Fréttablaðið - 20.05.2005, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 20.05.2005, Blaðsíða 39
■ ■ LEIKIR  18.00 Ísland og England mætast í vináttulandsleik kvenna í körfubolta í DHL-Höllinni.  20.00 Neisti og Boltafélag Norðfjarðar mætast á Djúpavogsvelli í VISA-bikar karla í fótbolta.  20.00 Augnablik og Afríka mætast í Fífunni í VISA-bikar karla í fótbolta. ■ ■ SJÓNVARP  00.15 Boltinn með Guðna Bergs á Sýn.  07.00 Olíssport á Sýn.  07.30 Olíssport á Sýn.  08.00 Olíssport á Sýn.  08.30 Olíssport á Sýn.  16.45 Þú ert í beinni á Sýn.  17.45 Olíssport á Sýn.  19.00 Gillette-sportpakkinn á Sýn.  19.30 Motorworld Allt um akstursíþróttir á Sýn.  20.00 Meistaradeildin fréttaþáttur á Sýn.  20.30 FA-bikarinn á Sýn. Ítarleg umfjöllun um úrslitaleikinn sem fer fram á milli Man. Utd og Arsenal í Cardiff á laugardaginn.  21.00 HM í Póker á Sýn.  23.15 Enska 1. deildin á Sýn. Sýnt frá leik Ipswich og West Ham.  1.00 NBA Úrslitakeppnin í NBA á Sýn. Bein útsending frá sjötta leik Dallas og Phoenix. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 17 18 19 20 21 22 23 Föstudagur MARS FÖSTUDAGUR 20. maí 2005 27 Jörundur Áki Sveinsson hefur valið kvennalandsliðshóp gegn Skotum: Ásthildur aftur inn í kvennalandsli›i› FÓTBOLTI Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari A-andsliðs kvenna, hefur valið leikmannahóp Íslands fyrir vináttulandsleikinn gegn Skotum, sem fram fer á McDiarmid Park í Perth 25. maí næstkomandi. Stærsta fréttin er örugglega sú að Ásthildur Helgadóttir, fyrirliði liðsins, er komin í hópinn á ný eft- ir erfið meiðsli sem hún hlaut í mars á síðasta ári, í vináttuleik gegn Skotum í Egilshöll. Ásthildur sleit þá krossbönd og er nýkomin af stað á ný en það er þó ekki að sjá á leik hennar. Ásthildur hefur nefnilega blómstrað í nýrri stöðu framherja með toppliði Malmö í sænsku úr- valsdeildinni, hefur þegar skorað 6 mörk í fyrstu fimm leikjunum og er sem stendur markahæsti leik- maður deildarinnar. Íslenska kvennalandsliðið hefur náð góðum árangri gegn Skotum í gegnum tíð- ina. Liðin hafa mæst alls fimm sinnum og hefur íslenska liðið unn- ið þrisvar, skoska liðið einu sinni og í eitt skipti skildu liðin jöfn. Fyrsti leikur A-landsliðs kvenna var einmitt gegn Skotum árið 1981. Síðasta viðureign lið- anna var í Egilshöll í mars 2004 og vann þá íslenska liðið öruggan 5-1 sigur og Margrét Lára Viðarsdótt- ir skoraði meðal annars þrennu í þeim leik. Skotar leika vináttu- landsleik gegn Finnum í Turku í Finnlandi á föstudag og verða því væntanlega vel undirbúnir fyrir leikinn gegn Íslandi. Íslenska kvennalandsliðið spil- ar síðan sinn fyrsta leik í und- ankeppni HM í ágúst þegar Hvít- Rússar koma í heimsókn á Laugar- dalsvöllinn. ooj@frettabladid.is HÓPURINN GEGN SKOTUM: Þóra Björg Helgadóttir Breiðabliki Guðbjörg Gunnarsdóttir Val Ásthildur Helgadóttir Malmö FF Erla Hendriksdóttir Skovlunde IF Katrín Jónsdóttir Amazon Grimstad Guðlaug Jónsdóttir Breiðabliki Edda Garðarsdóttir Breiðabliki Guðrún Sóley Gunnarsdóttir KR Laufey Ólafsdóttir Val Margrét Lára Viðarsdóttir Val Hólmfríður Magnúsdóttir ÍBV Dóra Stefánsdóttir Val Dóra María Lárusdóttir Val Erla Steina Arnardóttir Mallbackens Ásta Árnadóttir Val Pála Marie Einarsdóttir Val AFTUR MEÐ LANDSLIÐINU Íslenska kvennalandsliðið hefur endurheimt Ást- hildi Helgadóttur, fyrirliða liðsins, eftir erfið meiðsli sem hún hlaut í mars á síðasta ári. Landsbankadeildin: Tvær frá Ev- erton til ÍBV FÓTBOLTI Kvennalið ÍBV í Lands- bankadeildinni sem vann 12-2 sig- ur á ÍA í fyrstu umferð hefur fengið til sín tvær 17 ára stelpur frá enska liðinu Everton. Þetta eru markvörðurinn Danielle Hill og miðjuleikmaðurinn Chantell Parry en kvennalið Everton er mjög sterkt og með því leika m.a. Sammy Britton og Rachel Brown, landsliðsmarkvörður Englands, sem báðar hafa leikið með ÍBV. Daniela og Chantell hafa báðar leikið landsleiki með yngri lands- liðum Englands og spiluðu t.d. báðar með U-19 ára liðinu sem vann sér sæti í UEFA Champions- hip-úrslitakeppninni en hún fer fram dagana 20.-31. júlí í sumar. Landsleikir í körfubolta: Enskar konur í heimsókn KÖRFUBOLTI Íslenska kvennalands- liðið í körfubolta leikur í kvöld fyrsta vináttulandsleikinn af þremur gegn Englandi en leikurinn hefst klukkan 18.00 í DHL-Höll þeirra KR-inga vestur í bæ. Þetta verður sjötti lands- leikur þjóðanna á einu ári en íslensku stelpurnar eru að leggja lokahönd á undirbúning sinn fyrir Smáþjóðaleikana í Andorra í lok mánaðarins. Liðin mætast síðan aftur í Kópavogi á morgun og í Njarðvík á sunnudaginn. STÓRT SKARÐ Meiðsli Olgu Færseth voru mikið áfall fyrir kvennalið ÍBV.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.