Fréttablaðið - 20.05.2005, Blaðsíða 23
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 6
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Góðan dag!
Í dag er föstudagur 20. maí,
140. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 3.57 13.24 22.54
AKUREYRI 3.19 13.09 23.02
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Gæðakaffi, heimabakað og plokk-
fiskur í hádeginu.
„Við erum í bakhúsi á Laugavegi 55 þannig
að kaffihúsið hefur hlotið nafnið Bakhúsið.
Þetta er óskaplega kósí kaffihús á tveimur
hæðum,“ segir Magnús Magnússon, sem á
kaffihúsið ásamt eiginkonu sinni, Söndru
Guðmundsdóttur. „Hér verður aðaláherslan
á gott kaffi, brauð og heimabakaðar tertur.
Við ætlum þó að bjóða upp á plokkfisk í há-
deginu út þennan mánuð að minnsta kosti,
það er svona tilraun og ekki síst hugsað fyr-
ir ferðamennina sem vilja gjarnan prófa
eitthvað íslenskt.“
Guðmundur býður upp á Bononi-kaffi
frá Ítalíu sem honum finnst persónulega
besta kaffi í heimi. „Ég fæ þetta kaffi beint
úr brennslu með flugi svo það verður alltaf
ferskt og fínt. Í framtíðinni ætlum við líka
að selja kaffið út, bæði nýmalað og baunirn-
ar.“
Bakhúsið er eitt þeirra húsa sem stendur
til að rífa við Laugaveginn, en Guðmundur
er mikill húsfriðunarmaður. „Við erum búin
að taka þetta allt í gegn, bæði húsið sjálft og
portið, sem er nú hellulagt og með fallegum
blómabeðum og ljósaskreytingum. Ég vil
með þessu framtaki benda á að það er hægt
að gera eitthvað annað en rífa og tæta og
byggja stóra steinkastala.“
Til að byrja með verður Bakhúsið opið
til sex á daginn, en þegar líður á sumarið er
stefnt að lengri opnunartíma. „Aðaláhersl-
an er á kaffið, meðlætið og stemminguna,
en við erum að sjálfsögðu líka með bjór og
léttar vínveitingar.“ ■
Kósí kaffihús í
bakhúsi við Laugaveg
tilbod@frettabladid.is
Klikk klakk-sófar sem er
breytt með einu handtaki í
svefnsófa eru á 25% kynningar-
tilboði í versluninni
Setti sem er til
húsa í Hlíða-
smára 14 í
Kópavogi.
Þeir eru af
gerðunum Max og Matrix og
kosta 29.900 og 24.900 kr.
Mongoose alvöru fjallahjól fyrir
börn á aldrinum þriggja til níu
ára eru á sumartilboði hjá
Fjallahjólabúðinni í Faxafeni 7.
Afslátturinn nemur 15-25% og
1.000 krónu afsláttur er þar
líka af öllum reiðhjólahjálmum.
Háþrýstidælur til að auðvelda
vorverkin eru á 20% afslætti í
Rekstrarvörum á Réttarhálsi 2.
„Svona dælur eru nauðsynlegar
til að þrífa sólpallana, grind-
verkin, húsið, stéttina, hesthús-
ið og önnur gripahús. Sumir
eru svo með eina netta í
bílskúrnum til að þvo bíl-
inn með,“ segir Ásdís af-
greiðslustúlka hjá Rekstr-
arvörum.
Vandaður sumarfatnaður á
börnin er á tilboði í Fífunni á
Bíldshöfða 20. „Þetta eru föt
með merkinu Mini Kids og
kemur frá Danmörku en eru
saumuð í Portúgal þar sem
engin barnaþrælkun er,“ segir
Magnús Ólafsson verslunar-
stjóri. Tilboðið stendur til 23.
maí.
Magnús og fjölskylda í portinu við nýja kaffihúsið á Laugaveginum.
LIGGUR Í LOFTINU
í tilboðum
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA BRÚÐKAUP FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
KRÍLIN
Pabbi!
Hver kemur með
börnin handa
storkinum?!
Girnileg límónubaka
BLS. 3
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
SMÁAUGLÝSINGAR
Á 995 KR.
ÞÚ GETUR PANTAÐ
ÞÆR Á visir.is
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM