagi-N-Þingeyinga
ASK-Kópaskeri. Raki og léleg
einangrun undir gólfi eins af
frystiklefum K.N.Þ. olli því að
frost komst i jarðveginn undir
frystiklefanum og lyftist gólfið
um allt að 20 cm. Siðan i janúar
hefur verið unnið við að brjóta
það upp og hefur nú allt að 300
rúmmetrum verið mokað út til að
ná fyrir frostið. Þá er og stöðugt
dælt heitu lofti um klefann sem er
400 fermetrar.
Að sögn Kristjáns Ármanns-
sonar kaupfélagsstjóra hefur um
það bil 3 milljónum verið eytt i
verkið, en allsendis óvist sé um
heildarkostnað.
Vonir standa til að frystiklefinn
verði tilbúinn fyrir sláturtið,
vandræðaástand getur skapast
veröi klefinn ekki til, en þarna er
um að ræða stærsta frystiklefann
af þremur hjá Sláturhúsi K.N.Þ.
Hætta blöðin að koma út?
FB-Reykjavik. Fundur með
samninganefndum Blaðamanna-
félagsins og blaðaútgefenda hófst
hjá sáttasemjara kl. 14 á föstu-
daginn og lauk klukkan rúmlega
niu á laugardagsmorgun, án
samkomulags. Blaðamenn hafa
fengið bréf þess efnis frá útgef-
endum dagblaðanna, að ekki
verði greitt kaup 1. júli, en sam-
kvæmt samningum eiga blaða-
menn að fá fyrirfram greitt kaup.
Hyggjast útgefendur ekki greiða
kaupið af ótta við yfirvofandi
verkfall, en með allsherjar at-
kvæðagreiðslu i Blaðamanna-
félagi íslands var veitt heimild til
handa stjórn og trúnaðarmanna-
ráði um að boða verkfall ef talið
yrði nauðsynlegt, til þess að
knýja fram kjarabætur. Ef blaða-
menn fá ekki greitt kaup er lik-
legt, að þeir leggi niður vinnu, þar
sem hér er um brot á samningum
að ræða, og þá koma blöðin ekki
út. Sáttasemjari hefur ekki boðað
deiluaðila til fundar á ný.
NÝIR ÍBÚAR í SÆDÝRASAFNIÐ:
Ársgamlir simpansar
frá Afríku,pelikanar,
snæuglur og páfagaukar
gébé Rvik — Sædýrasafnið I
Hafnarfirði hefur fengið nýja
meðlimi, eru það evrópskir
hvitir pelikanar, ara-páfagauk-
ar, snæugiur og siðast en ekki
sizt, tveir ársgamlir simpansa-
apar. Dýrin höfðu aðeins verið
um tvo daga i safninu þegar
blm. og Ijósmyndara Timans
bar aö garði, og voru ekki enn
búin að jafna sig að fullu eftir
ferðalagið, en öli komu dýrin
með flugvél frá Kaupmanna-
höfn.
Pelikana-parið eru fallegir
fuglar, hvitir og hnarreistir.
Þeir eru fullvaxnir, en ekki voru
þeir búnir að jafna sig eftir ferð-
ina og litið farnir að borða enn,
að sögn Jóns Gunnarssonar.
Það var Ritfangaverzlunin
Penninn i Reykjavik, sem hefur
Pelican-umboðið á íslandi, sem
gaf þetta par og kostaði það sex-
tiu þúsund krónur.
Þá var keypt snæuglupar og
einnig 2 stórir páfagaukar frá
dýragarðinum I Kaupmanna-
höfn.fyrirfé sem safnaz hefur i
söfnunartunnu, sem undanfarin
ár hefur verið i Sædýrasafninu.
Snæuglurnar eru tveggja ára.
Dýragarðurinn i K.höfn. hefur
átt gamalt snæuglupar, sem
upprunalega var veitt á Græn-
landi. Frá þessu pari hafa kom-
ið 2-3 ungar á ári, sem dreifzt
hafa meðaldýragarða I Evrópu,
og snæuglur þær, sem Sædýra-
safnið fékk nú, eru afkvæmi
þessa gamla pars.
Páfagaukarnir tveir, eru upp-
runnir i frumskógum Suður-
Ameriku, en hafa verið i dýra-
garðinum i Khöfn i nokkra mán-
uði. Anar páfagaukurinn er svo-
kallaður ljósrauður ari en hinn
er blá-rauður ari.
Gömlu simpansa-aparnir,
sem voru I Sædýrasafninu, voru
fluttir þaðan fyrir nokkru. Þeir
voru orðnir 10 ára og heldur
skapstyggir og latir og þvi varla
nógu skemmtilegir fyrir gesti
safnsins. Þessir nýju apar, sem
nú eru komnir, eru einnig
simpansa-apar, aðeins um árs-
gamlir og fjörugir mjög. Þeir
voru veiddir i frumskógum Mið-
Afriku aðeins um 5-6 mánaða
gamlir, en hafa verið i sóttkvi i
dýragarðinum i Kaupmanna-
höfn undanfarna 6 mánuði.
Þetta litla apa-par borðar að
mestu ávexti og grænmeti. Það
hefur verið skirt Fix og Trix.
Apa-stelpan, Fix, er litið eitt
minni en Trix, en Trix passar
hana vel fyrir öllum, sem vilja
klappa henni. Aparnir eru ekki
búnir að venjast þvi að láta
góna á sig allan daginn og eru i
óða önn að kynna sér hin nýju
heimkynni sin, en þeir eru með
afbrigðum forvitnir.
I hóp dýranna i Sædýrasafn-
inu, hafa einnig bætzt átta litlir
yrðlingar, sem nú eru um átta
vikna gamlir. Móðir þeirra, átti
sex yrðlinga í fyrra, en hún gaut
þá i fyrsta skipti.
Fjöldi gesta heimsækir Sæ-
dýrasafnið, og er yngsta kyn-
slóðin þar i meirihluta. Mestur
fjöldi kemur um helgar og sagði
Jón Gunnarsson, að þá kæmu
aldrei undir l.OOOmanns. Nú eru
Pclikanarnir eru hinir mynd-
ariegustu, en ekki voru þeir
búnir að jafna sig eftir flug-
ferðina frá Kaupmannahöfn,
og syntu eirðarlaust um og
höföu litla lyst á loðnunni sem
þeim stóð til boða.
Apa-stelpan Fix horfir hug-
fangin á Ijósmyndarann, en
vinur hennar Trix virðist ekki
kæra sig mikið um hann.
Timamyndir: Gunnar.
sex ár liðin siðan safniö tók til
starfa, og i dag starfa þar fimm
fastráðnir starfsmenn, en fleira
fólk er á sumrin og þá sérstak-
lega um helgar.
Á s.l. ári fékk Sædýrasafnið
l,6millj. kr. f rekstrarstyrk, 1,3
millj. kr. i fjárfestingarstyrk og
7,4 millj. kr. komu inn á árinu i
aögangseyri. Þá má og geta
þess, að húsin fyrir dýrin eru
mjög fjárfrek og kostaði t.d. Is-
bjarnarmannvirkið 11 millj. kr.,
en laun til starfsmanna voru 5,9
millj. kr. á sl. ári.
Augnaráð snæuglanna er
hvasst, og lítið voru þær hrifn-
ar af komu Ijósmyndarans inn
i búrið.
t