Fréttablaðið - 20.05.2005, Page 4

Fréttablaðið - 20.05.2005, Page 4
KAUP Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 64,68 64,98 118,98 119,56 81,78 82,24 10,981 11,045 10,073 10,133 8,896 8,948 0,6031 0,6067 96,49 97,07 GENGI GJALDMIÐLA 19.05.2005 GENGIÐ HEIMILD: Seðlabanki Íslands SALA 113,3864 4 20. maí 2005 FÖSTUDAGUR FRJÁLSLYNDI FLOKKURINN Frambjóð- endur og stuðningsmenn Frjáls- lynda flokksins í Suðvesturkjör- dæmi harma að Gunnar Örlygsson hafi snúið baki við félögum sínum og gengið til liðs við Sjálfstæðis- flokkinn. Í ályktun fundar sem haldinn var í gær er Gunnar hvattur til þess að sýna drengskap og segja sig frá þingmennsku þannig að Frjálslyndi flokkurinn hafi áfram sína fjóra þingmenn. Krafan er sögð vera sanngjörn og lýðræðis- leg miðað við atkvæðin sem flokknum voru greidd í síðustu kosningum. „Þessi fundur í gær er greini- lega ekki fjöldahreyfing. Þetta er eins og hver annar klofningur og þegar hafa nokkrir sem fylgja mér að málum sagt sig úr flokknum,“ segir Gunnar Örlygsson. Margrét Sverrisdóttir fram- kvæmdastjóri Frjálslynda flokks- ins segir tvo hafa sagt sig úr flokknum nýverið og hreyfingin sé ekki marktæk. Fjölmiðlar hafa að undanförnu vitnað talsvert í fyrri skrif Gunnars gegn Sjálfstæðisflokknum. Hann hefur nú óskað eftir því að ræður og greinar eftir hann á vef Frjálslynda flokksins verði fjarlægðar. „Niður- staða í þessu máli liggur ekki fyrir,“ segir Gunnar Örlygsson. - jh Stórhrekkur á Ísafirði: Bílar settir í plast HREKKJALÓMAR Fjórtán bifreiðaeig- endum á Ísafirði brá heldur betur í brún þegar þeir ætluðu til vinnu í gærmorgun en þeir komu að bílum sínum innplöstuðum. Flestum gekk þó vel að ná bílunum úr plastinu. Að verki voru hrekkjalómar sem fengið höfðu hugmyndina á heimsfrumsýningu á Star Wars- myndinni á Patreksfirði. Átti fórn- arlömbin að gruna geimverur en ekki hrekkjalómana. Einhverjir til- kynntu lögregluni um verknaðinn en þegar í ljós kom að um þræl- skipulagt spaug var að ræða hafði engin hug á eftirmálum. Menn hlógu þó mishátt af spauginu, sagði lögreglan á Ísafirði. -jse Dómur í Hæstarétti: Tilraun til líkamsárásar DÓMSTÓLAR Hæstiréttur dæmdi í gær mann í 10 mánaða fangelsi, en skilorðsbatt átta mánuði af refsivistinni í þrjú ár. Maðurinn var dæmdur fyrir „tilraun til lík- amsárásar með hnífi“ á veitinga- stað í Hafnarstræti í Reykjavík. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi manninn í desember í árs- fangelsi fyrir árásina, en frestaði níu mánuðum refsingarinnar gegn því að maðurinn héldi skilorð í tvö ár. Maðurinn þarf að greiða allan áfrýjunarkostnað vegna málsins, auk tveggja þriðju hluta sakar- kostnaðar í héraði. - óká Faðir Kim Larsen: Lá látinn í fimm vikur DANMÖRK Faðir hins ástsæla danska rokkara Kim Larsen fannst látinn á heimili sínu í gær og er talið að hann hafi látist fyrir fimm vikum. Alfred M. Larsen bjó einn í bæn- um Marstal á eyjunni Ærø skammt undan Fjóni og það voru nágrannar hans sem fundu líkið eftir að dóttir Larsens hafði beðið þá um að grennslast fyrir um föður sinn. Kim Larsen og faðir hans hafa ekki talast við í mörg ár en rokkar- inn fyrirgaf föður sínum ekki fyrir að hafa yfirgefið sig þegar Kim var fimm ára. ■ Tilefnislaus fólskuárás: Situr inni í flrjá mánu›i DÓMSTÓLAR Dráttur rannsóknar lög- reglu á líkamsárás og breytingar til hins betra hjá árásarmanni urðu til þess að 15 mánuðir af 18 mánaða fangelsisdómi voru skilorðsbundnir í dómi Hæstaréttar í gær. Í héraði var maðurinn dæmdur í 15 mánaða fangelsi, þar af 12 skilorðsbundna. Dóminn hlaut maðurinn fyrir tvær líkamsárásir á árinu 2001, báð- ar fólskulegar og tilefnislausar, en vegna annarrar þeirra þarf hann líka að reiða fram 200.000 krónur í miskabætur. Maðurinn hefur áður verið dæmdur fyrir ofbeldisverk, fyrsta dóminn hlaut hann árið 1996 fyrir brot sem hann framdi fyrir átján ára aldur. - óká VEÐRIÐ Í DAG Þekkir þú fuglinn? Meðalstór fugl, sést oft á beit á landi. Hljóð karlfuglsins er blístur en lágt malandi urr hjá