Fréttablaðið - 20.05.2005, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
SLYS „Þetta var hræðileg lífs-
reynsla,“ segir Berglind Ágústs-
dóttir en hundtík hennar stökk ofan
í hver og drapst á Flúðum í síðustu
viku. Eiginmaður Berglindar varð
svo fyrir annars stigs bruna á fæti
þegar hann sótti dýrið í hverinn.
Berglind segir svo frá að hún
hafi farið ríðandi fram hjá skurði
sem hún telur að sé um hálfur
metri á breidd og svipaður að dýpt
en nokkuð langur og liggi meðfram
gróðurhúsi. Tíkin var í fylgd með
henni en svo heyrði Berglind ein-
hver hljóð og læti svo hún stað-
næmdist og kallaði á tíkina sem lét
ekki á sér bera. Fór hún þá að leita
og kom að hundinum dauðum í
sjóðandi vatni í skurðinum.
Tíkin var írskur setter og var
kölluð Kasmír.
Hannibal Kjartansson hitaveitu-
stjóri segir hins vegar að atvikið
hafi átt sér stað á friðlýstu hvera-
svæði og sé það girt af að hluta.
Hundurinn hafi því stokkið í hver
en ekki skurð við gróðurhús.
Kjartan Helgason garðyrkju-
bóndi er eigandi landsins þar sem
atvikið átti sér stað. Hann segir
svæðið ekki afgirt eða merkt en
vegur liggur í gegnum það. Hann
segir að hingað til hafi engum
dulist að þarna væru hættulegir
hverir og því ekki þurft að merkja
það sérstaklega.
Berglind segist ekki hafa hugs-
að sér aðra eftirmála en þá að kom-
ið verði í veg fyrir að svona lagað
geti endurtekið sig. -jse
Fóru inn á verndað hverasvæði:
Fjölskylduhundur
drapst í hver vi› Flú›ir
ALLA HELGINA
Krakka
dagar
Frábær dagskrá
og tilbo› fyrir krakkana
BJARTVIÐRI sunnan og vestan til en
skýjaðra á Norðaustur- og Austurlandi þar
sem búast má við stöku éljum. Hiti 0-12
stig að deginum, mildast suðvestan til.
Næturfrost. VEÐUR 4
FÖSTUDAGUR
Hver verður
Eyvindur
Stormur?
Einar og Óskar
skrifuðu upp-
kast að kvik-
myndahand-
riti fyrir Storm.
FÓLK 42
20. maí 2005 - 132. tölublað – 5. árgangur
Grótta og KR sundrast
Handboltasamstarf
Gróttu og KR hefur
liðið undir lok eftir
að aðalstjórn
Gróttu ákvað að slíta
samstarfinu
í gær. KR mun því
ekki senda meistara-
flokka til keppni
næsta vetur. ÍÞRÓTTIR 26
Ekki tímabært
Það er ótímabært að taka af
skarið um það hvort næsta ál-
ver verður á Norðurlandi eða
Suðurlandi. Raunar er ekki
tímabært að segja neitt um
það hvort stóriðja eigi
yfirhöfuð að rísa á
þessum slóðum.
Þetta segir Birgir
Guðmundsson í
grein í blaðinu í
dag.
UMRÆÐA 20
Slakar á yfir
pottunum
SIGRÍÐUR HARÐARDÓTTIR:
Í MIÐJU BLAÐSINS
● matur ● tilboð
Geimóperu George Lucas l‡kur me›
Revenge of the Sith sem frums‡nd er í
dag. Svarthöf›i stígur fram fullskapa›ur.
MÁTTURINN ER MEÐ SVARTHÖFÐA
▲
BÍÓ 32
VEÐRIÐ Í DAG
▲
SELMA STÓÐ SIG VEL Áhorfendurnir 5000 í íþróttahöllinni í Kænugarði fögnuðu Selmu
innilega. Hún hlaut þó ekki náð fyrir augum þátttakenda í evrópsku símakosningunni.
Selma komst ekki áfram í Evróvisjónkeppninni:
Ni›ursta›an er hlægileg
EVRÓVISJÓN Íslendingar verða
ekki í hópi þeirra þjóða sem taka
þátt í úrslitum Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva ann-
að kvöld. Selma Björnsdóttir
keppti fyrir Íslands hönd í for-
keppni sem var haldin í Kænu-
garði í Úkraínu í gærkvöldi en
var ekki á meðal þeirra tíu
flytjenda sem komust áfram.
