Fréttablaðið - 20.05.2005, Blaðsíða 46
34 20. maí 2005 FÖSTUDAGUR
George Lucas réttir heldur betur úr
kútnum með Episode III og lýkur
Stjörnustríðsbálki sínum með
glæsibrag eftir tvær slappar mynd-
ir sem ollu aðdáendum þessarar
vinsælustu geimóperu allra tíma
miklum vonbrigðum. Það er enn
margt ósagt í upphafi þessarar
myndar og sem betur fer eyðir
Lucas, að þessu sinni, ekki dýrmæt-
um tíma í óþarfa barnaskap og
kjaftæði.
Revenge of the Sith er því
áhrifamesta Star Wars-myndin síð-
an The Empire Strikes Back gerði
allt vitlaust árið 1980. Dramatíkin
og slagkrafturinn í þessum magn-
aða lokakafla er með ólíkindum.
Máttur Lucasar er mikill og hér
eyðir hann engum tíma í óþarfa
kjaftæði. Þetta er einfaldlega 100%
Star Wars.
Það ánægjulegasta við þessa
mynd er svo tvímælalaust að höf-
undinum tekst að halda uppi spennu
út alla myndina en það verður að
teljast býsna vel af sér vikið þar
sem hvert einasta mannsbarn í
heiminum veit að myndin mun enda
með falli Anakins og sigri hins illa.
Fallið er sett fram á mjög sannfær-
andi hátt og við finnum til með ungu
hetjunni sem berst við ofmetnað,
hroka og valdagræðgi sem mengar
sál hans svo illa að henn umbreytist
í erkifjandann Svarthöfða.
Christiansen stendur sig feikivel
í hlutverki Anakins og leikurinn
styrkist með hverju skrefi sem
drengurinn tekur til glötunar. Þessi
mynd er þó að mínu mati fyrst og
fremst mynd Ewans McGregor í
hlutverki Obi-Wans sem er aðalgóði
gæinn og í raun og veru mesti
töffari myndabálksins í heild. Þá er
Samuel L. Jackson ábúðarmikill og
töff og Ian McDiramid er að gera
glóða hluti sem Keisarinn vondi.
Þessi mynd er ekki gallalaus frekar
en hinar myndirnar fimm en hún rís
undir göllunum og er svo miklu,
miklu betri en Episode I og II að
maður getur ekki annað en tekið
henni fagnandi og horft fram hjá
því sem betur hefði mátt fara.
Spennan er þétt og hamagangurinn
mikill og maður tekur andköf yfir
geggjuðu geislasverða-einvígi Obi-
Wans og Anakins í lokin en þessi
mögnuðustu vinslit menningarsög-
unnar eru bæði kúl og dramatísk.
George Lucas biðst með þessari
mynd afsökunar á Episode I og II og
gerir það svo vel og fallega að við
getum ekki annað en tekið beiðnina
til greina enda stendur nú Stjörnu-
stríðsbálkurinn uppi sem ein firna-
sterk heild þó að hún missi aðeins
dampinn fyrir þetta magnaða enda-
tafl. Þórarinn Þórarinsson
Loksins almennilegt Stjörnustrí›
EPISODE III – REVENGE OF THE SITH
Leikstjóri: George Lucas
Aðalhlutverk: Hayden Christiansen, Natalie Portman, Ewan McGregor, Ian McDiramid
NIÐURSTAÐA: George Lucas biðst með þessari mynd afsökunar á Episode I og II og gerir það svo
vel og fallega að við getum ekki annað en tekið beiðnina til greina.
[ KVIKMYNDIR ]
UMFJÖLLUN
Skífan Laugavegi 26 opið alla daga til 22 • Skífan Smáralind • Skifan Kringlunni • www.skifan.is
...skemmtir þér ; )
Aðeins í Skífunni. Nýtt kortatímabil.
SUMAR
TILBOÐ!
VINSÆLASTA LEIKJATÖLVA HEIMS
9.999 kr.
ÖRÞUNN
OG HELMINGI
MINNI EN ÁÐUR
!
Enginn líkur
Whitney
Söngkonan Whitney Houston hef-
ur ekki átt sjö dagana sæla undan-
farin ár en er nú komin úr með-
ferð og farin að vinna að sinni
fyrstu plötu í þrjú ár. Þetta var
staðfest af yfirmanni Houston,
Clive Davis, sem uppgötvaði hana
forðum daga og hjálpaði henni að
þróa ferilinn. „Whitney er komin
úr meðferð og við munum hitta
hana eftir tíu daga,“ sagði Davis.
„Það er enginn líkur Whitney.
Þegar ég tala við lagahöfunda og
framleiðendur þá finn ég að þeir
geta ekki beðið eftir því að fá
hana aftur.“ David segist hafa trú
á Houston þrátt fyrir þá stað-
reynd að hún hafi þurft að fara í
meðferð tvisvar á einu ári. „Hún
hefur barist í gegnum þessa erf-
iðu tíma en hún er frábær söng-
kona svo ég get ekki beðið eftir að
fara í hljóðverið með henni.“
Whitney skráði sig í meðferð í
febrúar á þessu ári. ■
FUTURE FUTURE Hljómsveitin er sprottin
upp úr leifum harðkjarnasveitarinnar
Snafu.
Future Future
me› tónleika
Hljómsveitin Future Future held-
ur tónleika á Bar 11 í kvöld kl.
22.00. Liðsmenn Future Future
eru að ljúka upptökum á sinni
fyrstu plötu þar sem tíu ný lög
verður að finna.
Hljómsveitin er sprottin upp
úr leifum harðkjarnasveitarinnar
Snafu sem starfaði í töluverðan
tíma. Á meðal áhrifavalda Future
Future eru Shiner, Mars Volta,
Blood Brothers, King Crimson og
Interpol. Ókeypis er á tónleikana
annað kvöld. ■