kvenfuglinum. edda.is Svarið fæst í Fuglavísinum, frábær handbók, ómissandi í bílinn. Jarðskjálftinn mikli: Jör›in skókst eins og klukka WASHINGTON, AP Jarðskjálftinn mikli á annan dag jóla er sá stærsti sem mælst hefur í rúm fjörutíu ár, allt að 9,3 stig. Jarðvísindamenn segja nýjar mælingar sýna að jarðskorp- an hafi hrist eins og hún lagði sig og vikum síðar hafi hún enn nötrað, ekki ósvipað og kirkjuklukka. Þá er sprungan sem opnaðist á misgenginu sú lengsta sem sögur fara af, ríflega þúsund kílómetrar. Auk þess varaði jarðskjálftinn í tíu mínútur en dæmigerðir skjálftar eru yfirstaðnir á rúmri hálfri mínútu. 176.000 manns fórust í flóðbylgj- unni sem fylgdi skjálftanum. ■ GUNNAR ÖRLYGSSON ÞINGMAÐUR SJÁLF- STÆÐISFLOKKSINS Frjálslyndir í Suðvestur- kjördæmi vilja að Gunnar segi sig frá þing- mennsku. Gunnar Örlygsson vill skrif sín fjarlægð af vef Frjálslyndra: Vilja flingsæti Gunnars aftur CHILE PINOCHET FÉKK HEILABLÓÐFALL Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, fékk vægt heilablóðfall í gær. Hann var strax lagður á sjúkrahús í Santía- gó og heilsast eftir atvikum vel. Pinochet er orðinn 89 ára gamall og heilsu hans hefur hrakað tals- vert á undanförnum misserum. RÚSSLAND KVEÐST SÝKN SAKA Nur-Pashi Kulayev, meintur tsjetsjenskur hryðjuverkamaður, kvaðst saklaus af aðild að gíslatökunni og morð- unum í barnaskólanum í Beslan síðasta haust. Ættingjum hinna látnu gramdist hægagangur við réttarhaldið í gær. VIÐSKIPTI Fjárfestar sem skilað hafa inn tilboðum í Símann sem ekki eru bindandi voru í gær áminntir um að virða trúnaðar- samning sem þeir undirrituðu til að fá útboðsgögn afhend. Í bréfi frá einkavæðingarnefnd til fjár- festanna kemur fram að tilteknar upplýsingar um söluferlið hafi verið gerðar opinberar í fjölmiðl- um undanfarna daga án heimildar. Þá segir að upplýsingagjöfin geti falið í sér brot á trúnaðar- samningi og nefndin kunni að telja hana verulega vanefnd. Vís- að er í ákvæði um að ekki megi láta neinum aðila í té upplýsingar varðandi hugsanlega sölu Símans án skriflegs samþykkis einkavæð- ingarnefndar. „Ástæða er til að árétta það að hvers konar brot á trúnaðarsamningum mun verða litið mjög alvarlegum augum og getur leitt til þess að hugsanlegir fjárfestar verði útilokaðir frá þátttöku í söluferlinu án frekari fyrirvara,“ segir í bréfinu. Er þetta í samræmi við frétt Fréttablaðsins í gær um að lög- menn einkavæðingarnefndar telji að fréttatilkynning hóps fjárfesta, sem samanstendur af Burðarási, KEA, Ólafi Jóhanni Ólafssyni, Tal- símafélaginu og Tryggingamið- stöðinni með aðild Almennings, hafi ekki verið í samræmi við áð- urnefnd trúnaðarákvæði. Það var staðfest af forystumanni í hópn- um. Agnes Bragadóttir, forsvars- maður Almennings, sagði í hádeg- isfréttum Útvarps í gær að félag- ið hefði engar athugasemdir feng- ið. Allt sem Almenningur hefði gert stæðist fullkomlega alla skil- mála Morgan Stanley og einka- væðingarnefndar. Á fréttavef Viðskiptablaðsins er haft eftir Jóni Sveinssyni, for- manni einkavæðingarnefndar, að yfirlýsing Almennings og fjár- festahópsins í fjölmiðlum feli í sér brot á trúnaðarsamningi við nefndina. Í viðtali við Viðskipta- blaðið í dag segir hann það mjög alvarlegt mál þegar menn virði ekki slíkan samning, sem sé í rauninni grundvöllurinn að öllu ferlinu. bjorgvin@frettabladid.is Fjárfestar áminntir vegna trúna›arbrots Fjárfestar sem bjó›a í Símann voru í gær áminntir bréflega um a› vir›a trún- a›arsamning. Brot á honum geti „leitt til fless a› hugsanlegir fjárfestar ver›i útiloka›ir frá flátttöku í söluferlinu“. EINKAVÆÐINGARNEFND Í ÞJÓÐMENNINGARHÚSINU Einkavæðingarnefnd kynnti sölu Símans á fundi í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu í lok apríl. Jón Sveinsson formaður nefndarinnar, Illugi Gunnarsson og Baldur Guðlaugsson kynna söluferli Símans. Nefndin hefur nú áminnt fjárfesta bréfleiðis um að virða trúnaðarsamning vegna tilboða sem send hafa verið inn.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.