Fréttablaðið - 11.04.2005, Page 11
MÁNUDAGUR 11. apríl 2005 11
BJÖRGUNARSVEITARMENN VIÐ EGILSSTAÐAKIRKJU
Um 250 björgunarsveitarmenn úr 56 björgunarsveitum voru á landsæfingu Slysavarnarfé-
lagsins Landsbjargar sem fram fór á Austurlandi um helgina. Sett voru á svið einföld leit-
arverkefni, flókin fjallabjörgunarverkefni, stórslys, flugslys, rútuslys og sjóverkefni.
ÖRYGGISLEYSI Vegna bilunar í síma-
línu var ekki hægt að afgreiða bens-
ín eða díselolíu á Vopnafirði frá
morgni síðastliðins miðvikudags og
fram eftir degi. Aðeins er hægt að
kaupa eldsneyti á Vopnafirði í sjálf-
sala og ef hann bilar er ekki hægt að
kaupa eldsneyti í byggðarlaginu en
Vopnafjarðarhreppur telur á átt-
unda hundrað íbúa.
Gunnar Þór Sigbjörnsson, þjón-
ustustjóri Símans á Austurlandi,
segir að notkun sjálfssalans sé háð
ISDN tengingu. „Tengingin bilaði
umræddan dag en komst í lag aftur
samdægurs,“ segir Gunnar.
Dæmi eru um að Vopnfirðingar
hafi lent í vandkvæðum vegna
þessa og einn íbúi þurfti að dæla
bensíni af vélsleða sínum til að
komast í flug frá Egilsstöðum.
kk
Eldsneytissala á Vopnafirði:
Lokað vegna símabilunar
SJÁLFSALINN Á VOPNAFIRÐI
Í nokkrum byggðarlögum á landinu hafa olíufélögin lokað hefð-
bundnum bensínstöðvum og sett upp sjálfsala í þeirra stað.