„Það er náttúrlega ekki hægt
annað en að hlæja að þessari
niðurstöðu,“ sagði Selma þegar
úrslitin lágu fyrir. „Við erum
hins vegar ótrúlega sátt með
okkar frammistöðu og okkur
gekk mjög vel á sviðinu. Við
gerðum okkar besta og það er
ekkert í þessu ferli sem ég hefði
viljað breyta.“
Selma segir landslagið hafa
breyst í keppninni frá því hún
tók síðast þátt. „Ég kann ekki við
það, þetta er orðinn sirkus og það
að Ísland og Holland komust ekki
áfram er hneyksli.“ ■
● snyrtivörur ● pistill um meðgöngu
föndur tíska heilsa stjörnuspá ferðalög matur tónlist bíó
SJÓ
NV
AR
PS
DA
GS
KR
ÁI
N
20
. m
aí
– 2
6.
ma
í
snotur og snyrtileg
glæsileg & dínamísk
Snyrtivörur
» í miðju blaðsins
Eurovision
» flest sem þú vildir vita
» Herdís Þorgeirsdóttir prófessor
Pistill
» fréttir úr móðurkviði
Heimurinn lagast
ekki af sjálfu sér
HERDÍS ÞORGEIRSDÓTTIR:
▲
Fylgir Fréttablaðinu í dag
STAR WARS EPISODE III
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
ÉT
U
R
Taktu þátt í
Icelandair-leiknum í
verslun Skífunnar!
...skemmtir þér ; )
www.icelandair.is
1.999,-
komin á DVD!
ÍRSKUR SETTER Samskonar hundur drapst
í hver á Flúðum í síðustu viku.
DÓMSMÁL Lilja Sæmundsdóttir,
einhleyp kona sem dómsmála-
ráðuneytið synjaði um að ættleiða
barn frá Kína, kvaðst fyrir Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær hafa
tilnefnt stuðningsfjölskyldu við
sig og barn sitt í því tilfelli að eitt-
hvað kæmi upp á. Þetta hafi hún
gert strax í upphafi
umsóknarferlisins,
en einhleypu fólki
sem sækti um ætt-
leiðingu væri skylt að
gera slíkt. Hún kvaðst
fullkomlega með-
vituð um þá
ábyrgð sem því
fylgi að vera
einhleyp með
barn.
Eins og
fram kom í
Fréttablaðinu í
gær var megin-
ástæða synjun-
ar ráðuneytis-
ins á ættleið-
ingarumsókn
Lilju sú, að hún
væri of þung
miðað við hæð.
Lilja rakti að-
stæður sínar
fyrir dómi í
gær. Fram
kom að hún
hefur stundað
fjölþætt fram-
haldsnám í
kennslu og
s é r k e n n s l u
fyrir fötluð
börn. Þá
kvaðst hún hafa
starfað mikið með börnum, meðal
annars sem stuðningsfjölskylda
átta ára þroskaheftrar stúlku. Nú
væri hún í hálfu starfi við kennslu
í Verkmenntaskólann á Akureyri
og hálfu starfi sem deildarstjóri
hjá Fjölmennt.
Lilja kvaðst vera sérlega
heilsuhraust og aðeins tvisvar
hafa verið frá vinnu vegna veik-
inda á síðastliðnum 10 árum, í
annað skiptið vegna handleggs-
brots og hið síðara vegna flensu.
Hún hefði stundað líkamsþjálfun
undanfarin ár og hugað vel að
mataræði. Hún reykti ekki
og neytti sjaldan áfengis.
Þá rakti Lilja sam-
skipti sín við ættleiðing-
arnefnd og dómsmála-
ráðuneytið, en barna-
verndarnefnd Eyja-
fjarðar hafði talið
hana „sérstaklega
hæfa umfram aðra til
að ættleiða barn,“ eins
og segir í stefnunni.
Ráðuneytið sagði hún
að hefði í ferlinu lagt
áherslu á þyngd hennar
til að byrja með en síðan
aldurinn einnig. Þegar ætt-
leiðingarferlið hófst var
Lilja 45 ára gömul. Fram
kom að ráðuneytið hefði
leitað til ættleiðingarnefnd-
ar, sem aldrei kallaði Lilju
til viðtals, en það hafði
barnaverndarnefnd gert.
Ættleiðingarnefnd kvaðst
ekki geta mælt með sam-
þykki umsóknarinnar. Lilja
sagði ráðuneytið hafa kallað
eftir heilbrigðisvottorði varðandi
hana, þótt slíkt vottorð lægi þegar
fyrir. Þá kvaðst hún hafa þurft
að ganga eftir að fá gögn um
mál sitt bæði frá ættleiðingar-
nefnd og dómsmálaráðuneytinu.
Sjá nánar bls. 2
jss@frettabladid.is
Haf›i gert
rá›stafanir
Kona sem banna› hefur veri› a› ættlei›a segist
vita um ábyrg›ina sem flví fylgi a› vera einhleyp
me› barn. Hún var búin a› útvega stu›ning.
LILJA SÆMUNDSDÓTTIR
Lilja rakti samskipti sín við
ættleiðingarnefnd og
dómsmálaráðuneytið fyrir
dómi í gær. Henni er
meinað að ættleiða barn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA